Rauði baróninn

Um 100 ár er nú frá lokum fyrri heim­styrj­aldar. Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur og lista­maður, fer í gegnum sögu rauða bar­óns­ins.

Manfred von Richthofen fædd­ist 2. maí 1892, sonur hefð­ar­hjón­anna Kunigunde og Albrecht von Richthofen. Hann var elstur þriggja sona, bræður hans voru Lothar og Karl. Lothar von Richthofen varð einnig flug­hetja, þótt hann næði aldrei sömu hæðum og elsti bróð­ir­inn. Þótt Lothar lifði fyrri heims­styrj­öld­ina af þá urðu það örlög hans, eins og Manfreds, að láta lífið í flug­vél árið 1922. Fjöl­skyldan var nokkuð dæmi­gerð prúss­nesk aristókrata­fjöl­skylda, svo­kall­aðir Júnkerar.

Það var sjálfur Friðrik mikli sem hafði sæmt fjöl­skyld­una ridd­ara­tign svo að hún hafði leyfi til að setja sæmd­ar­tit­il­inn Freiherr fyrir framan nafn sitt. Albrecht von Richthofen ákvað fljót­lega að elsti sonur hans ætti að verða her­maður. Aðeins 11 ára að aldri var Manfred sendur í her­skól­ann í Wahlstatt. Þar ríkti járnagi og Manfred lík­aði það svo illa að hann var­aði Lothar, bróður sinn, ein­dregið við því að verða her­maður. Þrátt fyrir að líka illa í skól­anum þá stóð Manfred sig vel og það var þar sem hann þró­aði með sér ýmsa hæfi­leika sem áttu eftir að nýt­ast vel seinna meir. Hann varð meðal ann­ars afburða­góður í fim­leikum og öllu lík­am­legu atgervi. Hann reynd­ist einnig hafa gott lag á hestum og varð skjótt góður knapi. Þó er eitt sem stendur öðru framar: Manfred varð meist­ara­skytta.

Liðsforingi

Er fyrri heims­styrj­öldin skall á árið 1914 var Manfred þegar orð­inn liðs­for­ingi í ridd­ara­lið­inu. Það varð þó fljótt ljóst á vest­ur­víg­stöðv­unum að tími ridd­ara­liðs­ins var lið­inn. Þeir sáu aðal­lega um að koma skila­boðum á milli og Manfred leidd­ist afar mikið á víg­stöðv­unum. Á þessum tíma var flug til­tölu­lega nýtt fyr­ir­brigði og margir töldu að það ætti sér litla fram­tíð í hern­aði. Seinna við­ur­kenndi Manfred að hann hefði í raun ekki vitað neitt um flug á þessum tíma en hann sá litla fram­tíð í því að vera í ridd­ara­lið­inu. Flugið virt­ist eitt­hvað nýtt og spenn­andi og Manfred sló til, bað um lausn frá ridd­ara­lið­inu og sótti um í flug­hernum.

Í maí 1915 var Manfred því skólaður í öllu er sneri að flugi nema þó einu: Að stjórna vél­inni. Í þá daga var aðal­hlut­verk flug­vél­anna að fljúga yfir víg­stöðv­arnar og taka myndir af her­sveitum óvin­ar­ins, ekki síst stað­setn­ingu stór­skota­liðs. Flug­vél­arnar voru tveggja sæta könn­un­ar­vélar og sá sem var hærra settur var vana­lega í hlut­verki ljós­mynd­ar­ans og átti að segja flug­mann­inum til. Manfred var liðs­for­ingi og því sjálf­val­inn í það hlut­verk.

Fyrsta flug­ferðin gekk ekki sem skyldi. Er hreyfil­inn fór í gang fuku öll blöð og kort Manfreds út í veður og vind og jafn­vel hjálm­ur­inn losn­aði af honum og hvarf að eilífu. Hann upp­götv­aði að hann hafði hneppt jakk­anum vit­laust og vind­ur­inn smaug inn um gatið. Auk þess heyrði flug­mað­ur­inn ekki orð af því sem Manfred reyndi að kalla til hans. Þrátt fyrir þessi óþæg­indi var Manfred strax heill­aður af þess­ari nýju ver­öld sem hann var þarna kynntur fyrir: „Eftir nokkra stund taldi ég í mig kjark til að líta niður. Ég sá Köln í fjarska. Dóm­kirkjan leit út eins og eitt­hvað leik­fang. Allt var svo smátt og fjar­lægt. Ég var grip­inn þeirri til­finn­ingu að ég væri alveg ósnert­an­legur hér uppi í skýj­unum. Ég naut þess til hins ýtrasta og varð afar leiður er flug­mað­ur­inn sagði tíma­bært að snúa við og lenda.“

Flughernaður eflist

Þróunin í flug­hern­aði var hröð. Könn­un­ar­vélin hafði sannað sig og öllum var ljóst að það yrði að finna aðferðir til að ráða nið­ur­lögum hennar. Loft­varna­byssur voru ekki nógu nákvæmar. Á þessum tíma fædd­ist hug­myndin að flug­vél sem væri sér­hönnuð til að elta aðrar flug­vélar og skjóta þær niður: Orr­ustu­vél. Vanda­málið var hvar ætti að stað­setja vél­byssur á slíka vél. Best væri að hún væri beint fyrir framan flug­mann­inn en þá þyrftu kúl­urnar að kom­ast í gegnum hreyfil­inn. Tækni­menn ýmissa herja höfðu gert til­raunir og kom­ist að því að þótt hreyfil­inn skemmd­ist alvar­lega þá fóru lang­flestar kúl­urnar á milli blað­anna. Bæði Frakkar og Þjóð­verjar höfðu í stríðs­byrjun reynt að hanna búnað sem gerði vél­byss­unni kleyft að skjóta án þess að hitta hreyfil flug­vél­ar­innar. Það voru Þjóð­verjar sem voru fljót­ari til er þeir settu á markað Fokker Eindecker vél­ina, um mitt ár 1915, sem var með eina vél­byssu og áður­nefndan búnað. Eindecker vélin olli strax miklu upp­námi meðal Breta og Frakka sem flýttu sér að fram­leiða svip­aðar vélar. Manfred von Richthofen fylgd­ist með öllu þessu og var stað­ráð­inn í að læra að fljúga og verða orr­ustuflug­maður. Maðurinn sem Manfred leit upp til í þessu sam­bandi var Oswald Boelcke. Boelcke var rísandi stjarna meðal þýskra orr­ustuflug­manna og er í raun litlu minni goð­sögn en Manfred sjálfur átti eftir að verða. Boelcke er af flestum tal­inn vera sá sem fyrstur setti niður skýrar reglur fyrir orr­ustuflug­menn, sem kall­aðar er Dicta Boelcke, og margt af því sem hann skrif­aði um her­tækni í háloft­unum er enn þá kennt og notað, jafn­vel í orr­ustu­þotum nútím­ans. Boelcke benti m.a. á mik­il­vægi þess að reyna alltaf að gera árás með sól­ina á bak við sig, einnig lagði hann ríka áherslu á að flug­menn sem væru komnir yfir óvina­svæði þyrftu alltaf að vera með ákveðna und­an­komu­leið og ef óvinur ræðst að þig að ofan áttu ekki að reyna að koma þér undan heldur snúa vél þinni beint að honum. Þetta urðu fyrstu grunn­reglur þýska flug­hers­ins og Manfred von Richthofen fór eftir þeim, allt fram til örlaga­dags­ins 21. apríl 1918.

Stóra tækifærið kemur

Það var ekki fyrr en í ágúst 1916 sem von Richthofen fékk sitt stóra tæki­færi. Boelcke sjálfur hafði sam­band við hann og bauð honum að ganga í flug­sveit sína Jagd­staf­feln 2. Richthofen brást ekki meist­ara sínum og sigrar hans í loft­inu urðu fleiri og fleiri. Boelcke sjálfur lést í októ­ber 1916 en hann hafði skotið niður 40 óvina­vélar. Manfred var nú ákveð­inn í að verða besti orr­ustuflug­maður Þýska­lands og ákvað í árs­lok 1916 að það væri tíma­bært að bæði vinir og óvinir gerðu sér grein fyrir hver hann var. Á þessum tíma voru engar tal­stöðvar í flug­vélum svo sumir flug­menn merktu vélar sínar sér­stak­lega svo það færi ekki á milli mála hver væri á ferð­inni. Manfred ákvað að nota rauðan lit til að ein­kenna sína vél. Ekki er nákvæm­lega vitað hví hann valdi þann lit en það má vera að það hafi verið í heið­urs­skyni við Uhlan-ridd­ara­liðs­sveit­ina sem hann barð­ist með í byrjun stríðs en ein­kenn­islitur þeirra var rauður. And­stæð­ingar Þjóð­verja vissu vel hver leiddi sirkus­inn fljúg­andi og vegna rauða lit­ar­ins var Manfred nú kall­aður „Rauði bar­ón­inn“.

Fjórar sveitir í eina

Hlut­irnir gerð­ust nú hratt. Um sum­arið 1917 fékk von Richthofen það hlut­verk að sam­eina fjórar flug­sveitir í eina. Sú sveit var skipuð þeim bestu og fékk heitið Jagdgeschwader 1 og von Richthofen varð yfir­maður hennar. Breski flug­her­inn gaf sveit­inni nafnið sirkus­inn fljúg­andi (Flying Circus) vegna þess hve lit­skrúð­ugar vélar þeirra þýsku voru og sú stað­reynd að sveitin var sjaldan lengi á sama stað í einu og liðs­menn bjuggu vana­lega í tjöldum. Manfred von Richthofen var nú orð­inn fræg­asti flug­kappi Þýska­lands. Í júlí­mán­uði hafði Richthofen skotið niður 57 óvina­vélar. Hann var eng­inn harð­stjóri en gerði þó miklar kröfur til sinna manna, eins og hans sjálfs, hann drakk lítið og reykti sjaldan og krafð­ist þess af mönnum sínum að þeir forð­uð­ust allan ólifnað. Manfred von Richthofen fékk á þessum tíma mörg hund­ruð bréf frá konum víðs vegar að en hann var aldrei við kven­mann kenndur og er hann var í leyfi frá víg­stöðv­unum sást hann aldrei í fylgd konu. Sumir tóku etir því að þessi fræga flug­hetja sat oft einn til borðs á veit­inga­stöðum. Bróðir hans Lothar naut sín í sam­skiptum við konur en margir tóku eftir því að eldri bróðir hans var greini­lega feim­inn og ófram­fær­inn er kom að sam­skiptum við hitt kynið. Á víg­stöðv­unum fylgdi Manfred eftir reglum Boelckes og brýndi því mönnum sínum að fljúga aldrei einir, alltaf minnst fjórir eða sex saman og aldrei taka óþarfa áhættu, aðeins leggja til árásar ef þeir væru nokkuð vissir um sigur. Menn hans og einnig and­stæð­ingar báru tak­marka­lausa virð­ingu fyrir honum.

Þann 6 júlí særð­ist Manfred á höfði í bar­daga og var í raun hepp­inn að sleppa lif­andi. Kúla frá óvina­vél hitti hann í höf­uðið og hann missti allan mátt og sjón en fann þó hvað var að ger­ast. Til­finn­ing kom þó fljót­lega aftur í liða­mótin og hann gat stjórnað vél­inni en var áfram sjón­laus og vissi ekk­ert hvað sneri upp né niður. Sjónin kom smátt og smátt og von Richthofen lenti vél­inni heilu og höldnu. Þetta atvik hafði djúp áhrif á Manfred von Richthofen. Hann hafði sann­ar­lega aldrei verið létt­úð­ugur gal­gopi en gat þó gant­ast og glaðst. Eftir þessa reynslu, að hafa verið hárs­breidd frá dauð­anum, varð Manfred jafn­vel ennþá meiri ein­fari og bland­aði lítt geði við aðra.

Þann 21. apríl fóru von Richthofen og sex aðrir flug­menn í könn­un­ar­flug. Richthofen flaug Fokker þrí­þekju sem var nán­ast alrauð. Það fór ekki á milli mála hver var þar á ferð. Rauða þrí­þekjan hefur einatt verið tengd við Rauða bar­ón­inn en af 80 óvina­vélum sem hann felldi þá voru það aðeins 9 sem féllu fyrir vél­byssum þrí­þekj­unnar. Manfred von Richtofen var sig­ur­sælastur er hann flaug Albatros tví­þekju.

Ekki langt frá Þjóð­verj­unum voru and­stæð­ingar þeirra Bretar einnig komnir á loft. Hinn reyndi Roy Brown leiddi þá sveit en í för með þeim var flug­maður, May að nafni, sem var í sinni fyrstu flug­ferð og hafði fengið skýrar skip­anir um að halda sig frá bar­dögum. May stóðst þó ekki mátið er breska sveitin mætti þeim þýsku og reyndi að elta og skjóta niður þýska vél. Skyndi­lega var May kom­inn í miðjan bar­dag­ann og átti ekki mögu­leika gegn bestu flug­mönnum Þjóð­verja. Til að bæta gráu ofan á svart hafði May tek­ist að stífla vél­byssur sínar því hann hélt takk­anum of lengi niðri. May ákvað að forða sér, tók dýfu og stefndi að bresku víg­stöðv­unum. Von Richthofen var fljótur að sjá að þarna var óreyndur flug­maður og því auð­veld bráð. Það má þó vel vera að reynslu­leysi May hafi hjálpað honum.

Reyndir flug­menn brugð­ust yfir­leitt eins við í ákveðnum aðstæðum en May gerði hvað sem honum datt í hug og Richthofen átti erfitt með að sjá gjörðir hans fyrir. Roy Brown sá að May var í stór­hættu og flaug því strax á eftir honum og Manfred. Hátt fyrir ofan þá fylgd­ust þýsku flug­menn­irnir með og skyldu ekk­ert í fram­ferði von Richthofen því í raun allt sem hann gerði var í hróp­andi mót­sögn við hans eigin reglur sem hann hafði margoft lagt ríka áherslu á að þeir sjálfir færu eftir. Að fljúga í lág­flugi yfir víg­línur and­stæð­ing­anna var nokkuð sem Richthofen hafði harð­bannað þeim en nú var rauða þrí­þekjan aðeins í nokkur hund­ruð metra hæð langt inn í landi óvin­ar­ins!? Þetta náði engri átt. Roy Brown var nú að nálg­ast Richthofen og byrj­aði að skjóta. Ástr­alskar vél­byssu­skyttur á jörðu niðri hófu einnig að skjóta á Þjóð­verj­ann og aðrir her­menn í nágrenn­inu hleyptu af rifflum sínum. Þrí­þekjan skall í jörð­ina. Rauði bar­ón­inn var allur.

Áfall fyrir þjóðina

Áfallið var gíf­ur­legt fyrir þýsku þjóð­ina. Manfred von Richthofen var þjóð­hetja og hafði verið leið­andi í bar­átt­unni gegn óvin­inum árum saman. Það var einnig eitt­hvað við flug­menn, sér­stak­lega orr­ustuflug­menn, sem heill­aði fólk meira en annað. Ólíkt fót­göngu­liðum á jörðu niðri lögðu þeir líf sitt í hættu í háloft­unum, heimi þar sem mað­ur­inn var gest­kom­andi. Öllum var ljóst að starf þeirra var mjög hættu­legt. Fall­hlífar voru ekki teknar í notkun fyrr en seint í stríð­inu og það voru aðal­lega Þjóð­verjar sem not­uðu þær en Bretar höfn­uðu þeim af ótta við að flug­menn myndu gef­ast upp of fljótt og henda sér úr vél­inni. Erich Ludend­orff hers­höfð­ingi sagði að dauði Rauða bar­óns­ins hefði verið svipað sál­fræði­legt áfall fyrir þýska her­inn og að missa heilt her­fylki. Manfred von Richthofen var goð­sögn í lif­anda lífi en einnig áfram eftir dauða sinn.

Hvaðan kom skotið?

Hver skaut niður Manfred von Richthofen? Um það er deilt enn í dag. Eitt eru flestir þó sam­mála um. Það var ekki Roy Brown heldur kom kúlan sem grand­aði Richthofen frá jörðu niðri. Menn töldu í fyrstu að það hefðu án efa verið áströlsku vél­byssu­skytt­urnar. Líkið var með sár framan á búknum og einnig á fótum. Breski flug­her­inn mót­mælti þessu þó ákaft og á end­anum var ákveðið að færa Roy Brown þennan sigur enda var mörgum ljóst að það yrði gíf­ur­leg lyfti­stöng fyrir breska flug­her­inn og lið­sanda hans. Í dag telja ýmsir að kúlan sem grand­aði von Richthofen hafi verið úr riffli, ekki vél­byssu, og það sé nán­ast ómögu­legt að kom­ast að því hver skaut úr þeim riffli. Þó er það jafn­vel enn stærri spurn­ing að velta því fyrir sér hví von Richthofen hunds­aði sínar eigin reglur og elti May inn yfir víg­línur óvin­anna? Það var algjört feigð­ar­flan og þvert á það sem Richthofen sjálfur hafði kennt sínum mönnum. Svona nokkuð hafði hann aldrei gert áður. Getur verið að á þessum tíma­punkti hafi honum hrein­lega staðið á sama hvort hann myndi lifa eða deyja? Ýmislegt bendir til þess að hann hafi verið orð­inn þung­lyndur á þessu tíma­bili og eins og áður er getið þá var hegðun hans önnur eftir höf­uð­meiðsli sem hann hlaut nokkrum mán­uðum fyrir dauða sinn. Aðeins nokkrum vikum áður en hann lést reit hann svo í dag­bók sína: „Mér líður ömur­lega eftir hvern bar­daga. Kannski hefur það eitt­hvað að gera með höf­uð­meiðsli mín. Um leið og ég stíg fæti á jörð­ina, eftir flug­ferð, held ég beint til her­bergis míns. Ég hef enga löngun til að sjá ein­hvern eða heyra eitt­hvað. Ég sé þetta stríð núna eins og það er í raun, ekki eins og almenn­ingur ímyndar sér það. Þau halda að þetta sé gleði­legur bar­dagi þar sem menn öskra húrra­hróp og halda til orr­ustu með bros á vör. Það er langt frá raun­veru­leik­anum. Þetta stríð er mjög alvar­legt og ólýs­an­lega hrylli­legt…"

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár