Slitin í sundur þvert á ráðleggingar Jännäri

Finnskur sér­fræð­ingur, sem vann skýrslu um fjár­mála­eft­ir­lit á Íslandi eftir banka­hrunið, mælti með því að FME og Seðla­bank­inn myndu hið minnsta heyra undir sama ráðu­neyti. Þannig hefur málum verið háttað alla tíð síðan, eða þangað til í jan­úar.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Karlo Jännäri, sér­fræð­ingur sem var fengin til Íslands skömmu eftir banka­hrunið til að greina fram­kvæmd og eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi hér­lendis, sagði það hafa verið mik­inn galla að Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefðu ekki heyrt undir sama ráðu­neyti. Í skýrslu sem kann skil­aði kom fram að sam­eina ætti þær stofn­anir hið fyrsta, í það minnsta færa þær undir sama ráðu­neyti.

Á árinu 2009 var stofnað sér­stakt efna­hags- og við­skipta­ráðu­neyti og yfir­stjórn bæði Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits færð undir það ráðu­neyti. Síðar voru báðar stofn­an­irnar færðar undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og því hefur ráð­gjöf Jännäri verið fylgt að mestu und­an­farin ár. Þ.e. að Seðla­bank­inn og Fjár­mála­eft­ir­litið hafa heyrt undir sama ráðu­neyti. Á þessu var breyt­ing í jan­úar þegar mál­efni Seðla­bank­ans voru færð yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Að sögn Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra var það gert til að tryggja sjálf­stæði Seðla­bank­ans.

Þar með var yfir­stjórn yfir Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits slitin aftur í sundur, þvert á þær ráð­legg­ingar sem Jännäri hafði veitt eftir banka­hrunið.

Sérfræðingar kallaðir til

Íslenska efna­hags­kerfið er ekki fyrsta ríkið sem farið hefur á hlið­ina, þótt umfangið hafi verið meira hér­lendis en hjá flestum öðrum sem hafa gengið í gegnum slíkt. Þegar hið risa­stóra verk­efni að end­ur­skipu­leggja hag­kerfið lá fyrir var því hægt að horfa reynslu og árangur ýmissa ann­arra ríkja til að finna upp­skriftir að vel­gengni eða víti til varn­aðar.

Margir sér­fræð­ingar litu til Norð­ur­landa­þjóð­anna, einkum Finna og Svía, og hvernig þær höfðu brugð­ist við sinni banka­kreppu snemma á tíunda ára­tugnum.

Sér­fræð­ingar frá þeim löndum komu hingað til lands til að aðstoða stjórn­völd fyrir til­stuðlan Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, sem hafði þá tekin Ísland inn í svo­kall­aða efna­hags­á­ætlun, sem í fólst að sjóð­ur­inn lán­aði félausu rík­inu um 250 millj­arða króna auk þess sem hin Norð­ur­löndin og Pólland tryggðu Íslandi aðgang að allt að 150 millj­örðum króna í lánsfé. Á móti skuld­batt Ísland sig til að grípa til marg­hátt­aðra aðgerða til að ná efna­hags­legum stöð­ug­leika eftir það sem Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafði kallað „hinn full­komna storm“ sem geys­aði hér í októ­ber 2008. Í áætl­un­inni fólst end­ur­reisn fjár­mála­kerfis, að aðlaga rík­is­fjár­mál að gjör­breyttum aðstæðum og end­ur­nýja aðgang rík­is­ins að alþjóð­legum mörk­uðum. Þá átti að vinna að lausn á skulda­vanda íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja og end­ur­reisa traust á íslenskt efna­hags­líf.

Fjármálaeftirlit og Seðlabankinn eiga að vera saman

Til að ná síð­ast­nefnda mark­mið­inu, að end­ur­reisa traust á íslenskt efna­hags­líf, var Finninn Kaarlo Jännäri fengið til að aðstoða íslend­inga við að fara yfir reglu­verk og fjár­mála­eft­ir­lit hér­lendis. Jännäri var for­stöðu­maður fjár­mála­eft­ir­lits­ins í Finn­landi á árunum 1996 til 2007 og mjög reyndur banka­eft­ir­lits­maður sem þekkti slíkt breyt­inga­ferli mjög vel. Hann hafði líka verið for­stöðu­maður fjár­mála­mark­aða­deildar finnska seðla­bank­ans og verið bæði for­stjóri og stjórn­ar­for­maður SKOP-bank­ans eftir að hann var tek­inn yfir af finnskum stjórn­völdum snemma á tíunda ára­tugnum. Jännäri hafði auk þess sinnt marg­hátt­aðri ráð­gjöf fyrir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, OECD og Seðla­banka Evrópu.

Í áætlun stjórn­valda og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins stóð að Jännäri myndi „einkum beina sjónum að reglum um lausa­fjár­stýr­ingu, lán til tengdra aðila, stórar ein­stakar áhættur, kross­eigna­tengsl og hags­muna­legt sjálf­stæði eig­enda og stjórn­enda.“

Jännäri skil­aði skýrslu í lok mars 2009. Þar fjall­aði hann meðal ann­ars sér­stak­lega um fram­kvæmd og eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi hér­lendis. Hann sagði galla á þeim þáttum. Þar bæri hæst aðskiln­aður Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins en Jännari taldi að sam­eina ætti þær stofn­anir hið fyrsta, í það minnsta færa þær undir sama ráðu­neyti.

Hann sagði mik­inn galla hafa verið fólg­inn í því fyrir hrun að Seðla­bank­inn heyrði undir for­sæt­is­ráðu­neytið og Fjár­mála­eft­ir­litið undir við­skipta­ráðu­neytið en það fæli það í sér að lítil sam­skipti væru á milli þess­ara stofn­ana sem þó þyrftu að hafa náið sam­ráð.

Í kjöl­farið bjó rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur til nýtt ráðu­neyti, efna­hags- og við­skipta­ráðu­neytið. Ráðu­neytið tók við verk­efnum á sviði efna­hags­mála úr for­sæt­is­ráðu­neyti og fjár­mála­ráðu­neyti, þar með talið yfir­stjórn Seðla­banka Íslands og Hagstofu Íslands. Starf­semi efna­hags­skrif­stofu for­sæt­is­ráðu­neytis flutt­ist til ráðu­neyt­is­ins og hluti af efna­hags­skrif­stofu fjár­mála­ráðu­neytis. Þá flutt­ust mál­efni sem varða bók­hald, end­ur­skoð­endur og árs­reikn­inga til ráðu­neyt­is­ins.

Ráðu­neytið erfði jafn­framt flest verk­efni við­skipta­ráðu­neyt­is­ins, meðal ann­ars yfir­stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, Einka­leyfa­stofu og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Ákvörð­unin byggði á til­lögum Jännäri.

Ráðgjöf fylgt

Þann 1. sept­em­ber 2012, nokkrum mán­uðum fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013, var fjár­mála­ráðu­neyt­inu breytt í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti. Verkefni á sviði efna­hags­mála, þar með talið yfir­stjórn yfir Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­liti, flutt­ist yfir í það ráðu­neyti. Það skipu­lag hélst síðan eftir stjórn­ar­skiptin vorið 2013, þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við völdum.

Í jan­úar, þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar tók við völdum á Íslandi, undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar, varð breyt­ing á. Málefni Seðla­bank­ans voru færð frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar með var yfir­stjórn yfir Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits slitin aftur í sundur, þvert á þær ráð­legg­ingar sem Jännäri hafði veitt eftir banka­hrunið.

Kjarninn leit­aði eftir skýr­ingum á þessum breyt­ingum hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í febr­úar. Í svari þess kom fram að rökin fyrir flutn­ingnum fælust í því að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans væri æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins. Náin tengsl væru milli fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­bank­ans á ýmsum sviðum. „Þar má nefna fjár­hags­leg sam­skipti Seðla­banka og rík­is­sjóðs, geng­is­mál og nú á síð­ustu árum losun fjár­magns­hafta, sam­skipti um efna­hags­mál og sam­skipti við láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki og alþjóða­stofn­an­ir. Rökin fyrir flutn­ingi mál­efna Seðla­bank­ans yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fel­ast í því að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans sé æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins.“

Fyrrverandi samherjar takast á

Menn­irnir tveir sem mynd­uðu saman rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2013, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son, tók­ust á um þessi mál í þing­inu í gær.

Sig­mundur Davíð spurði Bjarna þar um þær breyt­ingar sem gerðar voru hjá nýrri rík­is­stjórn að færa mál­efni Seðla­bank­ans frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Hann vitn­aði í ofan­greint svar Bjarna við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. Sig­mundur Davíð spurði hvenær Bjarni hefði upp­götvað þetta, hvort það hefði verið áður en hann tók við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra eða á með­an, og hvaða hags­munir hefðu orðið ofan á hjá honum sjálfum þegar hags­muna­á­rekstrar hefðu komið upp.

Bjarni svar­aði því til að þetta væru ein rökin fyrir því að færa mál­efni Seðla­bank­ans milli ráðu­neyta. Það væri vegna til­tölu­lega nýrrar laga­breyt­ing­ar, og meðal ann­ars vegna þess að Seðla­bank­inn geti við vissar aðstæður kallað eftir fram­lagi frá rík­inu. Bjarni seg­ist ætla að lyfta upp því hlut­verki for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem hafi með hag­stjórn almennt að gera, og ráða inn sér­fræð­inga í for­sæt­is­ráðu­neytið í þessu skyn­i.

Til stendur að selja þá banka sem voru end­ur­reistir eftir banka­hrunið á næstu miss­erum. Nú standa yfir við­ræður um að kaupa helm­ings­hlut í Arion banka og skrá bank­ann í kjöl­farið á markað. Þeir sem að þeim til­raunum standa eru ann­ars vegar banda­rískir vog­un­ar­sjóðir og hins vegar íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Til við­bótar er það yfir­lýst stefna sitj­andi rík­is­stjórnar að selja allan hlut rík­is­ins í Íslands­banka og stærstan hlut þess í Lands­bank­anum.

Því er þess skammt að bíða, gangi áætl­anir eftir, að bönkum verði aftur stjórnar beint af einka­fjár­festum með önnur mark­mið en hafa verið í fyr­ir­rúmi hjá þeim á end­ur­reisn­ar­tíma íslensks efna­hags­lífs. Og þau lög­mál sem giltu á árunum fyrir hrun verði aftur ofan á á íslenskum fjár­mála­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár