Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ríkisstjórnarflokkarnir græða mikið fylgi á Klaustursmálinu

Sam­an­lagt fylgi þeirra þriggja flokka sem mynda rík­is­stjórn jókst um 8,6 pró­sentu­stig eftir Klaust­urs­málið. Mesta fylg­is­aukn­ingin er hjá Framsókn. Frjáls­lynda stjórn­ar­and­stöðu­blokkin bætir líka við sig.

Í könnun sem MMR birti 21. nóv­em­ber síð­ast­liðin var sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja, Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, 38,9 pró­sent. Það var lægsta sam­an­lagða fylgi þeirra frá því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum 30. nóv­em­ber 2017. Allir flokk­arnir þrír áttu í vand­ræðum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði til að mynda mælst með undir 20 pró­sent fylgi í könnun sem birt­ist í nóv­em­ber, Vinstri græn höfðu tapað 40 pró­sent af fylgi sínu frá kosn­ing­unum og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með ein­ungis 7,5 pró­sent fylgi.

Í nýj­ustu könnun MMR, sem fram­kvæmd var 5-11. des­em­ber 2018, bæta allir stjórn­ar­flokk­arnir við sig. Mestur er við­snún­ing­ur­inn hjá Fram­sókn­ar­flokknum, sem fer úr 7,5 pró­sentum í 12,5 pró­sent. Það er 67 pró­sent aukn­ing á milli kann­anna sem birt­ust með 23 daga milli­bili. Nú er sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna 47,5 pró­sent og jókst um 8,6 pró­sentu­stig. Það er sam­eig­in­leg fylg­is­aukn­ing um 22 pró­sent.

Ástæða þessa er ein­föld: Klaust­urs­málið.

Klausturmálið helmingar fylgið

Þann 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hófu fjöl­miðlar að birta fréttir upp úr upp­töku af sam­tali sex þing­manna, – fjórum úr Mið­flokknum og tveimur úr Flokki fólks­ins – sem tekin var upp á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber. Í sam­tali þing­mann­anna, sem var tekið upp að hluta á meðan að þing­fundur stóð yfir, níð­ast þeir og hæð­ast að nafn­greindu fólki stjórn­málum. Þeir heyr­ast einnig stæra sig að póli­tískum hrossa­kaupum, þing­menn Mið­flokks­ins reyna að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

Þing­­menn­irnir sex sem ræddu saman á fund­inum á Klaustur bar, 20. nóv­­em­ber, voru Sig­­mundur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins , Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, og Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Með þeim voru Karl Gauti Hjalta­­son og Ólafur Ísleifs­­son úr Flokki fólks­ins. Þeir tveir síð­­ast­­nefndu hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins, og Berg­þór og Gunnar Bragi eru farnir í leyfi. Eng­inn þing­­manna hefur sagt af sér, og eng­inn hefur það í hyggju.

Fylgi Mið­flokks­ins gjör­sam­lega hrynur á milli kann­anna. Flokk­ur­inn var á miklu flugi í síð­ustu könnun MMR þar sem fylgi hans mæld­ist 13,1 pró­sent, sem hefði gert Mið­flokk­inn að þriðja stærsta flokki lands­ins ef kosið hefði verið á þeim tíma­punkti. Fylgi flokks­ins hafði aldrei mælst meira.

Nú, í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, mælist fylgið 5,9 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn rétt næði inn á þing ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn, sem stofn­aður var í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga og vann þar glæstan kosn­inga­sigur þegar hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða, það mesta sem nýr flokkur hefur nokkru sinni fengið í fyrstu kosn­ingum sínum í Íslands­sög­unni, hefur aldrei mælst með jafn lítið fylgi í mæl­ingum MMR og nú.

Flokkur fólks­ins fær líka útreið og mælist með 4,2 pró­sent fylgi. Það myndi ekki duga honum til að ná inn manni ef kosið yrði í dag.

Flokk­arnir tveir hafa átt sam­leið í mörgum málum og haldið á lofti sam­bæri­legum áherslum. Saman er þessi blokk flokka, sem hefur legið undir ámæli um að stunda lýð­skrum í ýmsum málum og voru meðal ann­ars flokk­aðir sem popúlista­flokkar í nýlegri úttekt breska stór­blaðs­ins Guardian um ris slíkra í Evrópu, nú með 10,1 pró­sent fylgi. Hún var með 20,7 pró­sent fylgi fyrir 23 dögum síðan. Fylgið hefur því rúm­lega helm­ing­ast.

Framsókn upplifir endurnýjun lífdaga

Sá flokkur sem græðir mest fylgi á Klaust­ur­mál­inu er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Kjör­tíma­bilið hafði verið honum erfitt og fylgið mælst mjög lítið í und­an­förnum könn­unum. Þann 21. nóv­em­ber sögð­ust 7,5 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa hann. Það er ansi langt undir kjör­fylgi, sem var 10,7 pró­sent, þrátt fyrir að nið­ur­staðan í síð­ustu kosn­ingum hafi verið versta nið­ur­staða Fram­sókn­ar­flokks­ins í rúm­lega 100 ára sögu hans.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu var fyrst og fremst upp­gangur Mið­flokks­ins, klofn­ings­flokks fyrr­ver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Bein fylgni var milli vaxtar hans og hnign­unar Fram­sóknar.

Eftir Klaust­urs­málið bætir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við heilum fimm pró­sentu­stigum og mælist með 12,5 pró­sent fylgi. Það sýnir að þorri þess fylgis sem tálg­ast hefur af Mið­flokknum hefur lík­ast til snúið aftur heim til Fram­sóknar.

Þar skiptir miklu máli fram­ganga Lilju D. Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í kjöl­far þess að Klaust­ur­upp­tök­urnar voru gerðar að hluta til opin­berar. Lilja er einn þeirra stjórn­mála­manna sem var mikið rædd, á kyn­ferð­is­legan og niðr­andi hátt, í sam­tali þing­manna Mið­flokks­ins. Á upp­tök­unum heyr­ist Gunnar Bragi meðal ann­ars segja: „Hjólum í hel­vítis tík­ina“ þegar rætt er um Lilju.

Lilja fór í við­tal í Kast­ljósi 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn sem hefur mælst afar vel fyrir þvert á póli­tískar línur. Þar var hún mjög afger­andi í afstöðu sinni gagn­vart fram­ferði Klaust­ur­fólks­ins., sagði tal þeirra vera „algjört ofbeldi“ og að hún væri „ofboðs­lega“ ósátt við það.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, var einn þeirra stjórnmálamanna sem rætt var um á niðrandi hátt á Klausturbar.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, var einn þeirra stjórn­mála­manna sem rætt var um á niðr­andi hátt á Klaust­ur­bar.

Vinstri græn, sem leiða rík­is­stjórn, bæta einnig veru­lega við sig á örfáum vikum. Fylgi flokks­ins mælist nú 12,9 pró­sent en var áður 10,3 pró­sent. Flokk­ur­inn er enn langt frá kjör­fylgi sínu, en hann fékk 16,9 pró­sent í kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Píratar bæta umtalsverðu við sig

Hin blokkin í stjórn­ar­and­stöðu, sú sem skipuð er frjáls­lynd­ari flokkum, nýtur þess líka í nýju könn­un­inni að Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins tapi veru­legu fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar var 36,2 pró­sent í lok nóv­em­ber en er nú 38,9 pró­sent. Í síð­ustu kosn­ingum fékk þessi blokk 28 pró­sent atkvæða. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja hefur því auk­ist um 39 pró­sent á rúmu ári.

Fylgi Við­reisnar stendur nán­ast í stað og mælist 8,5 pró­sent og fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem hefur sjálf þurft að takast á við hneyksl­is­mál tengd núver­andi og fyrr­ver­andi þing­mönnum flokks­ins, bætir lít­il­lega við sig milli kann­ana. Hún myndi fá 16,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag sem myndi gera flokk­inn að næst stærsta flokki lands­ins.

Sá þriðji stærsti yrði hins vegar Píratar, sem á eftir Framsókn eru mestu hástökkvar­arnir frá því að síð­asta könnun MMR var birt. Fylgi flokks­ins hefur risið úr 11,3 í 14,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið undanfarið ár