Ríkissjóður ætlar að lána Vaðlaheiðargöngum allt að 4,7 milljarða í viðbót

Ríkið sam­þykkti að lána 8,7 millj­arða til Vaðla­heið­ar­ganga þegar ráð­ist var í verk­efnið. Á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun var sam­þykkt að hækka heim­ild til lána til gerðar gang­anna um 4,7 millj­arða. Ráðist verður í úttekt til að kanna hvað fór úrskeiðis.

Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hafa tafist mikið og eru komnar langt fram úr fjárheimildum.
Fram­kvæmdir við Vaðla­heið­ar­göng hafa taf­ist mikið og eru komnar langt fram úr fjár­heim­ildum. Mynd: vadlaheidi.is

Rík­is­sjóður mun koma áfram að gerð Vaðla­heið­ar­ganga sem lán­veit­andi eða með öðrum hætti. Fyrir Alþingi verður lagt eins fljótt og unnt er frum­varp til breyt­inga á lögum um Vaðla­heiða­göng sem kveða á um að fjár­hæða­heim­ild lag­anna veðri hækkuð um allt að 4,7 millj­arða króna miðað við verð­lag í lok árs 2016. Auk þess verði gert úttekt á Vaðla­heið­ar­ganga­verk­efn­inu og því sem fór úrskeiðis. Þetta kemur fram í bókun sem sam­þykkt var á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Íslenska ríkið ákvað á árunum 2009 og 2010 að kanna að ráð­ist yrði í gerð Vaðla­heið­ar­ganga í einka­fram­kvæmd. Leitað var til íslenskra líf­eyr­is­sjóða um að koma að fjár­mögnun verk­efn­is­ins en ekki náð­ist saman um slíkt. Því ákvað þáver­andi rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna að verk­efnið yrði fjár­magnað af rík­is­sjóði til skamms tíma en síðar yrði leitað á almennan markað að lang­tíma­fjár­mögnun. Verk­efnið átti að verða aðlandi fyrir fjár­festa m.a. vegna þess að fjár­mögn­unin átti að verða rekstr­ar­lega sjálf­bær með inn­heimtu veggjalds.

Í júní 2012 sam­þykkti Alþingi svo lög um gerð jarð­ganga undir Vaðla­heiði. Í þeim fólst að rík­is­sjóður gat lánað allt að 8,7 millj­arða króna til verk­efn­is­ins, á því verð­lagi sem var í lok árs 2011. Vextir á lán­unum voru allt að 3,7 pró­sent og átti það fé að duga fyrir stofn­kostn­aði. Sérstakt félag var stofnað utan um fram­kvæmd­ina, Vaðla­heið­ar­göng ehf. Meiri­hluta­eig­andi þess félags er Greið leið ehf. í eigu Akur­eyr­ar­bæjar, fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins KEA og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga. Minni­hluta­eig­andi í félag­inu er Vega­gerðin. Gert var ráð fyrir að fram­kvæmdum yrði lokið í árs­lok 2016 og að ganga­gröftur myndi klár­ast í sept­em­ber 2015.

Mikil vand­ræði hafa hins vegar orðið á meðan að á fram­kvæmd­inni hefur staðið vegna erf­iðra jarð­laga og inn­rennsli á bæði heitu og köldu vatni. Betur hefur gengið að und­an­förnu og sam­kvæmt minn­is­blaði sem Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram í rík­is­stjórn á í morgun var búið að klára um 97 pró­sent af greftri gang­anna í lok mars. Þegar er búið að grafa 7 kíló­metra af 7,2 kíló­metra heild­ar­lengd þeirra.

Ríkisstjórn samþykkir frekari lánveitingar

Í mars var greint frá því að það vant­aði umtals­vert fé til að klára gerð Vaðla­heið­ar­ganga. Benedikt sagði þá að hann myndi beita sér fyrir því að ríkið myndi lána meira fé í fram­kvæmd­ina en að hann teldi ekki úti­lokað að eig­endur Greiðrar leiðar kæmu að slíkri fjár­mögnun. Þeir höfn­uðu því hins vegar algjör­lega, en þeir hafa þegar lagt fram 236 millj­ónir króna í eigið fé inn í félagið.Þess vegna hefur rík­is­stjórnin nú ákveðið að hækka láns­heim­ild Vaðla­heið­ar­ganga um allt að 4,7 millj­arða króna. Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem lagt var fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun, segir : „Gera má ráð fyrir að sú óvissa sem ein­kennt hefur ganga­gröft­inn hverfi að mestu við gegn­umslagið sem verður vænt­an­lega á næstu vikum. Í upp­haf­legum áætl­unum félags­ins var gert ráð fyrir að ófyr­ir­séður kostn­aður gæti numið allt að 7% af fram­kvæmda­á­ætlun og var það hlut­fall byggt á upp­lýs­ingum frá Vega­gerð­inni. Áætlaður umfram­kostn­aður vegna fyrr­greindra tafa nemur hins vegar um 44% af áætl­uðum stofn­fram­kvæmda­kostn­aði miðað við verð­lag upp­haf­legrar lán­veit­ingar. Við­bót­ar­fjár­þörf nemur því um 4.7 millj­örðum króna m.v. verð­lag og stöðu láns í lok árs 2016.

Fyrir liggur að hlut­hafar Vaðla­heið­ar­ganga hf. hafa á aðal­fundi félags­ins hafnað því að leggja félag­inu til aukið hlutafé til að standa undir fram­an­greindum auka­kostn­aði. Ljóst er að verði fram­kvæmd­inni ekki að fullu lokið kann rík­is­sjóður sem lán­veit­andi að skað­ast auk þess sem göngin sem nán­ast eru full­grafin munu ekki skila þeim sam­fé­lags­lega ávinn­ingi sem stefnt var að. Að mati fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er hag­felld­ast fyrir ríkið að verk­efn­inu verði lokið og það verði síðan skoðað í fram­hald­inu hvernig best verður að haga fram­tíð­ar­fjár­mögnun þeirra eftir að öll óvissa er frá og reynsla verður kom­inn á rekstur þeirra.

Rík­is­á­byrgða­sjóði var af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu falið að gera umsögn um slíka við­bót­ar­lán­veit­ingu til félags­ins til að unnt sé að ljúka verk­efn­inu. Í umsögn sjóðs­ins kemur í meg­in­at­riðum fram að hann telji rétt úr því sem komið er að sam­þykkja slíkt við­bót­ar­lán til félags­ins.

Ljóst er að öll óvissa um greiðslu­getu félags­ins mun hafa áhrif á verk­taka fram­kvæmd­ar­innar. Gera má ráð fyrir að þeir muni sjá sig knúna til að bregð­ast við slíkri stöðu með ein­hverjum hætti telji þeir hættu á að ekki náist að full­fjár­magna það sem eftir stendur af verk­inu.

Til að unnt sé að lána félag­inu umrædda fjár­hæð þarf að breyta fjár­hæð­ar­mörkum laga nr. 48/2012, um heim­ild til að fjár­magna gerð umræddra ganga undir Vaðla­heiði. Við lög­fest­ingu breyt­ing­anna mun ríkið geta gert við­auka­samn­ing við félagið um slíka lán­veit­ingu.“

Í sam­ræmi við þetta sam­þykkti rík­is­stjórnin að leggja fram frum­varp til að hækka mögu­lega lán­veit­ingu til verk­efn­is­ins um 4,7 millj­arða króna og að gera úttekt á verk­efn­inu til að kanna hvað hafi farið úrskeiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár