Trump rekst á kínverskan múr

Tolla­stríði Banda­ríkj­anna og Kína hefur verið frestað í bili. Mikill vöxtur í Kína vinnur með Banda­ríkj­unum.

Banda­ríkin og Kína hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að leggja til hliðar - í það minnsta í bili - ágrein­ing vegna við­skipta­sam­bands ríkj­anna.

Eitt af stóru lof­orðum Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta í for­seta­fram­boði hans var að end­ur­semja um við­skipta­sam­bandið við Kína, og beita til þess tollum til að örva hag­kerfið heima fyrir. „Tölum um Kína!“ (Let's talk about China) var algengur frasi hjá honum á fram­boðs­fundum.

Eftir mán­að­ar­langar samn­inga­við­ræður, þar sem hátt­settir emb­ætt­is­menn frá lönd­unum tveimur leiddur við­ræð­urnar, er það nið­ur­staðan að þessi mál verði ekki tekin til end­ur­skoð­unar í bili, og að engir nýir tollar verði settir á vörur frá Banda­ríkj­unum til Kína eða frá Kína til Banda­ríkj­anna.

Steve Mnuchin, fjár­mála­ráð­herra, greindi frá þess­ari nið­ur­stöðu í til­kynn­ingu, en í stuttu máli þýðir hún að Kín­verjar fengu sínu fram, þar sem þeir vildu helst engar breyt­ingar, ólíkt Trump og hans stjórn.

Í umfjöllun Vanity Fair segir að til­kynn­ing banda­rískra yfir­valda sé í raun full­kom­inn ósigur, og að orðin í henni þýði í sjálfu sér lítið annað en óbreytt ástand. En fyrir hinn alþjóða­vædda við­skipta­heim, þar sem banda­rísk fyr­ir­tæki, lítil og stór, eru stað­sett, þá séu það góð tíð­indi.

Vöxt­ur­inn í Kína, sem hefur verið stan­laust á bil­inu 6 til 10 pró­sent á ári í meira en tutt­ugu ár, þýðir það að Kína mun auka verslun sína við banda­rískt hag­kerfi, alveg sama um hvað er samið. Brad Setser, sér­fræð­ingur í kín­verskum við­skiptum, sem Vanity Fair ræðir við, segir að banda­rísk stjórn­völd séu að túlka þessa stað­reynd sér í vil, í þess­ari samn­inga­lotu, en í reynd sé þetta ein­fald­lega stað­reynd sem alltaf hefði orðið að veru­leika.

Mikill halli

Mál­flutn­ingur Trumps hefur verið á þá leið, að Kína sé að soga störf frá Banda­ríkj­unum en það hallar á Banda­ríkin um 375 millj­arða Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 40 þús­und millj­arða króna, í við­skiptum milli land­anna.

Fyrstu hót­anir Trumps væru þær, að leggja sér­tæka tolla á ál og stál. Um 25 pró­sent á ál og 10 pró­sent á stál, sem inn­flutt væri til Banda­ríkj­anna. Þá voru einnig fyr­ir­hug­aðir háir tollar á margar aðrar vörur sem voru fluttar til Banda­ríkj­anna frá Kína, meðal ann­ars heim­il­is­tæki.

Kín­verjar voru til­búnir að svara þessu, meðal ann­ars með háum tollum á mat og fatnað sem kemur til Kína frá Banda­ríkj­unum. Sér­stak­lega var það mat­væla­fram­leiðsla sem hefði fengið á sig mikið högg, og heyrð­ust strax rama­kvein úr ranni bænda og fyr­ir­tækja í mat­væla­fram­leiðslu vegna þess­ara áforma.

Trump segir núna - þvert á það sem hann hefur haldið fram til þessa - og nú geti bændur fram­leitt mat­væli og selt til Kína, eins og mikið og þeir mögu­lega hafi tíma til.

Ráðgjafinn hætti

Einn þeirra sem var algjör­lega mót­fall­inn stefnu Trumps í mál­inu var Gary Cohn, ráð­gjafi hans í efna­hags­málum. Hann hætti vegna ágrein­ings um tolla­stríðið og sagði ein­fald­lega alveg mót­fall­inn þeirri stefnu sem Trump vildi tala fyrir.

Scott Paul, sem leiðir hags­muna­sam­tökin Alliance for American Manufacturing, segir að nið­ur­staðan sé mikil von­brigði fyrir Banda­ríkin. Í raun sé þetta algjör ósigur, á meðan Kín­verjar séu sáttir með stöð­una. Paul hefur til þessa verið mik­ill stuðn­ings­maður Trumps og talað fyrir stefnu hans um að tolla­stríð sé rétta leiðin til að end­ur­vekja verk­smiðju­bú­skap­inn í Banda­ríkj­unum. Hann hefur gengið gegnum erf­iða tíma, á und­an­förnum árum, einkum mörg af eldri fyr­ir­tækjum Banda­ríkj­anna í mið- og suð­ur­ríkj­unum.

Ekki öll nótt úti enn

En þrátt fyrir að ekk­ert tolla­stríð sé skollið á, þá er ekki þar með sagt að það geti ekki skollið á. Í til­kynn­ing­unni er sér­stak­lega tekið fram að það sé aðeins verið að slá aðgerðum á frest, og að ekk­ert verið gert að sinni. Nánari við­ræður muni halda áfram með það að mark­miði að styrkja við­skipta­sam­band milli ríkj­anna - eins og það er orðað. Sjálfur hefur Trump kennt Obama, og slæmri samn­inga­tækni hans, um hvernig fór. Það er ekki í fyrsta skipti sem hann grípur til þess að kenna for­vera sínum um það, þegar eitt­hvað ger­ist sem ekki er honum að skapi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár