Guðrún Nordal var búin að ákveða að bjóða sig fram

Guðrún Nordal var búin að ákveða að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hún hefur enn ekki ákveðið sig, en fram­boð Ólafs Ragnars breytti skoðun hennar. Berglind Ásgeirs­dóttir íhugar fram­boð.

Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, ætlaði að bjóða sig fram til forseta en ákvað að hugsa sig betur um þegar Ólafur Ragnar gaf kost á sér til endurkjörs.
Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar, ætl­aði að bjóða sig fram til for­seta en ákvað að hugsa sig betur um þegar Ólafur Ragnar gaf kost á sér til end­ur­kjörs.

Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar, var búin að ákveða að bjóða sig fram til for­seta Íslands, en fram­boð sitj­andi for­seta breytti afstöðu hennar. Hún hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hún ætli fram.

„Ég var búin að taka ákvörðun um að bjóða mig fram, en eftir að Ólafur Ragnar ákvað að gefa kost á sér til end­ur­kjörs hefur staðan breyst,” segir Guðrún í sam­tali við Kjarnann. „Ég ætla að leyfa dög­unum aðeins að líða áður en ég tek end­an­lega ákvörðun.”

Reynslumikill sendiherra íhugar framboð

Berglind Ásgeirs­dóttir, sendi­herra Íslands í Frakk­landi, íhugar alvar­lega að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hún stað­festir þetta í sam­tali við frétta­stofu RÚV:

„Ég hef fengið margar áskor­anir und­an­farna daga, sér­stak­lega frá konum á ólíkum aldri, og tek þessum áskor­unum þannig að ég ætla að íhuga þetta mjög vand­lega,“ segir Berglind í sam­tali við RÚV.

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hefur enn ekki tekið ákvörðun um fram­boð.

Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, ákvað í morgun að bjóða sig ekki fram.

Sigrún Stef­áns­dóttir, for­seti hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri, er enn að hugsa sig um. Ekki hefur náðst í Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, fram­kvæmda­stjóra hjá Samtökum iðn­að­ar­ins, en hún hefur íhugað fram­boð.

Fjórir fram­bjóð­endur hafa dregið fram­boð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar til­kynnti um fram­boð sitt fyrir viku síðan: Vigfús Bjarni Alberts­son, Bæring Ólafsson, Heimir Örn Hólmars­son og Guð­mundur Franklín Jónsson.

Fréttin var upp­færð klukkan 15:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár