Formaðurinn hefur ekki lesið gagnrýni Orkustofnunar

Formaður verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar ætlar ekki að tjá sig um gagn­rýni Orku­stofn­unar fyrr en allar umsagnir eru komnar fram. Hann segir lík­lega margar góðar ábend­ingar í skýrslu OS, en stofn­unin fái ekki meiri athygli en aðrir.

Formaður verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar, Stefán Gíslason, hefur ekki lesið skýrslu Orku­stofn­unar (OS) þar sem aðferðir verk­efn­is­stjórn­ar­innar við þriðja áfanga verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda er harð­lega gagn­rýnd. Stefán segir í sam­tali við Kjarnann að frestur til þess að skila inn athuga­semdum vegna skýrslu­draga um þriðja áfanga renni út í kvöld og gagn­rýni OS verði ekk­ert tekin fyrir sér­stak­lega.

OS vill fleiri kosti í nýtingu

Í lok síð­asta mán­aðar sendi OS erindi ­ásamt fylgi­skjali með gagn­rýni stofn­un­ar­innar til verk­efn­is­stjórn­ar. Það er meðal ann­ars mat OS að aðferðir verk­efn­is­stjórnar séu á köflum ekki í sam­ræmi við lög, grein­ing­ar­vinna sé ófull­nægj­andi og utan skyn­sem­is­marka, mat sé byggt á of þröngu sjón­ar­horni, skortur sé á sam­ræmi í ein­kunna­gjöf og flokkun handa­hófs­kennd og órök­studd. OS vill til að mynda setja mun fleiri virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokk heldur en verk­efn­is­stjórnin.

„Orku­stofnun fær ekk­ert meiri athygli en aðrir sem senda inn umsagnir,“ segir Stefán. „Það mun senni­lega koma mikið af gagn­rýni í umsögnum og þær verða allar teknar fyrir sem heild. Það eru örugg­lega gagn­legar ábend­ingar í umsögn Orku­stofn­unar og þær verða teknar fyrir eins og aðrar athuga­semdir sem ber­ast.“ Stefán vill að öðru leiti ekki tjá sig um málið fyrr en umsókn­ar­frestur rennur út og allar umsagnir verði teknar saman. 

Hlutverk verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar er að veita ráð­herra ráð­gjöf um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Samkvæmt lögum um ramma­á­ætlun ber umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, í sam­ráði og sam­vinnu við ráð­herra þann sem fer með orku­mál, að leggja fram á Alþingi til­lögu um flokkun virkj­un­ar­kosta eigi sjaldnar en á fjög­urra ára fresti. Sex manns eru í verk­efn­is­stjórn­inni, tveir skip­aðir án til­nefn­ingar og fjórir skip­aðir af stjórn­völdum og sveit­ar­fé­lögum. Verk­efn­is­stjórnin er skipuð til fjög­urra ára í senn. Núver­andi verk­efn­is­stjórn tók við árið 2013 og situr til 2017. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár