Sigmundur Davíð eini flokksformaðurinn sem ekki mætti á innsetningu forseta

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, mætti ekki í Alþing­is­húsið í dag þegar fram fór inn­setn­ing nýs for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­es­sonar. Hann sagði í skrif­legu svari til Rík­is­út­varps­ins að hann hafi verið á ferða­lagi og ekki kom­ist.

Sig­mundur Davíð var boð­inn bæði sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og sem for­maður stjórn­mála­flokks. Allir aðrir for­menn flokka mættu við inn­setn­ing­ar­at­höfn­ina, Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Óttarr Proppé for­maður Bjartrar fram­tíðar. Þá var Birgitta Jóns­dóttir frá Pírötum við­stödd, en Píratar hafa ekki for­mann.

Einu fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­arnir sem mættu á athöfn­ina voru þau Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Þor­steinn Pálsson. Davíð Oddsson mætti ekki, og ekki heldur Geir H. Haarde, en hann er búsettur erlendis. Davíð var sem kunn­ugt er keppi­nautur Guðna Th. um for­seta­emb­ættið, en hann hlaut tæp­lega 14% atkvæða í emb­ættið í kosn­ing­unum þann 25. júní síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár