Nær fimmtungur allra barna í heiminum búa á stríðshrjáðum svæðum

Í nýrri skýrslu Barna­heilla kemur fram að ef litið sé til síð­ustu tutt­ugu ára þá búa nú fleiri börn en nokkru sinni á svæðum þar sem vopnuð átök geisa, eða nærri eitt af hverjum fimm börnum.

Árið 2017 bjuggu nærri eitt af hverju fimm börnum í heim­inum á svæðum þar sem vopnuð átök og stríð geisuðu, það eru fleiri börn en nokkru sinni á síð­ustu tveimur ára­tugum. Áætlað er að í það minnsta 550 þús­und ung­börn hafi látið lífið vegna stríð­ástaka á árunum 2013 til 2017 í þeim tíu löndum sem hvað mest átök hafa geisað. Það er á með­al­tali yfir 100 þús­und börn á ári hverju. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barna­heilla, Save the Children. Skýrslan var kynnt á föstu­dag­inn í tengslum við upp­haf Örygg­is­ráð­stefn­unnar í München.

870 þúsund börn og 175 þúsund hermenn

Í skýrslu Barna­heilla kemur fram að yfir hálf milljón ung­barna hafi dáið vegna átaka á milli áranna 2013 og 2017. Í skýrsl­unni segir að ung­börnin lét­ust vegna óbeinna afleið­inga stríðs­á­taka, svo sem hung­urs, laskaðra inn­viða og óstarf­hæfra sjúkra­húsa, skorts á aðgengi að heilsu­gæslu og hrein­læti og vegna þess að þeim var neitað um hjálp. Heild­ar­tala lát­inna barna vegna óbeinna afleið­inga stríðs­á­taka fer upp í 870 þús­und þegar öll börn fimm ára og yngri eru talin með. Til sam­an­burðar er áætlað í skýrsl­unni að á ofan­greindu fimm ára tíma­bili hafi nærri 175 þús­und her­menn fallið í átök­unum.

Eðli stríðs­á­taka hefur breyst á síð­ustu árum sam­kvæmt skýrsl­unni, stríð standa lengur og eru lík­legri til vera í meiri nálægð við óbreytta borg­ara. Árásir á skóla og sjúkra­hús séu að aukast og aðgengi að neyð­ar­að­stoð er beitt í átökum í sífellt meira mæli. Aðferðir eins og notkun efna­vopna og nauðg­anir eru not­aðar sem vopn í stríði og stríðs­glæpir framdir án refs­inga. Í skýrsl­unni segir að ástandið sé að versna hvað snertir börn en á hverjum degi verða börn fyrir árásum vegna þess að vopn­aðar sveitir og herir virða ekki alþjóð­leg lög og samn­inga.

Hryllilegt bakslag

Árið 2017 bjuggu 420 millj­ónir barna á stríðs­hrjáðum svæðum, það er 18 pró­sent allra barna í heim­inum. Það er aukn­ing um 30 millj­ónir frá árinu 2016. Þau lönd þar sem börn liðu hvað mest vegna átaka árið 2017 voru Afganistan, Jemen, Suður- Súdan, Mið- Afr­íku­lýð­veldið, Lýð­veldið Kongó, Sýrland, Írak, Malí, Nígería og Sómalía. ­Á síð­ustu tveimur ára­tugum hefur fjöldi barna sem falla eða örkuml­ast í átökum eða af óbeinum afleið­ingum þeirra rúm­lega þre­fald­ast.

„Það er átak­an­legt að við skulum, á 21. öld, sjá slíkt bakslag í að fylgja eftir sið­ferð­is­legum við­miðum sem eru svo ein­föld, börn og almennir borg­arar skulu aldrei vera skot­mörk, “ segir Helle Thorning-Schmidt, fram­kvæmda­stjóri Save the Children International.

Í kjöl­far nið­ur­staðna skýrsl­unnar hvetja sam­tökin leið­toga í heim­inum að stöðva „stríðið gegn börnum“. Leið­togar eru hvattir til að þrýsta á að alþjóð­leg lög og samn­ingar séu virtir í stríði, að draga þá sem ger­ast brot­legir til ábyrgðar og gera allt sem í valdi þeirra stendur til að hjálpa börnum sem búa við stríðs­á­tök. „Þegar reglur sem gilda í stríði eru brotnar verður alþjóða­sam­fé­lagið að tala mjög skýru máli um að slíkt líð­ist ekki og draga þá sem ger­ast brot­legir til ábyrgðar. Og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur fyrir þau börn sem þurfa að þola að lífi þeirra sé rústað vegna stríðs­á­taka. Forða þeim frá frek­ari skaða og hjálpa þeim að byggja upp fram­tíð, “ segir Helle Thorning-Schmidt.

Í skýrsl­unni benda sam­tökin rík­is­stjór­unum og öðrum áhrifa­miklum sam­tökum á tutt­ugu leiðir til að tryggja vernd barna þar sem stríð eða átök geisa. Meðal til­lagna er und­ir­ritun yfir­lýs­ingar um örugga skóla, að lág­marks­aldur við herkvaðn­ingu sé 18 ár, að forð­ast notkun sprengi­vopna á þétt­býlum svæðum og þrengja skil­mála fyrir vopna­sölu.

Barnaheill skora á íslensk stjórnvöld að beita sér á alþjóðavettvangi

Í frétta­til­kynn­ingu Barna­heilla - Save the Children á Íslandi segir að alþing­is­mönnum hafi verið send skýrsl­una. Hvatt er til þess að Alþingi og stjórn­völd beiti sér fyrir því á vett­vangi alþjóða­sam­fé­lags­ins að við­ur­kenndum við­miðum sé fylgt í stríðs­á­tökum, og þeir sem brjóti alþjóða­lög og -samn­inga verði dregnir til ábyrgðar. Einnig er hvatt til þess að gripið sé til aðgerða til að vernda börn sem búa við stríðs­á­stand og hjálpa og styðja við þau börn sem þegar hafa mátt þola þján­ingar vegna stríðs­á­taka. Þá skora Barna­heill - Save the Children á Íslandi á stjórn­völd, atvinnu­lífið og almenn­ing að sýna sam­hug í verki og styðja við börn sem búa við þær skelfi­legu aðstæður sem stríðs­á­stand er.

Þá segir að brýn­ustu verk­efnin nú eru að börn sem búa við slíkt ástand eða eru á flótta undan stríðs­á­tökum eigi þess kost að njóta mennt­unar og fá sál­fé­lags­legan stuðn­ing til að takast á við þær hræði­legu raunir sem á þeim dynja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár