Orkustofnun gagnrýnir verkefnisstjórn rammaáætlunar harðlega

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar er harð­lega gagn­rýnd af Orku­stofnun í nýrri skýrslu. Stofn­unin segir vinnu hóps­ins veru­lega ábóta­vant, lögum sé ekki fylgt nægi­lega vel, mat á virkj­ana­kostum byggi á þröngu sjón­ar­horni, flokkun handa­hófs­kennd og órök­studd.

Búrfellsvirkjun Landsvirkjunar
Búr­fells­virkjun Lands­virkj­unar Mynd: Landsvirkjun

Orku­stofnun (OS) gagn­rýnir aðferðir verk­efn­is­stjórnar um þriðja áfanga Ramma­á­ætl­unar harð­lega í nýrri skýrslu. Stofn­unin segir vinnu verk­efn­is­stjórnar ábóta­vant og vill sjá mun fleiri virkj­ana­kosti setta í nýt­ingu heldur en lagt er til í skýrslu­drögum um þriðja áfanga verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda. Aðferðir verk­efn­is­stjórnar séu á köflum ekki í sam­ræmi við lög, grein­ing­ar­vinna sé ófull­nægj­andi og utan skyn­sem­is­marka, mat sé byggt á of þröngu sjón­ar­horni, skortur sé á sam­ræmi í ein­kunna­gjöf og flokkun handa­hófs­kennd og órök­studd. 

Setji ráðuneyti og Alþingi í erfiða stöðu

Í skýrslu OS segir að skýrslu­drög verk­efn­is­stjórnar séu ófull­nægj­andi og „setji ráðu­neyti og Alþingi í erf­iða stöðu við fram­hald verks­ins.“ Þá segir enn fremur: „Grein­ing­ar­vinna er ófull­nægj­andi, matið byggir á of þröngu sjón­ar­horni, skortur er á sam­ræmi í ein­kunna­gjöf milli áfanga og nið­ur­stöður flokk­unar eru ekki nægi­lega rök­studdar.“ Frétta­blaðið greinir frá skýrsl­unni í dag.

Verk­efn­is­stjórn þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar skil­aði skýrslu­drögum í maí síð­ast­liðnum. OS sendi erindi ásamt fylgi­skjali sem inni­heldur gagn­rýni stofn­un­ar­innar til verk­efn­is­stjórnar, þar sem verk­efn­is­stjórn bað um umsagnir vegna skýrslu­drag­anna.

Gætt óhóflegrar varfærni í flokkun

OS kemst að þeirri nið­ur­stöðu að for­sendur flokk­unar virkj­ana­kosta í vernd, bið eða nýt­ingu, byggi á veikum grunni og lýsi þröngri sýn vernd­unar. Þá er það mat Orku­stofn­unar að vinna verk­efn­is­stjórnar upp­fylli ekki mark­mið laga um vernd- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun nema að litlu leyti.

„Gætt er óhóf­lega mik­illar var­færni við flokkun virkj­un­ar­kosta í nýt­ing­ar­flokk, virkj­un­ar­kostir eru flokk­aðir í bið­flokk án þess að for­sendur um skort á gögnum séu til staðar og í mörgum til­vikum eru atriði sem eðli­lega væru tekin fyrir á stigi umhverf­is­mats fram­kvæmda til­greind sem ástæða fyrir því að virkj­anir flokk­ast ekki í nýt­ing­ar­flokk,“ segir í skýrslu OS. „For­sendur fyrir ein­kunna­gjöf þeirra tveggja fag­hópa sem flokkun verk­efn­is­stjórnar byggir á eru ekki fyrir hendi og marg­vís­lega grunn­vinnu vantar til þess að hægt sé að bæta úr ann­mörkum þess­ara draga að loka­skýrslu fyrir end­an­lega útgáfu skýrsl­unnar.“

Segja mikilvæg atriði vanta

Þá gagn­rýnir OS verk­efn­is­stjórn­ina fyrir að til­taka ekki í skýrslu­drög­unum ákveðin atriði sem skipti máli í flokkun virkj­ana­kosta. Þar er nefnt efna­hags­legt mik­il­vægi orku­fram­leiðsl­unnar fyrir hag­kerfið, Raf­orku­spá 2015 til 2050, umfjöllun um sam­fé­lags og efna­hags­leg áhrif í eldri skýrslum og verk­efnum, umhverf­is­mál, loft­lags­mál og end­ur­nýj­an­lega orka og kerf­is­á­hættu og þjóðar­ör­yggi raf­orku­vinnsl­unnar.

OS fer einnig yfir þá virkj­ana­kosti sem verk­efn­is­stjórn flokkar niður í vernd, bið eða nýt­ingu.

„Það er for­vitni­legt að bera saman rök­semdir fyrir því að virkj­un­ar­kostum sé raðað í nýt­ingu, vernd eða bið. Við þá skoðun kemur í ljós að sam­bæri­leg rök geta orðið til þess að virkj­un­ar­kostir lendi í hverjum sem er af þessum flokkum,“ segir í skýrslu OS.

Vilja færa úr bið í nýtingarflokk

OS nefnir þar kosti sem eigi að setja í nýt­ing­ar­flokk, sem er á skjön við það sem verk­efn­is­stjórn segir: Skrokköldu­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun og Trölla­dyngja. Varðandi Hvera­hlíð II, sem verk­efn­is­stjórn telur að setja eigi í nýt­ing­ar­flokk, til­tekur OS sér­stak­lega að þar hafi verk­efn­is­stjórnin kom­ist að skyn­sam­legri nið­ur­stöðu.

Í skýrslu sinni seg­ist OS von­ast til að draga megi lær­dóm af þeim ábend­ingum sem komi frá stofn­un­inni svo „næsta áfanga verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­unar verði tekið á öllum þeim þáttum sem mark­mið lag­anna ná yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár