Sigmundur Davíð: Engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson og er mjög brugðið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna til­rauna til að kúga fé út úr honum. Þar segir hann að bréf hafi verið sent á heim­ili hans, í umslagi merkt eig­in­konu hans. Þar hafi verið skrifað að ef Sig­mundur Davíð myndi ekki greiða nokkrar millj­ónir króna myndu fjöl­miðlar fá upp­lýs­ingar sem ættu að reyn­ast honum skað­legar. Hann segir að af bréf­inu virð­ast umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögnum.

"Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt," segir Sig­mundur Davíð enn fremur.

Yfir­lýs­ingin í heild sinni:

„Fyrir fáeinum dögum barst bréf á heim­ili fjöl­skyldu minnar, í umslagi merktu eig­in­konu minni. Í bréf­inu var því hótað að birtar yrðu opin­ber­lega upp­lýs­ingar sem reyn­ast myndu skað­legar ef ég greiddi ekki millj­ónir króna til bréf­rit­ara og sam­verka­manns hans.

Af bréf­inu að dæma virt­ust umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögnum. Áréttað var í bréf­inu að ef ekki yrði gengið að kröf­unum, eða ef lög­reglu yrði gert við­vart, yrði séð til þess að fjöl­miðlar fengju málið til umfjöll­unar og sagð­ist bréf­rit­ari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta.

Ég gerði lög­reglu að sjálf­sögðu strax við­vart og leysti hún málið af mik­illi fag­mennsku. Ég vil færa lög­regl­unni kærar þakkir fyrir vel unnin störf.

Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.

Fjöl­skyldu minni er veru­lega brugðið vegna þess­ara atburða. Ég vil hvetja til hóf­stilltrar umræðu um málið og minni á að grun­aðir ger­endur eiga ætt­ingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöll­un­ina.

Fjöl­miðla bið ég að sýna skiln­ing á því að ég mun ekki veita við­töl um málið að minnsta kosti á meðan rann­sókn þess er ekki að fullu lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár