Björt framtíð og Flokkur fólksins með jafnmikið fylgi

Björt fram­tíð mælist með 3,2% fylgi og Viðreisn 5%. 31,4% aðspurðra segj­ast styðja rík­is­stjórn­ina, sem er minna fylgi en þessi rík­is­stjórn hefur mælst með hingað til.

Flokkar þeirra Óttarrs Proppé og Benedikts Jóhannessonar ríða ekki feitum hesti frá ríkisstjórnarsamstarfinu, að minnsta kosti um þessar mundir.
Flokkar þeirra Óttarrs Proppé og Bene­dikts Jóhann­es­sonar ríða ekki feitum hesti frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, að minnsta kosti um þessar mundir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins með 25,2 pró­senta fylgi, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. Vinstri græn eru næst­stærsti flokk­ur­inn með 23,4 pró­senta fylgi. Flokk­arnir tveir bera höfuð og herðar yfir aðra stjórn­mála­flokka, en tæpur helm­ingur kjós­enda myndi kjósa þessa tvo flokka ef gengið yrði til kosn­inga í dag.

Píratar mæl­ast með 12,8 pró­senta fylgi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 11,1 pró­sent og Sam­fylk­ingin mælist með 10,6 pró­sent.

Viðreisn mælist með fimm pró­senta fylgi, og Björt fram­tíð mælist með 3,2 pró­sent. Flokkur fólks­ins mælist með sama fylgi og Björt fram­tíð, 3,2 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar milli mæl­inga, nú segj­ast 31,4 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina en 34,5 pró­sent sögðu það í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár