Ríkið dæmt til að greiða Hreiðari Má miskabætur

Íslenska rík­inu hefur verið gert að greiða Hreiðari Má Sig­urðs­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings 300 þús­und krónur í miska­bætur auk drátt­ar­vaxta vegna hler­ana sem fram fóru á síma hans.

Íslenska rík­inu hefur verið gert að greiða Hreiðari Má Sig­urðs­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings 300 þús­und krónur í miska­bætur auk drátt­ar­vaxta vegna hler­ana sem fram fóru á síma hans sam­kvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem kveð­inn var upp í dag.

[links]Hreiðar höfð­aði einka­mál gegn rík­inu vegna ólög­mætra hler­ana og órétt­látrar máls­með­ferðar og fór hann fram á 10 millj­ónir í bætur.

Hreiðar byggði kröfu sína á nokkrum máls­á­stæðum. Í fyrsta lagi á því að úrskurð­irnir hafi verið kveðnir upp á röngu varn­ar­þingi. Í öðru lagi á því að úrskurður hafi verið kveð­inn upp á heim­ili dóm­ara og án þess að skrif­leg beiðni lægi fyrir. Í þriðja lagi á því að efn­is­leg skil­yrði síma­hlust­unar hafi ekki verið upp­fyllt þegar heim­ildir hafi verið veittar á grund­velli óskýrra laga­heim­ilda. Í fjórða lagi á því að með úrskurð­unum og eft­ir­far­andi hlust­unum hafi að engu verið hafður réttur stefn­anda sem sak­born­ings til að neita að tjá sig um sak­ar­efni. Loks byggði hann á því að hlustað hafi verið á og ekki eytt jafn­harðan sam­tölum sem hann hafi átt við verj­anda sinn.

Í nið­ur­stöðu dóms­ins kemur fram að sím­hlustun lög­reglu sem hófst skömmu eftir að Hreiðari hafði verið kynnt rétt­ar­staða sak­born­ings við yfir­heyrslu vegna þeirra brota sem lágu sím­hlust­un­inni til grund­vallar hafi brotið gegn rétti hans til rétt­látrar máls­með­ferðar sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Öðrum máls­á­stæðum var hafnað.

Fallist var á kröfu rík­is­ins um að máls­kostn­aður sé felldur niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár