Kvikmyndahúsum hefur fækkað um helming síðustu 20 ár

Fjöldi kvik­mynda­húsa á land­inu hefur dreg­ist saman um helm­ing síðan árið 1995. Íslend­ingar fóru mun meira í bíó í hrun­inu. Að með­al­tali eru um 14 myndir frum­sýndar í hverjum mán­uði.

Ásókn í kvikmyndahús jókst mikið í hruninu, en bíó er ein ódýrasta afþreying sem völ er á.
Ásókn í kvik­mynda­hús jókst mikið í hrun­inu, en bíó er ein ódýrasta afþrey­ing sem völ er á. Mynd: Brand New Images / Getty Images

Kvik­mynda­húsum á land­inu hefur fækkað um helm­ing síðan árið 1995. Þá voru 31 kvik­mynda­hús á land­inu en í dag eru þau 16. Ekki hefur fækkað neitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu 20 ár, en öllum þeim kvik­mynda­húsum sem hefur verðið lokað eru á lands­byggð­inni. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru 25 kvik­mynda­hús utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins árið 1995 en nú eru þau ein­ungis níu. Nýjustu tölur Hag­stof­unnar eru frá árinu 2014, en Alfreð Ásberg Árnason, fram­kvæmda­stjóri Sam­bíó­anna, útveg­aði nýrri tölur.

Hann segir að breyt­ing á tækni­bún­aði, sem varð árið 1995, um textun á kvik­myndum hafi gert lands­byggð­inni erf­ið­ara fyrir að fylgja því eftir vegna kostn­aðar.

„Árið 2003 kom svo digital­væð­ingin, sem var kost­aði líka sitt, og gerði smærri kvik­mynda­húsum á land­inu erfitt fyrir,“ segir Alfreð við Kjarnann. „En bíó­húsin á lands­byggð­inni stand­ast ekki sam­an­burð við þau í Reykja­vík þar sem mörg þeirra voru líka notuð sem sam­komu­hús og ekki mikið fyrir kvik­mynda­sýn­ingar. Þar af leið­andi voru þau ekki upp­færð með sama hætti.“

Fjölgar á landsbyggðinni á ný

Alfreð seg­ist þó hafa heyrt af því að það standi til að fjölga kvik­mynda­húsum á lands­byggð­inni á ný. Stafrænn tækni­bún­aður hafi lækkað í verði und­an­farin ár sem geri það auð­veld­ara fyrir smærri kvik­mynda­hús að upp­færa.

Sambíóin reka fimm kvik­mynda­hús, þrjú í Reykja­vík, eitt á Akureyri og eitt í Keflavík. Sena reka tvö bíó í Reykja­vík og eitt á Akureyri. Í Reykja­vík eru svo tvö bíó til við­bótar; Laug­ar­ás­bíó og Bíó Paradís. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru svo rekin sex kvik­mynda­hús til við­bótar; á Ísafirði, Akranesi, Selfossi, Sauð­ár­króki, Pat­reks­firði og í Vest­manna­eyjum.

Í þessum sextán kvik­mynda­húsum á land­inu öllu eru sam­tals 40 salir og 6.700 sæti. Alfreð segir að Sambíóin hafi verið að fækka sætum und­an­farin ár til þess að bjóða upp á meira bil á milli sæta.

Fólk fór í bíó í hruninu

Þróun í fjölda kvik­mynda­húsa­gesta jókst mikið í efna­hags­hrun­inu. Árið 1996 var fjöldi gesta yfir 1,4 milljón. Strax í kjöl­far hruns­ins, árið 2008, fór fjöld­inn yfir 1,7 milljón. Ásókn í kvik­mynda­hús dróst svo aftur saman eftir hrun og árið 2014 var hann kom­inn aftur niður í það sama og árið 1996, rúma 1,4 milljón.

Alfreð segir þessa þróun skýr­ast af því að fólk hafði minna á milli hand­anna í hrun­inu.

„Kvik­mynda­hús eru ódýrasta skemmtun sem völ er á,“ segir hann. „Fáir fóru til útlanda og ferða­lög og sótt­ust því í ódýr­ari afþr­ey­ingu.“

Að með­al­tali eru um 15 nýjar kvik­myndir frum­sýndar í hverjum mán­uði. Samkvæmt Alferð hefur þeim þó fækkað síðan 2011, þegar 181 kvik­mynd var frum­sýnd. Árið 2014 voru 154 myndir frum­sýndar, en þeim fjölg­aði árið eftir, en þá voru þær 175.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár