Formaður SUS krefst lögbanns á vefinn Tekjur.is

Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, hefur farið fram á að lög­bann verði sett á starf­semi vefs sem birtir upp­lýs­ingar úr lands­menn unnar upp úr skatt­skrá.

Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, hefur gert kröfu um að lög­bann verði sett á vef­inn Tekjur.is. Auk þess hefur form­leg kvörtun borist Per­sónu­vernd frá almanna­tengl­inum Björg­vini Guð­munds­syni vegna máls­ins.

[links]Í yfir­lýs­ingu frá Ingvari Smára segir: „Ég tel að birt­ing fjár­hags­upp­lýs­inga allra skatt­greið­enda á vefnum Tekjur.is feli í sér ómak­lega aðför að stjórn­ar­skrár­vörðum rétti almenn­ings til frið­helgis einka­lífs. Með starf­rækslu vefs­ins er að mínu mati farið út fyrir heim­ildir þeirra ákvæða sem hafa legið að baki opin­berri umfjöllun um laun og skatt­greiðslur Íslend­inga í gegnum árin. Í ljósi þess tel ég rétt að sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggi lög­bann við vinnslu Visku­brunns ehf. á fjár­hags­upp­lýs­ingum Íslend­inga og að félag­inu verði gert að afmá upp­lýs­ing­arnar af vef­síðu sinni, tekjur.is. Í kjöl­farið sé svo hægt að takast á við um lög­mæti lög­banns­ins fyrir dóm­stólum.“

Í til­kynn­ingu frá Jóni R. Arn­ar­syni, stjórn­ar­for­manni Visku­brunns ehf. sem setti upp og rekur vef­inn, sem send var út á föstu­dag sagði að fyr­ir­tækið hafi verið stofnað til að „stuðla að gagn­sæi og sam­ræmi í umfjöllun um skatta­mál. Þannig eru ekki birtar upp­lýs­ingar um þröngan hóp val­inna ein­stak­linga, heldur er not­endum síð­unnar í sjálfs­vald sett hvaða upp­lýs­ingar þeir kynna sér. Upp­lýs­ing­arnar á Tekjur.is eru end­an­legar upp­lýs­ingar um fram­taldar tekjur. Þar eru ekki birtar bráða­birgða­upp­lýs­ingar eða áætl­anir eins og hingað til hefur tíðkast í tekju­blöðum.“

Byggja á lögum frá 1984

Upp­lýs­ingar um það hvernig tekjur fólks skipt­ast, og tæm­andi upp­lýs­ingar um hverjir borga hvað í skatta, er hægt að finna í svo­kall­aðri skatt­skrá. Í vor var skatt­skráin fyrir árið 2017 gerð opin­ber. Í henni er að finna nið­ur­brot á öllum skatt­greiðslum ein­stak­linga – tekju­skatt, útsvar og fjár­magnstekju­skatt – vegna árs­ins 2016. Þessar upp­lýs­ingar, sem eru gerðar aðgengi­legar af rík­is­skatt­stjóra, er heim­ilt að birta opin­ber­lega sam­kvæmt annarri máls­grein 98. greinar laga um tekju­skatt sem sett voru 1984. Þar segir: „Heimil er opin­ber birt­ing á þeim upp­lýs­ingum um álagða skatta, sem fram koma í skatt­skrá, svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða að hluta.“

[adspot]Ingvar Smári er þessu ósam­mála og segir í yfir­lýs­ingu sinni að sterk rök megi „færa fyrir því að sala á aðgangi að gagna­grunni sem inni­heldur upp­lýs­ingar um skatt­greiðslur allra lands­manna sé lög­brot. Per­sónu­vernd hefur áður fall­ist á að birt­ing upp­lýs­inga úr skatt­skrá Rík­is­skatt­stjóra, mjög svipuð þeirri sem á sér stað á tekjur.is, sé ólög­mæt. Þá verður að hafa í huga að ákvæði það sem Visku­brunnur ehf. ber fyrir sig, 2. mgr. 98. gr. tekju­skatts­laga, var lög­fest fyrir tíma inter­nets­ins. Um er að ræða ákvæði sem felur í sér tak­mörkun á borg­ara­legum rétt­indum og því sé rétt að skýra það þröngt, þannig að gild­is­svið ákvæð­is­ins sé tak­markað sem mest. Enn fremur hefur rétt­ar­vernd almenn­ings gagn­vart notkun á per­sónu­upp­lýs­ingum þeirra verið styrkt til muna með til­komu nýrra laga um Per­sónu­vernd.

Verði ekki fall­ist á lög­bann verður tekið til skoð­unar að leita álits dóm­stóla á því hvort vegi hærra, réttur almenn­ings til frið­helgis einka­lífs eða réttur almenn­ings til þess að starf­rækja gagna­grunn á inter­net­inu sem inni­heldur upp­lýs­ingar um laun og skatt­greiðslur skatt­greið­enda.“

Tekjuhæstu borga ekki hæstu skattana

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um efni skatt­skrá­ar­innar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist síð­ast­lið­inn föstu­dag. Þar kom meðal ann­ars fram að 137 Íslend­ingar voru með fjár­magnstekjur yfir 100 millj­ónum króna á árinu 2016, 54 voru með yfir 200 millj­ónir króna í slíkar tekjur og 33 þén­uðu yfir 300 millj­ónir króna á þann hátt. Alls voru fjár­magnstekjur 22 ein­stak­linga yfir 400 millj­ónir króna á árinu 2016 og 16 voru með yfir hálfan millj­arð króna í slíkar tekjur.

Sex Íslend­ingar þén­uðu meira en millj­arð króna í fjár­magnstekjur á árinu 2016, þrír yfir tvo millj­arða króna og tveir voru með yfir þrjá millj­arða króna í fjár­magnstekjur.

Þorri þeirra sem voru með hæstar fjár­magnstekjur á árinu 2016 seldu hluti í fyr­ir­tækjum sem þau áttu í á því ári. Ef ein­stak­lingur er með þorra tekna sinna í formi fjár­magnstekna þá borgar hann mun minna hlut­fall af tekjum sínum til rík­is­sjóðs en ef hann er með þær í formi launa­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár