Meirihluti vill aðskilnað ríkis og kirkju og traust á biskup aldrei mælst lægra

Einungis þriðj­ungur þjóð­ar­innar ber mikið traust til þjóð­kirkj­unnar og mik­ill meiri­hluta hennar vill aðskilnað ríkis og kirkju. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks eru hrifn­astir af kirkj­unni og bisk­upnum.

Agnes M. Sigurðardóttir mælist með minnst traust allra biskupa frá því að mælingar hófust.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir mælist með minnst traust allra bisk­upa frá því að mæl­ingar hófust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti Íslend­inga er hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem við­fangið er mál­efni þjóð­kirkj­unnar. Alls segj­ast 54 pró­sent lands­manna vera hlynnt aðskiln­aði, um 23 pró­sent hafa ekki mótað sér afstöðu og 23 pró­sent segj­ast alfarið á móti.

[links]Karlar eru hlynnt­ari aðskiln­aði en konur, yngra fólk mun hlynnt­ari en eldra fólk og kjós­endur Pírata, Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna eru mun hlynnt­ari aðskiln­aði en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks. Þá eru íbúðar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mun hlynnt­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en íbúar lands­byggð­ar­innar og stuðn­ingur við aðskilnað eykst eftir því sem mennt­un­ar­stig er hærra.

Þjóð­ar­púls­ins mældi einnig ánægju með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur, bisk­ups Íslands. Hún hefur aldrei verið lægra en ein­ungis 14 pró­sent aðspurðra sagð­ist ánægt með störf hennar. Raunar hefur ánægja með störf bisk­ups ekki mælst jafn lág á þeim rúmum tveimur ára­tugum sem hún hefur verið mæld hjá Gallup. Alls sögð­ust 44 pró­sent aðspurðra vera óánægðir með störf bisk­ups.

Þriðjungur treystir þjóðkirkjunni

Einungis 33 pró­sent þjóð­ar­innar ber mikið traust til þjóð­kirkj­unnar. Það er tíu pró­sentu­stigum færri en sögð­ust bera mikið traust til hennar í fyrra. Þeir sem treysta þjóð­kirkj­unni eru nú tæp­lega helm­ingi færri en gerðu það árið 1999.

[adspot]Alls segj­ast 39 pró­sent lands­manna bera lítið traust til þjóð­kirkj­unnar. Mjög skýr munur er á afstöðu til hennar eftir aldri. Þannig segj­ast ein­ungis 17 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 18-30 ára að þeir beri mikið traust til þjóð­kirkj­unnar en 55 pró­sent þess ald­urs­hóps treystir henni ekki. Traustið fer svo vax­andi upp alla ald­urs­hópa og nær hámarki hjá 60 ára og eldri þar sem 47 pró­sent segj­ast treysta kirkj­unni en 26 pró­sent treysta henni ekki.

Lítill munur er á afstöðu fólks eftir tekjum en traustið til Þjóð­kirkj­unnar er ívið meira á lands­byggð­inni (38 pró­sent) en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (30 pró­sent).

Mikill munur á afstöðu kjósenda flokka

Mikill munur er hins vegar á afstöðu til kirkj­unnar eftir því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi kýs. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks (52 pró­sent segj­ast treysta þjóð­kirkj­unni) og kjós­endur Mið­flokks­ins (48 pró­sent segj­ast treysta þjóð­kirkj­unni) skera sig úr hvað varðar traust. Kjós­endur Pírata (71 pró­sent van­traust), Við­reisnar (52 pró­sent van­traust) og Sam­fylk­ingar (50 pró­sent van­traust) eru algjör­lega á hinum pólnum hvað varðar afstöðu til þjóð­kirkj­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár