Píratar gera ekki tilkall til forsætisráðuneytisins

Birgitta Jónsdóttir ræddi við fjölmiðla eftir fund sinn með forseta Íslands.
Birgitta Jóns­dóttir ræddi við fjöl­miðla eftir fund sinn með for­seta Íslands. Mynd: Birgir Þór

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata á Alþingi, segir Pírata ekki gera til­kall til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins jafn­vel þó flokk­ur­inn hafi nú form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð úr vasa Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta Íslands. Birgitta lýsti mark­miðum sínum fyrir fjöl­miðlum eftir stuttan fund með Guðna á Bessa­stöðum síð­degis í dag.

Líklegt er að nú hefj­ist við­ræður Pírata, Við­reisnar, Bjartar fram­tíðar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna á ný en upp úr þeim við­ræðum slitn­aði þegar Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hafði umboð til stjórn­ar­mynd­unar. Þá þótti Viðreisn það vera óyf­ir­stíg­an­legt verk­efni að sætta ólík sjón­ar­mið milli þess­ara fimm flokka.

Birgitta sagði að Katrín og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefðu hist í dag og þess mætti vænta að hægt væri að koma þessum flokkum að samn­inga­borð­inu á ný. Katrín hefur áður opin­berað efa­semdir sínar um að þessir fimm flokkar geti unnið saman, eftir að upp úr við­ræð­unum undir hennar for­ystu slitn­aði, og spurt hvað hafi breyst í afstöðu Við­reisnar.

Jafnvel þó Birgitta hafi mætt ein til Bessa­staða þá segir hún að þrír full­trúar Pírata hafi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið; það eru hún, Smári McCarty og Einar Aðal­steinn Brynj­ólfs­son. Guðni hafi óskað eftir því að hún kæmi ein til fundar við sig.

Þing­flokkur Pírata kemur nú saman og mun halda áfram sam­tölum við for­ystu­menn flokka á Alþingi. Birgitta segir að Píratar geri ekki til­kall til for­sætis í rík­is­stjórn. Heldur sé mik­il­vægt að sætta ágrein­ings­mál áður en rætt sé um stóla. Það sé skoðun hennar að sá verði for­sæt­is­ráð­herra sem helst sé lík­legur til þess að geta sætt ólík sjón­ar­mið.

Birgitta sagði eftir fund sinn með for­set­anum að ­mik­il­vægt sé að hægt verði að þjóð­ar­sátt­ar­tón því fram undan séu mjög erfið mál sem muni koma til kasta stjórn­mála­manna að leysa. Hún segir að ef hægt verði að ná þessum flokkum sem eru lengst til vinstri og lengst til hægri að þá séum við komin með „litla þjóð­stjórn“. Hún segir einnig að Píratar muni ekki vilja stjórna við­ræðum við borð­senda, heldur ræða saman við hring­borð. Það sé í anda þeirra stjórn­ar­hátta sem Píratar til­einka sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár