Fylgi Framsóknar minnkar og stuðningur við ríkisstjórnina nær nýjum botni

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er næst­minnsti flokk­ur­inn á þing­inu sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins minnkar um tæp fjögur pró­sentu­stig milli kann­ana, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. Það mælist nú 8,7% og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er þar með með næst­minnst fylgi allra flokka á þingi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur hins vegar nán­ast í stað, og mælist með 22,5% fylgi.

Rík­is­stjórnin mælist með 26% traust og hefur þessi rík­is­stjórn aldrei mælst með minna fylgi. Það er 6,4 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu mæl­ingu, sem fór fram um miðjan mars­mánuð.

Píratar eru áfram langstærsti flokkur lands­ins og mælist með 36,7% fylgi í könn­un­inni. Vinstri græn bæta við sig 3,5 pró­sentu­stigum milli kann­anna og Björt fram­tíð um 2,4 pró­sentu­stig. VG er með 12,8 pró­sent og Björt fram­tíð kemst upp fyrir fimm pró­sentin og er með 5,8%. Sam­fylk­ingin mælist með 9,9 pró­senta fylgi.

Könnunin var gerð á mánu­dag og þriðju­dag. 987 ein­stak­lingar voru spurðir. Vikmörk í könnun eins og þess­ari eru allt að 3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár