Íslensku krónunni aldrei fleytt að fullu aftur

Bjarni Bene­dikts­son segir að krónan fari lík­lega aldrei aftur á frjálst flot. Því verða höft aldrei afnumin að fullu. Tæki til að hindra vaxta­muna­við­skipti hefur verið tekið í notkun, og virð­ist svín­virka.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að íslensku krón­unni verði lík­lega aldrei fleytt aftur að fullu. Ein af helstu lær­dómum banka­hruns­ins hafi verið að tryggja að fjár­festar geti ekki hagn­ast á vaxta­muna­við­skiptum með krón­una. Bjarni segir að það inn­flæði sem nú streymir til lands­ins sé áskorun. Þetta kemur fram í við­tali við hann á Bloomberg.

Bjarni segir einnig að þegar hann tali um stöð­ug­leika eigi hann við að feta rólegan veg að því að losa um fjár­magns­höft á sama tíma og vextir geti verið lágir, verð­bólga lítil, atvinnu­þátt­taka mikil og Ísland sé sam­keppn­is­hæft. „Við munum ekki vera með fjár­magns­höft líkt og þau sem hafa verið hér frá árinu 2008.[...]En ég held að við verðum heldur ekki með sömu algjör­lega frjálsu fljót­andi krón­una. Það væri ekki skyn­sam­legt.“

Fjár­magns­höft verða því ekki afnumin, þótt að ein­stak­lingar og flest fyr­ir­tæki muni ekki finna jafn mikið fyrir þeim og áður. Í raun munu flestir ekk­ert finna fyrir þeim að viti í sínu dag­lega amstri. En í stað hafta verða sætt tæki sem Seðla­banki Íslands getur beitt til að koma í veg fyrir að áhætta skap­ist í kerf­inu. Slíkt tæki var kynnt til leiks í sumar og bindur vissar teg­undir nýs fjár­magnsinn­streymis með sér­stakri bindi­skyldu.

Búið að stöðva innstreymi

Markmið tæk­is­ins er ein­falt: að koma í veg fyrir að útlenskir spá­kaup­menn gætu hagn­ast gríð­ar­lega á miklum vaxta­mun Íslands og ann­arra landa með til­heyr­andi áhættu sem getur fylgt slíku inn­flæði fjár­magns í örefna­hags­kerfi eins og okkar.

Í stuttu máli þá svín­virk­aði tækið.

Í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans, sem komu út í gær, segir að í kjöl­far þess að Seðla­bank­inn tók tækið í notkun hafi „erlent inn­streymi fjár­magns á inn­lendan skulda­bréfa­markað nán­ast stöðvast.“

Vaxtamunaviðskipti stórsköðuðu Ísland

Það skal eng­inn velkj­ast í vafa um hversu alvar­leg áhætta er fólgin í vaxta­muna­við­skiptum fyrir íslenskt efna­hags­kerfi. Í ein­földu máli snú­ast þau um að er­lendir fjár­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síð­an ­ís­lensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­leg­um ­sam­an­burði. Því gátu fjár­fest­arnir hagn­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­töku sinn­ar. Og ef þeir voru að gera við­skipti með eigin fé þá gát­u þeir auð­vitað hagn­ast enn meira.

Þessi vaxta­muna­við­skipti áttu stóran þátt í að blása upp þá ­bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leit­aði í íslenska skulda­bréfa­flokka var end­ur­lánað til við­skipta­vina íslensku bank­anna og við það ­stækk­aði umfang þeirra gríð­ar­lega. Við hrun, þegar setja þurfti fjár­magns­höft á til að hindra útflæði gjald­eyr­is, voru vaxta­muna­fjár­fest­ingar vel á sjö­unda hund­rað millj­arða króna.

Allt var komið á fullt

Vextir Seðla­banka Íslands lækk­uðu skarpt fyrstu árin eft­ir hrun. Und­an­farin miss­eri hafa þeir hins vegar hækk­að, enda vaxta­hækk­anir hel­sta ­stýri­tæki bank­ans til að halda aftur að verð­bólgu. Stýri­vextir á Íslandi vor til að mynda 5,75 pró­sent frá nóv­em­ber í fyrra og þangað til í gær, þegar þeir voru lækk­aðir niður í 5,25 pró­sent, á sama tíma og þeir eru mjög nálægt núll­inu í mörgum öðrum lönd­um. Þessar vaxta­hækk­anir hafa gert Ísland eft­ir­sókn­ar­verð­ara sem fjár­fest­inga­kost. Vænt­ingar um að losun hafta væri fram undan gerðu einnig mikið til að auka áhuga erlendra fjár­festa á því að ávaxta fé sitt á Íslandi. Losun hafta myndi enda þýða að þeir væru frjáls­ir til að flytja fé sitt aftur heim þegar skulda­bréfa­flokk­arnir sem þeir fjár­fest­u í væru á gjald­daga.

Yfir 50 millj­arðar í rík­is­skulda­bréf

Í fyrra­sumar voru síðan sagðar fréttir af því að vaxta­muna­við­skipt­i væru klár­lega hafin að nýju. Og sam­kvæmt svar­i sem Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, fékk frá­ Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á Alþingi í febr­úar um inn­flæði gjald­eyris á árinu 2015 þá voru þau umtals­verð. Alls vor­u keypt rík­is­skulda­bréf fyrir um 54 millj­arða króna af erlendum aðilum í fyrra. ­Mest var keypt í skulda­bréfa­flokki sem er á gjald­daga 2025, eða fyrir um 21 millj­arða króna. Næst mest var keypt í flokki sem er á gjald­daga 2031, eða ­fyrir um 15,1 millj­arð króna. Nán­ast allar fjár­fest­ingar erlendra aðila í rík­is­skulda­bréfum voru gerðar af lög­að­il­um, ekki ein­stak­ling­um.

Erlendir aðilar virð­ast líka vera búnir að fá áhuga á ís­lenskum hluta­bréf­um. Þeir keyptu slík fyrir um 5,8 millj­arða króna á síð­asta ári. Mestur áhugi var á bréfum í Icelandair (1.031 milljón króna) og Mar­el (1.022 milljón króna). Auk þess keyptu erlendir fjár­festar í HB Granda, Hög­um, Eim­skip og Reitum fyrir 820-848 millj­ónir króna á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár