Engin sátt um hver á að borga fyrir hafnargarða

Minja­stofnun Íslands og fram­kvæmda­að­il­arnir á Hafn­ar­torgi fund­uðu í vik­unni um lausn á deil­unni um hafn­ar­garð­ana sem voru skyndi­frið­aðir. Engin sátt er um kostn­að­inn, en reyna á að finna leiðir til að gera þá sýni­lega.

Minja­stofnun Íslands og full­trúar fram­kvæmda­að­il­anna á Hafn­ar­torgi fund­uðu á mið­viku­dag um lausn á deil­unni um hafn­ar­garð­ana á Hafn­ar­torgi.

Ekki náð­ist þó nein sátt um það á þessum fundi hver eigi að bera kostn­að­inn sem hlot­ist hefur af mál­inu, segir Bjarki Þór Sveins­son, lög­maður fram­kvæmda­að­il­anna á torg­inu.

Fyrir nokkrum vikum sendi hann kröfu­bréf á Minja­stofnun fyrir hönd fram­kvæmda­að­il­anna við Hafn­ar­torg, þar sem þess var kraf­ist að Minja­stofnun myndi borga kostn­að­inn sem hlot­ist hefur af friðun hafn­ar­garð­anna.

Hafn­ar­garð­arnir voru skyndi­frið­aðir fyrir tæpu ári síðan, þegar fram­kvæmdir á lóð­inni voru þegar hafnar, og stöðv­uð­ust fram­kvæmd­irnar um stund. Fram­kvæmda­að­il­arnir sögðu strax þá að frið­lýs­ingin myndi valda þeim 2,2 millj­arða króna tjóni yrði hún stað­fest og það tjón yrði sótt úr hendi Minja­stofn­un­ar, og þar með rík­is­ins. Gerðar voru alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð­ina.

Svo fyrir skömmu var krafan send á Minja­stofnun, en hún var tví­þætt, ann­ars vegar vegna áorð­ins tjóns vegna breyt­inga á hönnun sem þurfti að ráð­ast í vegna kröf­unnar um verndun garðs­ins, sem og kostn­aðar vegna veru­legra verktafa. Þetta er metið upp á rúm­lega 600 millj­ónir króna. Hins vegar var boðuð krafa fyrir kostn­aði vegna rým­is­ins sem mun fara undir garð­ana, sem og kostn­aði við að setja þá upp og útbúa þá.

Það er um þetta seinna atriði sem fram­kvæmda­að­il­arnir vilja sér­stak­lega tala um við Minja­stofnun, og Bjarki Þór segir við Kjarnann að ákveðið hafi verið á fyrsta fundi þeirra á mið­viku­dag­inn að „hugsa sam­eig­in­lega um hag­kvæmar og skemmti­legar útfærslur á því að reyna að gera garð­ana eða ein­hvern hluta þeirra sýni­legan.“

Hafn­ar­garð­ur­inn, sem var fluttur stein fyrir stein í burtu af svæð­inu, er nú í geymslu. Fram­kvæmda­að­il­arnir telja ljóst að ef setja á hann upp aftur á lóð­inni þurfi ríkið að borga þann kostn­að, sem gæti hlaupið á millj­örð­um.

Sagði garð­inn verða frið­aðan áður en ákvörðun var tekin

Þann 7. sept­­em­ber í fyrra ákvað Minja­­stofn­un að ­­skynd­i­friða hafn­­ar­­garða við Aust­­ur­höfn­ina í Reykja­vík. Frið­unin gilti í sex vikur og átti for­sæt­is­ráð­herra að taka ákvörðun um það hvort hún stæði áfram eða ekki.

Í raun eru þetta nefni­lega tveir garð­ar, annar þeirra telst til forn­leifa þar sem hann er yfir 100 ára gam­all. Minja­stofnun hafði áður til­kynnt lóð­ar­höfum að sá garður ætti að standa en að það mætti hylja hann að fullu. Hinn garð­­ur­inn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki forn­minjar sam­­kvæmt 100 ára skil­­grein­ing­unni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggð­­ur. Þennan garð stóð til að fjar­lægja. Þrátt fyrir þetta til­­kynnti Minja­­stofnun um skynd­i­friðun alls garðs­ins án afmörk­unar 7. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn.

Reykja­vík­ur­borg dró ­stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Dav­íðs í efa og krafð­ist þess að hann viki sæti í ákvörð­un­inni. Ástæðan var að hann hafð­i tjáð skoðun sína á mál­inu með afger­andi hætti og átt aðkomu að mál­inu á fyrri stig­um. Hann var meðal ann­ars búinn að skrifa grein á blogg­síðu sína þar sem hann tal­aði um ugg­væn­lega þróun í skipu­lags­málum og sagði bein­línis að hafn­ar­garð­ur­inn yrði frið­að­ur, löngu áður en Minja­stofnun tók svo ákvörðun um að skyndi­friða garð­inn.

Það ­fór svo að Sig­rún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra var sett­ur ­for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og hún ákvað að stað­festa friðun á öllum garð­inum í heild.

Í des­em­ber var gert sam­komu­lag þar sem ákveðið var að hafn­ar­garð­ur­inn yrði fluttur svo hægt væri að ráð­ast í fram­kvæmd­ir, en að honum yrði svo komið fyrir á sama stað. Land­eig­endur hafa alltaf sagt að sá kostn­aður myndi lenda á rík­inu. Í febr­úar sagði Sig­rún Magn­ús­dóttir hins vegar að ­ríkið myndi bara bera launa­kostnað vegna eft­ir­lits með­ fram­kvæmd­un­um. Því höfn­uðu fram­kvæmda­að­il­ar, líkt og alltaf, og sögð­ust mundu sækja bæt­urnar til rík­is­ins.

Stærsta bygg­inga­verk­efni til þessa í hjarta Reykja­víkur

Bygg­ing­­ar­reit­­ur­inn að Aust­­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­­metrar að stærð og liggur frá Ing­­ólfs­­garði, yfir Geir­s­­götu að Tryggva­­götu. Lóð­­ar­hafar eru Tón­list­­ar- og ráð­­stefn­u­hús ohf., Situs ehf., Kolu­­fell ehf., Lands­­bank­inn og Bíla­­stæða­­sjóður Reykja­vík­­­ur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið henn­­ar, lóð­ina sem Lands­­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­hús­s­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­­ar­reit neð­an­jarð­­ar. Sá bygg­ing­­ar­reitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­­ara á tveimur hæðum með þjón­­ustu og bíla­­stæð­­um.

Allt í allt eru níu bygg­ing­­ar­reitir á Aust­­ur­bakka 2. Félagið Reykja­vík Develop­ment, sem áður hét Land­stólpar þró­un­­ar­­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­­hafs fram­­kvæmda á reit­un­­um. Í frétt á heima­­síðu Reykja­vík­­­ur­­borgar af því til­­efni seg­ir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­vík­­­ur. Sam­­kvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­­ur­bakka, 21.400 m2 of­anjarð­­ar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinn­u­­starf­­semi, s.s. versl­an­ir, veit­inga­hús, skrif­­stofur og þjón­­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­­legur kjall­­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­­kvæmd­unum átti að ljúka árið 2018 sam­­kvæmt áætl­­un.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár