Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þriðjungur þjóðar ekki í þjóðkirkjunni

Hlutfall lands­manna sem er skráð í þjóð­kirkj­una hefur aldrei verið lægra. Í síð­asta mán­uði fór ein­ungis þriðja hver hjóna­vígsla á Íslandi fram innan þjóð­kirkj­unnar. Meiri­hluti þjóð­ar­innar er fylgj­andi aðskiln­aði ríkis og kirkju.

Í stjórn­­­ar­­skrá Íslands segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Auk þess er í gildi hið svo­­kall­aða kirkju­jarð­­ar­­sam­komu­lag frá árinu 1997, sem í felst að þjóð­­kirkjan afhenti rík­­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun presta og starfs­­manna Bisk­­ups­­stofu.

Á grunni þessa er þjóð­kirkjan á fjár­lögum og fær umtals­verða fjár­muni úr rík­is­sjóði. Frá árinu 1998 nemur sú upp­hæð 42 millj­örðum króna.

Af fjár­lögum er greitt fram­lag til Bisk­­ups Íslands, í Kirkju­­mála­­sjóð og Jöfn­un­­ar­­sjóð sókna.

Sam­tals er áætlað að þessi upp­­hæð verði 2.830 millj­­ónir króna í ár. Til við­­bótar fær þjóð­­kirkjan greidd sókn­­ar­­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­­hæð verði yfir 1,7 millj­arðar króna í ár.

Í nýsam­þykktum fjár­auka­lögum vegna árs­ins 2018 var fjár­heim­ild til trú­mála hækkuð um 820 millj­ónir króna. Þessi hækkun skýrist ann­ars vegar af því að fram­lag til þjóð­kirkj­unnar verður aukið um 857 millj­ónir króna og hins vegar lækka fram­lög vegna sókn­ar­gjalda um 37 millj­ónir króna vegna end­ur­mats á fjölda ein­stak­linga í skráðum trú­fé­lögum. Því má ætla að sam­an­lagður kostn­aður þjóð­ar­innar á árinu 2018 vegna rekstur þjóð­kirkj­unnar verði tæp­lega 5,5 millj­arðar króna.

„Óendanlegur“ kostnaður

Fram­lagið til þjóð­kirkj­unnar er vegna hins svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags milli ríkis og kirkju sem gert var 10. jan­úar 1997. Í því var samið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti mundi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi og fleira.

Tekist var á um kirkju­jarð­ar­sam­komu­lagið á þingi í nóv­em­ber. Þar sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, að samið hefði verið um greiðslur til kirkj­unnar um ókomna tíð. Verð samn­ing­anna væri raun­veru­lega táknað með tölu­stafnum átta á hlið. „Kirkjuj­arð­irn­ar eru því bók­staf­lega óend­an­lega dýr­ar,“ sagði Helgi. Hann bætti því við að samn­ing­ur­inn væri hroða­legur.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var til svars og sagði það mik­il­vægt að ríkið stæði við gerða samn­inga. Það myndi þurfa „ein­hverja risa­stóra upp­hæð til að gera upp fram­tíð­ina“ ef breyta ætti samn­ingnum. Skömmu síðar ávarp­aði hann kirkju­þing. og sagði meðal ann­ars að lítil sann­girni væri í mál­flutn­ingi sumra þeirra sem hæst tala um aðskilnað ríkis og kirkju. „Oft virð­ist manni sem mál­flutn­ingur af þessu tagi stafi einkum frá mjög ungu fólki, sem ekki hefur lent í neinum áföllum og hefur ekki séð það starf sem kirkjan vinnur við sálu­sorgun og ýmis konar félags­þjón­ust­u.“

Fækkar á hverju ári

Fram hjá því verður þó vart litið flótti stendur yfir úr þjóð­kirkj­unni. Frá árinu 2009 hefur með­­­limum þjóð­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Alls hefur þeim fækkað um 20.164 frá þeim tíma og ekk­ert af þeirri hröðu fjölgun íbúa sem verið hefur á land­inu síðan þá – lands­menn eru nú 36.252 fleiri en í byrjun árs 2009 – hefur skilað sér til þjóð­kirkj­unn­ar.

Þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn voru 232.672 lands­menn skráðir í þjóð­kirkj­una og hafði fækkað um 2.419 á einu ári. Alls eru 65,4 pró­sent þjóð­ar­innar skráð í kirkj­una, sem þýðir að rúm­lega einn þriðji hluti þeirra sem búa á Íslandi eru ekki í henni. Hlutfall þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hefur aldrei verið lægra.

Alls standa 122.948 manns utan þjóð­kirkj­unnar. Fjöldi þeirra sem kjósa að gera slíkt er nú tvö­falt hærri en fyrir tæp­lega ára­tug síðan.

Þá eru merki um að þjóðin sé að nota þjón­ustu kirkj­unnar í minna mæli en áður. Í nýlegri frétt Þjóð­skrár Íslands kom fram að rúm­lega helm­ingur þeirra lands­manna sem gengu í hjóna­band í nóv­em­ber­mán­uði, eða 50,4 pró­sent, gerðu slíkt hjá sýslu­manni. Einungis þriðj­ungur þeirra sem gifti sig í þeim mán­uði gerði það í þjóð­kirkj­unni.

Í þeirri frétt kom einnig fram að hlutur Þjóð­kirkj­unnar í hjóna­vígslum hafi farið hratt minnk­andi um ára­bil. Um ald­ar­mótin var hlutur hennar í slíkum 71 pró­sent en á árinu sem senn fer að ljúka er hann kom­inn niður fyrir 50 pró­sent.

Meirihluti þjóðar hlynntur aðskilnaði

Þá liggur fyrir að meiri­hluti hefur verið fyrir því á meðal þjóð­ar­innar frá árinu 2009 að kirkjan og ríkið verði aðskilin. Í þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var 23. októ­ber síð­ast­lið­inn, kom fram að meiri­hluti Íslend­inga, eða 54 pró­sent, er hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju.

Þar kom líka fram að þriðj­ungur þjóð­­ar­innar ber mikið traust til þjóð­­kirkj­unn­­ar, sem er tíu pró­­sent­u­­stigum færri en sögð­ust bera mikið traust til hennar ári áður. Þeir sem treysta þjóð­­kirkj­unni eru nú tæp­­lega helm­ingi færri en gerðu það árið 1999.

Alls sögð­ust 39 pró­­sent lands­­manna bera lítið traust til þjóð­­kirkj­unn­­ar. Mjög skýr munur var á afstöðu til hennar eftir aldri. Þannig sögð­ust ein­ungis 17 pró­­sent Íslend­inga á aldr­inum 18-30 ára að þeir beri mikið traust til þjóð­­kirkj­unnar en 55 pró­­sent þess ald­­ur­s­hóps treystir henni ekki. Traustið fer svo vax­andi upp alla ald­­ur­s­hópa og nær hámarki hjá 60 ára og eldri þar sem 47 pró­­sent segj­­ast treysta kirkj­unni en 26 pró­­sent treysta henni ekki.

Í könn­un­inni kom líka fram að mik­ill munur er á afstöðu til kirkj­unnar eftir því hvaða stjórn­­­mála­­flokk við­kom­andi kýs. Kjós­­endur Sjálf­­stæð­is­­flokks (52 pró­­sent segj­­ast treysta þjóð­­kirkj­unni) og kjós­­endur Mið­­flokks­ins (48 pró­­sent segj­­ast treysta þjóð­­kirkj­unni) skáru sig úr hvað varðar traust á meðan að kjós­endur Pírata (71 pró­­sent van­­traust), Við­reisnar (52 pró­­sent van­­traust) og Sam­­fylk­ingar (50 pró­­sent van­­traust) voru algjör­­lega á hinum pólnum hvað varðar afstöðu til þjóð­­kirkj­unn­­ar.

Þjóð­ar­púls­inn mældi einnig ánægju með störf bisk­­ups Íslands. Hún hefur aldrei verið minni en ein­ungis 14 pró­­sent aðspurðra sagð­ist ánægt með störf henn­­ar. Raunar hefur ánægja með störf bisk­­ups ekki mælst jafn lág á þeim rúmum tveimur ára­tugum sem hún hefur verið mæld hjá Gallup. Alls sögð­ust 44 pró­­sent aðspurðra vera óánægðir með störf bisk­­ups.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið undanfarið ár