Virðing fyrir lesandanum óháð aldri

Rán Flygenring hlaut barna- og unglinga­bóka­verðlaun Norður­landaráðs fyrir mynda­bókina Eldgos. Hún segir það „brjál­æðislega gaman“ að hafa hlotið svona stór og virt verðlaun en það hafi sömuleiðis komið henni dálítið á óvart. Rán er marg­verð­launaður höfundur og teiknari.

Sjónrænn sprengikraftur
Sjónrænn sprengi­kraftur Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs segir að mynda­bók Ránar Flygenring sé full af sjón­rænum sprengi­krafti um áhrifin sem villt og óhamin nátt­úra hefur á fólk. Mynd: Magnus Fröderberg, norden.org

„Mér fannst þetta mjög óvænt því ég upplifi bókina mína sem svo brjálaða, villta, gróteska og fyndna,“ segir Rán Flygenring marg­verð­launaður teiknari og höfundur um að hafa hlotið barna- og unglinga­bókmennta­verðlaun Norður­landaráðs og bætir við: „Það er geggjað mikill heiður að fá þessi verðlaun. Þetta er alveg brjál­æðislega gaman. Ég svíf um á bleiku skýi.“ 

Bókin sem hún vísar í sem villta, brjálaða og gróteska heitir Eldgos og er myndabók sem kom út í fyrra hjá Angústúru forlagi. Hún segir að orðið „gróteskt“ lýsi tilfinningunni sem hún upplifir þegar hún sjálf opnar bókina. „Hún er gróf og villt og það er svo mikið í gangi og teikningarnar eru svolítið úti um allt. Þannig hugsa ég um gróteskt,“ segir hún og hikar um stund. 

„Svo skil ég núna að gróteskt og villt passar bara mjög vel við eldgos. Það er einhver sprengi­kraftur og ekkert sem heldur aftur af honum. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár