Fordæma forkastanlega meðferð íslenskra yfirvalda á óléttri konu á flótta

Hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæma með­ferð íslenskra yfir­valda á barns­haf­andi konu á flótta. „Við krefj­umst þess að dóms­mála­ráð­herra og Útlend­inga­stofnun svari fyrir þessa ómann­úð­legu og grimmi­legu með­ferð á fólki.“

Stjórn Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi hefur for­dæmt for­kast­an­lega með­ferð íslenskra yfir­valda á óléttri konu á flótta og fjöl­skyldu hennar í nótt.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu þeirra í dag.

„Í nótt var ung kona, sem komin er 36 vikur á leið, hand­tekin og brott­vísað úr landi ásamt manni sínum og tveggja ára syni þeirra. Land­lækn­is­emb­ættið metur kon­una í „áhættu­hópi og í mjög við­kvæmri stöðu.“ Lög­reglan mætti án fyr­ir­vara fyrr um kvöldið til þess að sækja fjöl­skyld­una til brott­vís­unar. Álagið af því leiddi til þess að konan þurfti að sækja sér aðstoð á sjúkra­húsi. Þar fékk konan vott­orð sem í stóð að hún ætti erfitt með langt flug vegna þess hve langt hún er gengin. Öll vitum við að það er ekki mælt með því að konur sem eru langt gengnar fljúgi. Hvað þá undir álagi og streitu eins og íslensk yfir­völd sköp­uðu fyrir kon­una í nótt. Það stofnar öryggi og hrein­lega lífi kon­unnar og ófædds barns hennar í hættu,“ segir í stöðu­upp­færslu sam­tak­anna.

[links]Þá kemur fram hjá Solaris að með því að brott­vísa kon­unni undir því álagi sem með­ferði á henni og fjöl­skyldu hennar hefur haft á þau öll, þvert á ráð­legg­ingar lækna, stefni Útlend­inga­stofnun, dóms­mála­ráð­herra og íslensk stjórn­völd þeim í mikla hættu.

Það sé for­kast­an­leg með­ferð á fólki í við­kvæmri stöðu sem stjórn Solaris for­dæmi harð­lega. „Við krefj­umst þess að dóms­mála­ráð­herra og Útlend­inga­stofnun svari fyrir þessa ómann­úð­legu og grimmi­legu með­ferð á fólki, sem þar að auki var enn með mál sitt í úrvinnslu hjá yfir­völdum. Við krefj­umst þess að fá raun­veru­leg svör við því hvernig í ósköp­unum svona hlutir geti gerst. Við krefj­umst mann­úðar, mann­rétt­inda og rétt­lætis fyrir fólk á flótta!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár