Segir pólitík Vinstri grænna spegilmynd þess sem Verbúðin fjallaði um

Formaður Við­reisnar segir Katrínu Jak­obs­dóttur og Svandísi Svav­ars­dóttur hafa „fórnað hug­sjón­inni fyrir ráð­herra­stóla í fjögur ár á síð­asta kjör­tíma­bili og lofað í stjórn­ar­sátt­mála að gera það í önnur fjögur ár“.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, rifjar í grein sem hún ritar í Morg­un­blaðið í dag upp breyt­ingar sem gerðar voru á kvóta­kerf­inu árið 1990. Hún segir „áhuga­verða sögu“ hafa birst áhorf­endum Ver­búð­ar­innar sem sýni hversu snúin póli­tíkin geti verið.

Í loka­þætt­inum kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var and­vígur frjálsu fram­sali veiði­heim­ilda og skrifar Þor­gerður að það hafi komið mörgum á óvart og rifjar í því sam­hengi upp það ferli sem leiddi til þeirra breyt­inga á kvóta­kerf­inu sem við búum við í dag.

Fyrstu árin giltu kvóta­lög til skamms tíma í senn, ýmist í eitt eða tvö ár og að við þær aðstæður var „tómt mál“ að tala um frjálst fram­sal, skrifar Þor­gerður. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í upp­hafi borið ábyrgð á þess­ari laga­setn­ingu en Alþýðu­banda­lagið verið á móti.

[adspot]

„Árið 1990 kom sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Fram­sóknar hins vegar fram með frum­varp sem fól í sér var­an­lega úthlutun afla­heim­ilda og frjálst fram­sal þeirra. Þetta var stóra kerf­is­breyt­ingin,“ skrifar Þor­gerður og heldur áfram: „En þegar hér var komið við sögu sat vinstri stjórn í land­inu með aðild Alþýðu­banda­lags­ins. Samhliða frum­varp­inu um ótíma­bundna úthlutun kvóta og frjálst fram­sal lagði stjórnin fram frum­varp um Þró­un­ar­sjóð sjáv­ar­út­vegs­ins. Hug­myndin með honum var að koma á póli­tískri fyr­ir­greiðslu­stofnun til þess að halda fyr­ir­tækjum gang­andi, sem ekki stóð­ust almenn rekstr­ar­skil­yrði.“

[links]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn not­aði sjóðs­hug­mynd­ina sem for­sendu fyrir því að greiða atkvæði gegn báðum mál­unum, skrifar Þor­gerður. Innan Alþýðu­banda­lags­ins hafi áfram verið mikil and­staða og „margir þing­menn flokks­ins gáfu til kynna að þeir myndu greiða atkvæði gegn breyt­ing­unni í sam­ræmi við kosn­inga­lof­orðin þó að ráð­herr­arnir verðu afstöðu sína með því að mik­il­væg­ara væri fyrir þjóð­ina að njóta áfram­hald­andi setu flokks­ins í rík­is­stjórn. Þetta þýddi með öðrum orðum að fórna hug­sjónum fyrir ráð­herra­stóla“.

Málið hafi hins vegar staðið lengi vel í nokkrum þing­mönnum Alþýðu­banda­lags­ins og því um tíma óvissa um hvort meiri­hluti yrði fyrir því. Á end­anum, skrifar Þor­gerður, ákváðu þing­menn Alþýðu­banda­lags­ins að „fórna hug­sjón­inni“ til að tryggja áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf. „En sú dýrð stóð bara í fjóra mán­uði. Þá komu kosn­ingar.“

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fengu meiri­hluta en stjórnin fór engu að síður frá og Alþýðu­banda­lagið fór í stjórn­ar­and­stöðu þar sem það sner­ist „um leið“ gegn kerf­inu.

[adspot]

Þor­gerður rifjar því næst upp stofnun Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og segir and­stöð­una við kerfið hafa orðið enn harð­ari innan hennar. Fyrir kosn­ing­arnar árið 2017 var það stefna VG að hækka auð­linda­gjöld og tíma­binda veiði­heim­ildir. „Undir for­ystu ráð­herr­anna Katrínar Jak­obs­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur í núver­andi rík­is­stjórn hafa þing­menn VG aftur á móti ítrekað fórnað þeim mál­stað fyrir ein­hverja aðra hags­muni sem fæstum eru sýni­legir.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son og Svavar Gestsson fórn­uðu hug­sjón­inni í fjóra mán­uði fyrir ráð­herra­stóla, skrifar Þor­gerður. „Þær Katrín Jak­obs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir hafa fórnað hug­sjón­inni fyrir ráð­herra­stóla í fjögur ár á síð­asta kjör­tíma­bili og lofað í stjórn­ar­sátt­mála að gera það í önnur fjögur ár. Þessi póli­tík Vinstri grænna er speg­il­mynd þess sem við höfum fengið að fylgj­ast með í Ver­búð­ar­þátt­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár