Hætta að rukka strætófarþega og þrífa klósett

Ráðist verður í marg­vís­legar vinnu­stöðv­un­ar­að­gerðir gegn eig­endum rútu­fyr­ir­tækja og hót­ela ef til­lögur samn­inga­nefndar Eflingar ná fram að ganga.

Frá og með 18. mars og til ótil­greinds tíma munu strætó­bíl­stjórar og aðrir félags­menn Eflingar hjá Almenn­ings­vögnum Kynn­is­ferða hætta að sinna eft­ir­liti með greiðslu far­gjalds.

Frá 23. mars til 29. mars munu svo bíl­stjór­arnir stöðva bif­reið á stoppi­stöð í 5 mín­útur á hverjum degi kl. 16 auk þess sem hætt verður að þrífa bif­reið­arnar að utan­verðu. 

Þetta er á meðal þeirra vinnu­stöðv­un­ar­að­gerða sem samn­inga­nefnd Eflingar leggur til. Nefndin sam­þykkti á fundi sínum í gær, 28. febr­úar, að boða til atkvæða­greiðslu um verk­fall hjá hóp­bif­reiða­fyr­ir­tækjum og starfs­mönnum 40 hót­ela. Einungis þeir félags­menn sem verk­falls­boð­unin tekur til greiða atkvæði.

Nái til­lög­urnar fram að ganga verður boðað til fullrar vinnu­stöðv­unar frá mið­nætti til mið­nættis þann 22. og 28.-29. mars, og 3.-5., 9.-11., 15.-17. og 23.-25. apríl. Ótímbundin vinnu­stöðvun yrði svo boðuð frá og með 1. maí. 

Örverk­falls­að­gerðir rútu­bíl­stjóra hjá öðrum fyr­ir­tækjum sem ekki sinna áætl­un­ar­ferðum inn­an­bæjar undir merkjum Strætó BS eru um margt svip­aðar þeim sem starfs­menn Kynn­is­ferða myndu ráð­ast í.

Í til­lög­unum felst meðal ann­ars að starfs­menn munu ein­vörð­ungu sinna störfum sem til­greind eru í starfs­lýs­ingu þeirra og ekki skoða far­miða né fara yfir far­þega­lista að und­an­skyldri far­þega­taln­ingu sem er nauð­syn­leg af örygg­is­á­stæðum. 

Hjá hót­el­starfs­mönnum birt­ast vinnu­stöðv­un­ar­að­gerð­irnar í fyrstu með þeim hætti að kló­sett og sam­eig­in­leg rými verða ekki þirifin og morg­un­verði gesta ekki sinnt.

Uppfært kl. 13:40:

Efling hefur sent frá sér eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ingu:

Verka­fólk á lægstu launum í röðum Eflingar hefur stigið fram og skipu­lagt ýmsar nýstár­legar verk­falls­að­gerðir sem eru hluti af verk­falls­á­ætlun Eflingar. Bíl­stjórar á einka­reknum strætó­leiðum, sem starfa undir miklu álagi og verða fyrir ítrek­uðum brotum á kjara­samn­ingi, hafa lagt til far­gjalda­verk­fall sem hefst 18. mars. Þetta verk­fall er við­bót við hefð­bundnar vinnu­stöðv­anir bíl­stjóra Eflingar.

Hót­el­starfs­fólk mun gera mik­il­vægi starfa sinna ljóst á afger­andi máta með því að hætta hluta þeirra, af stig­vax­andi þunga. Til að mynda munu  þau hætta kló­sett­þrifum og leggja niður störf tengd morg­un­verði, þar til ótíma­bundið verk­fall hefst á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins, 1. maí.

Þessar aðgerðir eru til við­bótar við hefð­bundnar vinnu­stöðv­anir sem eru sam­ræmdar með VR. Samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkti til­lögu um allar vinnu­stöðv­an­irnar á fundi sínum í gær­kvöldi.

Aðgerðir vors­ins hefj­ast á alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna 8. mars, í verk­falli sem var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta atkvæða í þess­ari viku. Þernur á hót­elum, radd­laus og ein­angr­aður hópur, fékk þar tæki­færi til að kjósa um verk­fallið sitt þegar Efl­ing­ar­bíll­inn, fær­an­legur kjör­staður, fór á milli vinnu­staða þeirra.

„Bar­áttu­andi hót­el­starfs­fólks­ins sem við hittum á bílt­úrnum hefur verið okkur mik­ill inn­blástur,“ sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar. „Við höfum leit­ast við að færa félagið til þeirra, að opna þeim dyr í þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Verk­föllin okkar miða að því að vera þátt­töku­verk­föll, ekki ein­göngu heima­setu­verk­föll, og eiga að vera sem mest í höndum félags­mann­anna sjálfra. Við erum gíf­ur­lega stolt af því starfi sem þessi verk­föll byggja á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár