Kynjakvótar leiða til hæfari stjórnmálamanna

Inn­leið­ing kynja­kvóta hjá fram­boðs­listum stjórn­mála­flokka hefur jákvæð áhrif á hæfni fram­bjóð­enda, sam­kvæmt nýrri grein fjög­urra stjórn­mála- og hag­fræð­inga.

Konur sem komast inn á kynjakvóta eru hæfari en þeir karlar sem detta út vegna hans, samkvæmt greininni.
Konur sem kom­ast inn á kynja­kvóta eru hæf­ari en þeir karlar sem detta út vegna hans, sam­kvæmt grein­inni. Mynd: Pexels

Kynja­kvótar hafa jákvæð áhrif á fram­boðs­lista stjórn­mála­flokka þar sem þeir fjölga hæfum kven­kyns stjórn­mála­mönnum á kostnað minna hæfra karl­kyns stjórn­mála­manna. Þetta eru nið­ur­stöður fræði­greinar sem birt verður í næsta tölu­blaði American Economic Review. Fyrra upp­kast grein­ar­innar má lesa hér.

Rennilásakvótinn

Kynja­kvóta­kerfi í ein­hvers konar mynd meðal stjórn­mála­flokka er til staðar í meira en hund­rað löndum. Gagnsemi slíks kerfis hefur verið umdeild, en margir and­stæð­ingar kynja­kvóta segja þá koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn kom­ist áfram á eigin verð­leikum.

Höfundar umræddrar greinar komust hins vegar að annarri nið­ur­stöðu þegar þeir könn­uðu alla fram­bjóð­endur sveita­stjórna­kosn­inga í Svíþjóð á tíma­bil­inu 1982-2014. Árið 1993 var svo­kall­aður „rennilása­kvóti“ (zipper quota) inn­leiddur af Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­inum, en skoðuð voru áhrif kvót­ans á hæfni fram­bjóð­end­anna sem stjórn­mála­menn. Rann­sóknin leiddi í ljós að hæfni fram­bjóð­enda jókst með inn­leið­ingu kynja­kvóta, sér­stak­lega í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem aukn­ing á kven­kyns fram­bjóð­endum var mest.

Elíta miðlungs hæfra karlmanna

[links]Útskýr­ing á nið­ur­stöð­unum var á þá leið að kvót­arnir nái að leið­rétta kerf­is­bund­inn galla sem felist í full­trúa­lýð­ræði. Samkvæmt höf­undum grein­ar­innar er hætta á að for­maður stjórn­mála­flokks stilli ekki hæf­ustu stjórn­mála­menn­ina upp á listum sínum af ótta við að stöðu hans verði ógnað. Þannig geti víta­hringur orðið til þar sem miðl­ungs stjórn­mála­menn velji sér aðra miðl­ungs stjórn­mála­menn til þess að tryggja sína stöðu innan flokks­ins.

Með kynja­kvótum næst hins vegar að brjóta upp þennan víta­hring þar sem miðl­ungs stjórn­mála­mönnum verði rutt út fyrir hæf­ari kven­kyns stjórn­mála­menn. Að mati grein­ar­höf­unda gætu kvót­arnir með öðrum orðum raskað þeim öflum sem við­halda elítu miðl­ungs hæfra karl­manna í valda­stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

elítur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár