Bæta þurfi verklag strax

Rauði kross­inn telur ekki for­svar­an­legt að túlkun Útlend­inga­stofn­unar eða rík­is­lög­reglu­stjóra geti ráðið úrslitum um hvort að brott­flutn­ingur fari fram eða ekki þegar heil­brigð­is­gögn taka ekki af öll tví­mæli um ástand við­kom­andi eða eru ekki nógu skýr.

Albanska barnshafandi konan sem flutt var út landi í fyrrinótt.
Albanska barns­haf­andi konan sem flutt var út landi í fyrr­inótt. Mynd: Facebook / Réttur barna á flótta

Rauði kross­inn telur ekki for­svar­an­legt að túlkun Útlend­inga­stofn­unar eða rík­is­lög­reglu­stjóra geti ráðið úrslitum um hvort að brott­flutn­ingur fari fram eða ekki þegar heil­brigð­is­gögn taka ekki af öll tví­mæli um ástand við­kom­andi eða eru ekki nógu skýr.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Rauða kross­inum í dag.

Heil­brigð­is­vott­orð þurfi að taka af allan vafa um hvort óhætt sé að flytja fólk sem synjað hefur verið um alþjóð­lega vernd eða ekki. Úr þessu verk­lagi verði að bæta strax, hvort um sé að ræða verk­lag Útlend­inga­stofn­unar, rík­is­lög­reglu­stjóra eða verk­lag í heil­brigð­is­kerf­inu sem varðar þennan við­kvæma hóp.

Á bak við tölur er raunverulegt fólk

„Brotalöm í kerf­inu varðar líf og heilsu ein­stak­linga. Á bak við tölur er raun­veru­legt fólk eins og skýrt sást í fjöl­miðlum í gær,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Fram kom í fréttum í gær að þung­aðri albanskri konu sem gengin var nærri 36 vikur hafi verið vísað úr landi, ásamt fjöl­skyldu sinni, eig­in­manni og tveggja ára barni, þrátt fyrir að telj­ast bæði í áhættu­hópi vegna fyrri með­göngu og vera í erf­iðri stöðu sem umsækj­andi um alþjóð­lega vernd.

Brott­vís­unin var í and­stöðu við ráð­legg­ingar heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að þung­aðar konur í áhættu­hópi fari ekki í flug eftir 32. viku með­göngu.

Brottvísun er þvingunarúrræði

Í yfir­lýs­ingu Rauða kross­ins kemur fram að brott­vísun sé þving­unar­úr­ræði sem geti valdið mik­illi streitu og kvíða. Streita á móður geti haft alvar­legar og óaft­ur­kræfar afleið­ingar fyrir hana og ófætt barn hennar.

[links]Rauði kross­inn harmar fram­kvæmd­ina og að ekki hafi verið staldrað við, sér í lagi þegar fyrir hafi legið nýtt lækn­is­vott­orð sem stang­ist á við eldra vott­orð . Í hinu nýja vott­orði hafi ekki verið mælt með flutn­ingi og þar segir að konan sé slæm af stoð­kerf­is­verkjum í baki og ætti erfitt með langt flug. Frá upp­hafi brott­vís­unar og þangað til fjöl­skyldan komst á áfanga­stað þurftu þau að taka þrjú flug og tók ferða­lagið alls nítján klukku­stundir, sam­kvæmt fjöl­miðlaum­fjöllun.

Flutningur hefði ekki átt að fara fram á þessum tímapunkti

Þá benda sam­tökin á að sam­kvæmt 2. gr. laga um útlend­inga sé mark­mið lag­anna meðal ann­ars að tryggja mann­úð­lega með­ferð stjórn­valda í mál­efnum útlend­inga. Meðferð á fjöl­skyld­unni var að mati Rauða kross­ins ekki í sam­ræmi við mark­mið lag­anna um mannúð, burt­séð frá því hvort verk­lag sem þetta hafi verið við­haft áður og Útlend­inga­stofnun telji sig hafa farið eftir öllum reglum eins og fram kom í máli setts for­stjóra stofn­un­ar­innar í Kast­ljósi í gær.

„Með hlið­sjón af aðstæðum í þessu máli hefði flutn­ingur ekki átt að fara fram á þessum tíma­punkti svo lífi og móður barns væri ekki stefnt í hættu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár