Bjarni vill þriggja flokka stjórn – Katrín vill geyma viðræður fram yfir helgi

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann telji það eðli­legt næsta skref að ræða við Bjarta fram­tíð og Viðreisn á ný. Frekar eigi að vinna með mögu­leik­ann á þriggja flokka stjórn en fimm flokka stjórn eða þjóð­stjórn. Þetta kom fram eftir fund Bjarna með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands í morgun.

Bjarni sagð­ist jafn­framt hafa trú á því að lausn finn­ist á málum, og að skýr­ingar væru á því hvers vegna sú staða er komin upp að engar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru í gangi eða hafa borið árangur. „Menn hafa verið óraun­sæir, koma út úr kosn­inga­bar­átt­unni í miklum eld­móð með sín stefnu­mál efst í huga og velta fyrir sér hvernig megi hrinda þeim í fram­kvæmd, en eru smám saman að átta sig á því að það er kannski ekki það sem skiptir mestu máli til þess að mynda rík­is­stjórn.“

Guðni Th. Jóhann­es­son hafði boðað alla for­menn flokka á sinn fund í dag á skrif­stofu for­seta Íslands við Sól­eyj­ar­götu. Bjarni var fyrstur í röð­inni og svo kom Katrín Jak­obs­dóttir for­maður Vinstri grænna. Næst mætti Benedikt Jóhann­es­son for­maður Við­reisnar, en hann situr nú á fundi með for­set­anum.

Katrín sagði við fjöl­miðla eftir fund sinn við for­set­ann að það væri hennar skoðun að fólk sé orðið svo­lítið þreytt, að minnsta kosti ætti það við um hana sjálfa. „Ég held að það væri ágætt ef við geymdum okkur frek­ari við­ræður fram yfir helg­ina.“ Hún sagði nú mik­il­vægt að þingið geti haf­ist og glímt við þau mál sem þar liggi fyrir, og hún sagð­ist ekki hafa áhyggjur af því þó ekki sé búið að mynda rík­is­stjórn.

Katrín sagð­ist ekki úti­loka fimm flokka rík­is­stjórn­ina sem hún leiddi við­ræður um að reyna að mynda þar til í síð­ustu viku. Hún tók þó fram að flestir flokk­arnir, en ekki allir, væru búnir að máta sig hver við annan. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki tekið þátt í form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum, og sagði Katrín að hún hefði átt góðan fund með for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár