Barnshafandi konan lent í Albaníu eftir 19 tíma ferðalag

26 ára kona sem er gengin 36 vikur á leið var vísað frá Íslandi í gær ásamt eig­in­manni og tveggja ára syni, þrátt fyrir að fyrir lægi lækn­is­vott­orð um að hún ætti ekki að fljúga. Eftir 19 tíma ferða­lag lentu þau í Albaníu.

Tveggja ára sonur albönsku barnshafandi konunnar og eiginmanns hennar á meðan að þau voru í haldi albönsku lögreglunnar í nótt.
Tveggja ára sonur albönsku barns­haf­andi kon­unnar og eig­in­manns hennar á meðan að þau voru í haldi albönsku lög­regl­unnar í nótt.

Barns­haf­andi 26 ára albanska konan, eig­in­maður hennar og tveggja ára sonur lentu í nótt í Albaníu eftir 19 tíma ferða­lag. Þeim var vísað frá Íslandi með lög­reglu­valdi í gærnótt þrátt fyrir að konan sé gengin 36 vikur á leið með annað barn þeirra. Fjöl­skyldan var enn í haldi lög­reglu í Albaníu í nótt þegar myndin sem fylgir með þess­ari frétt var tekin af syni þeirra.

Flogið var með fjöl­skyld­una til Berlín og þaðan áfram til Albaníu.

Mál fjöl­skyld­unnar komst í hámæli í gær­morgun þegar það birt­ist færsla á Facebook-­síðu Réttur barna á flótta þar sem kom fram að henni hefði verið vísað úr landi um klukkan 18 í gær þrátt fyrir að vera í miðju mála­ferli við Útlend­inga­stofn­un. Það væri gert þrátt fyrir að móð­irin sé komin níu mán­uði á leið og þrátt fyrir að eiga tveggja ára gam­alt barn – barn sem fædd­ist á 36. viku.

[adspot]„Þrátt fyrir lækn­is­vott­orð frá mæðra­vernd eftir skoðun með tveimur lækn­um, ljós­móður og hjúkr­un­ar­fræð­ingi í gær, þess efnis að móð­irin ætti ekki að fljúga. Þrátt fyrir að fjöl­skyldur með börn skuli ávallt fá tveggja vikna fyr­ir­vara eigi að vísa þeim úr landi. Þá gerði lög­reglan þetta[...]Lög­reglan beið fyrir neðan glugg­ann hennar á mæðra­vernd með bíl sem lýsti inn í her­bergið svo tímunum skipti í gær, til­búin að taka fjöl­skyld­una upp á flug­völl. Bíll­inn fór ekki fyrr en 22:30.“

Lög­reglan hafi síðar komið með lækn­is­vott­orð frá lækni sem hafði aldrei skoðað kon­una vegna með­göng­unnar, en sam­kvæmt vott­orð­inu mátti hún fljúga þrátt fyrir að vera gengin svona langt á leið með barn. Lög­reglan keyrði fjöl­skyld­una í kjöl­farið upp á flug­völl til að vísa þeim úr landi.“

Hörð viðbrögð

Útlend­inga­stofnun sendi frá sér til­kynn­ingu síðar í gær þar sem sagði að hún hefði­fylgt verk­lagi. Ein­stak­lingum sem synjað hafi verið um alþjóð­lega vernd og eigi ekki annan rétt til dvalar hér á landi lögum sam­kvæmt beri að yfir­gefa land­ið. Þegar ákvörðun í máli er fram­kvæmd­ar­hæf sendir Útlend­inga­stofnun beiðni um lög­reglu­fylgd til stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra.

Stjórn Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæmdi hins vegar for­kast­an­lega með­ferð íslenskra yfir­valda kon­unni og fjöl­skyldu hennar.

Í Stund­inni var greint frá því að Land­lækn­is­emb­ættið segð­ist meta kon­una „í áhættu­hópi og mjög við­kvæmri stöðu“ og að það væri litið „alvar­legum augum“ að ráð­legg­ingum sér­fræð­inga Land­spít­al­ans hafi ekki verið hlýtt.

Biskup Íslands, Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, óskaði eftir fundi með Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra til að ræða stöðu hæl­is­leit­enda í ljósi þess að kon­unni barns­haf­andi var vísað úr landi í nótt með tveggja ára barni sínu.

Í yfir­lýs­ingu frá bisk­upi Íslands sagði að það væri „ólíð­andi verkn­aður að senda barns­haf­andi konu burt í óvissu og örbirgð.“

Ráðherra var brugðið

„Ég fékk fregnir af þessu máli í fjöl­miðlum í morgun líkt og aðr­ir. Þó ég geti ekki tjáð mig um ein­stök mál get ég þó sagt að mér var brugðið líkt og öðrum,“ sagði Áslaug Arna um málið á Facebook síðu sinni í gær­kvöldi. „Við viljum öll að farið sé var­lega þegar um er að ræða þung­aðar mæð­ur, börn þeirra, fædd og ófædd. Almennt er verk­lagið á þann veg í dag að fengin eru til­mæli frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum um hvort ein­hver hætta sé vegna brott­farar þeirra sem um ræðir úr landi. Ef svo er er brott­vísun frestað. Það hefur oft orðið raun­in, til að mynda vegna þung­unar kvenna í þess­ari erf­iðu stöð­u“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár