Sigmundur og Bjarni verða báðir til svara í þinginu á mánudag

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra verða báðir í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi á mánu­dag­inn.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra verða báðir til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi á mánu­dag­inn. Þá kemur þing saman í fyrsta sinn í tvær vikur.

Óvenju­legt er að bæði for­sætis- og fjár­mála­ráð­herra séu til svara á sama þing­fund­inum, þeir skipta því venju­lega á milli þeirra tveggja fyr­ir­spurna­tíma sem eru í hverri venju­legri þing­funda­viku. Nú verða þeir hins vegar báðir til svara og má fast­lega gera ráð fyrir því að þær fimm fyr­ir­spurnir sem kom­ast að í fyr­ir­spurn­ar­tím­anum muni skipt­ast á milli þeirra tveggja og muni snú­ast um skatta­skjóls­mál.

Lítið vitað um framhaldið

Stjórn­ar­and­staðan ákvað eftir sam­eig­in­legan fund for­yst­unnar og þing­flokks­fundi í kjöl­farið fyrr í vik­unni að leggja fram til­lögu um þing­rof og kosn­ingar. Erfitt er að segja til um hvernig vor­þingið verður, en ljóst er að Wintris-málið og tengd mál munu taka mik­inn tíma frá þing­inu á næst­unni.

145 frum­vörp til laga eru á end­ur­skoð­uðum lista rík­is­stjórn­ar­innar yfir frum­vörp sem hún ætl­aði sér að koma fram með á þessu þingi, en 61 frum­varp var komið inn í þingið áður en það fór í páska­leyfi. Rík­is­stjórnin afgreiddi 20 mál á síð­ustu tveimur fundum sínum fyrir páska­frí og nokkur til við­bótar í þess­ari viku.

Fram að þessum tveimur fundum fyrir páska hafði rík­is­stjórnin afgreitt 11 frum­vörp eftir jól. 61 frum­varp hefur komið inn í þingið það sem af er þessum vetri, og þar af eru 34 orðin að lögum. 20 eru til umfjöll­unar í nefndum, fimm bíða fyrstu umræðu og tvö bíða þriðju og síð­ustu umræðu.

26 þing­funda­dagar eru eftir af þing­inu miðað við starfs­á­ætlun þings­ins. Samkvæmt áætl­un­inni á þingið að fara í frí í lok maí. Það má þó ljóst vera að þing­rof­s­til­laga og Wintris málið allt mun geta tafið þetta veru­lega.

Annað kvöld, kvöldið fyrir þing­fund, mun Kastljós svo birta umfjöllun sína um eignir Íslend­inga í þekktum skatta­skjólum. Umfjöll­unin er unnin í sam­starfi við Reykja­vik Media og ICIJ, alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna. Ljóst er að sú umfjöllun mun varpa enn frekara ljósi á málið og bæta við það enn fleiri vinklum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár