Frá þurrvörum til þrautaleikja: COVID-áhrifin á heimilislífið

Bakað, eldað, málað og spilað. Allt heima­gert. Ýmsar breyt­ingar urðu á hegðun okkar í hinu dag­lega í lífi á meðan far­ald­ur­inn stóð hvað hæst. Sum neyslu­hegðun er þegar að hverfa aftur til fyrra horfs en önnur gæti verið komin til að vera.

Hvað er hægt að gera til að drepa tím­ann þegar veiru­far­aldur geisar og sund­laugar, skíða­svæði og barir eru lok­aðir og veru­legar tak­mark­anir eru á flestu öðru í sam­fé­lag­inu? Svarið er: Fjöl­margt.

Síðustu tólf mán­uði hefur það sýnt sig að fólk deyr ekki ráða­laust þegar kemur að því að finna sér eitt­hvað til dund­urs er rútínan fer úr skorðum og heim­ilið verður mið­stöð allra þátta lífs­ins á auga­bragði. Þegar fjöl­skyldan og aðeins nán­ustu vinir eru þeir sem borgar sig að umgang­ast.

Í til­efni af því að ár er liðið frá því að fyrsta smitið greind­ist inn­an­lands og far­ald­ur­inn hófst leit­aði Kjarninn til nokk­urra aðila og spurði: Hverju breytti COVID þegar kemur að lifn­að­ar­háttum okkar og neyslu?

Hjarta heimilisins

Í upp­hafi fyrstu bylgju kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, þegar sam­komu­bann var fyrst sett á, greip um sig ákveð­inn ótti sem sýndi sig í því að fólk hamstr­aði margs­konar þurr­vörur. „Við vorum dug­leg að miðla því að nóg væri til af mat og fljót­lega gekk þetta til baka,“ segir Hjördís Elsa Ásgeirs­dóttir, mark­aðs­stjóri Krón­unnar. Hún segir að á und­an­förnu ári hafi komið fram ýmsar sterkar neyslu­breyt­ingar sem rekja megi til far­ald­urs­ins. Sumar stopp­uðu stutt en ann­arra langvar­andi áhrifa gætir enn, að sögn Hjör­dísar. Hún nefnir sem dæmi að við­skipta­vinir heim­sæki versl­anir Krón­unnar sjaldnar en áður en kaupi meira inn í einu. Í fyrstu bylgj­unni hafi Krónan sett Snjall­verslun sína í loftið, app sem hægt er að panta heim­send­ingu í gegnum. „Við sjáum að margir hafa haldið áfram að fá mat­vör­urnar sendar heim enda mjög þægi­legt.“

Bakstur hefur líklega sjaldan verið meiri á heimilum landsmanna frá því í seinna stríði. Eða þar um bil.
Bakstur hefur lík­lega sjaldan verið meiri á heim­ilum lands­manna frá því í seinna stríði. Eða þar um bil.

Síðasta vor fór fólk að baka oftar og elda frá grunni heima. Þá minnk­aði sala á til­búnum réttum veru­lega, s.s. sam­lokum og salötum. Á sama tíma „rauk sala á hveiti og öðrum bök­un­ar­vörum upp,“ segir Hjördís.

Í haust mátti svo sjá ýmsar áhuga­verðar breyt­ingar í neyslu­hegðun og sem dæmi segir Hjördís að sala á mat­vöru tengdum jól­unum hafi byrjað mjög snemma. „Vörur eins og pip­ar­kökur, smáköku­deig og jóla­hlað­borðs­rétt­irnir okkar fóru á mikið flug. Fólk var aug­ljós­lega að halda jóla­hlað­borðin heima.“

En nú er hegð­unin að fær­ast aftur til fyrra horfs. Fólk er aftur farið að sækja í til­búna rétti. „Líklega eru margir orðnir þreyttir á að hafa útbúið allar mál­tíðir dags­ins heima,“ segir Hjördís. Réttir á borð við sushi, til­búnar súpur og til­búið lasagna eru meðal þeirra sem njóta nú aftur mjög vax­andi vin­sælda.

Margir snéru sér að garðyrkju af ýmsu tagi í faraldrinum.
Margir snéru sér að garð­yrkju af ýmsu tagi í far­aldr­inum.

Grænir fingur

En Íslend­ingar voru ekki aðeins dug­legir að nota eld­húsið í á meðan far­ald­ur­inn herj­aði heldur voru þeir sér­lega áhuga­samir um að dytta að hinu og þessu heima­við. Fram­kvæmda­gleðin var aug­ljós, segir Árni Reynir Alfreðs­son, mark­aðs­stjóri BYKO. „Það hefur verið afskap­lega mik­ill gangur til dæmis í palla­smíði og öðru tengdu garð­verk­unum svo sem sölu á áburði, sláttu­vélum, grillum og svo fram­vegis.“

Þá hafa reið­hjól og trampólín selst „eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn,“ segir Árni. „Fólk hefur verið svo mikið heima­við og lík­ams­rækt­ar­stöðvar hafa verið lok­aðar þannig að slíkir hlutir hafa nýst í hreyf­ingu og skemmtun.“

Parket og flísar seldust vel í faraldrinum enda fólk mikið heimavið og nýtti tímann til viðhalds.
Parket og flísar seld­ust vel í far­aldr­inum enda fólk mikið heima­við og nýtti tím­ann til við­halds.

Þá segir Árni gríð­ar­lega mikla sölu­aukn­ingu hafa verið í öllum vörum er tengj­ast breyt­ingum á heim­il­inu, s.s. í par­k­eti, flísum, hrein­lætis- og blönd­un­ar­tækjum, máln­ingu, ljósum, gluggum og hurðum. Þetta tengir hann m.a. við mikla hreyf­ingu á fast­eigna­mark­aðnum. „Eins hefur sam­hliða þessu farið ofboðs­lega mikið magn af bygg­inga­vörum, það er að segja timbri, plötum og annarri gróf­vöru sem þarf til að breyta hús­næði.“

Árni segir að svo virð­ist sem fag­menn af öllu tagi séu að und­ir­búa sig fyrir fram­kvæmdir og því séu „afar góð teikn á lofti fyrir bygg­inga­vöru­mark­að­inn á þessu ári“.

Grímur og fleiri grímur. Alls konar grímur seldust eins og heitar lummur meirihluta síðasta árs.
Grímur og fleiri grímur. Alls konar grímur seld­ust eins og heitar lummur meiri­hluta síð­asta árs.

Seldu yfir eina milljón gríma

Og í búð­unum, og ann­ars staðar þar sem ekki var hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð við næsta mann, var í haust sett á grímu­skylda. Margir höfðu byrjað að bera grímur víða áður – sér­stak­lega fólk í við­kvæmum hópum. Spreng­ing varð því í sölu þeirra.

Fyr­ir­tækið sem lík­lega flytur inn mest af þeim og selur svo í apó­tek, versl­anir og víðar, heitir Kemi. „Við, ólíkt mörgum erum búnir að vera að selja grímur í fjölda ára til iðn­að­ar­manna og iðn­fyr­ir­tækja,“ segir Hermann Guð­munds­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Inn­flutn­ingur á grímum sem hann kallar COVID-grímur, stórjókst á því herr­ans ári 2020 og í fyrra seldi Kemi yfir milljón slíkar. Milljón grímur vega að sögn Hermanns um 15 tonn í flutn­ingi.

Guð­mundur H. Björns­son, mark­aðs­stjóri Lyfju, segir að strax í jan­úar og febr­úar í fyrra orðið mikil aukn­ing í eft­ir­spurn eftir grímum. En hún var nær ein­göngu frá erlendum ferða­mönnum sem staddir voru hér á landi.

Í ágúst jókst eft­ir­spurnin gríð­ar­lega að sögn Guð­mundar sam­hliða breyttum áherslum frá sótt­varna­lækni. Hún var svo nokkuð stöðug það sem eftir lifði síð­asta árs. Töluvert hefur hins vegar dregið úr henni á þessu ári.

Í lok maí var búinn til sér­stakur toll­flokkur; „And­lits­grímur ætl­aðar til að vernda gegn mögu­legum sýk­ingum, notað sem hlífð­ar­bún­aður fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk“. Samkvæmt gögnum Hag­stof­unnar voru slíkar grímur fluttar inn frá fjölda landa, allt frá Banda­ríkj­unum til Belgíu og Kína til Kambódíu. Samtals um 30 tonn. Inn­flutn­ing­ur­inn var lang­mestur í nóv­em­ber eða tæp 10 tonn. Grímur má finna í fleiri toll­flokkum en við látum þennan duga til að varpa ljósi á umfangið.

Yatsy átti endurkomu í faraldrinum.
Yatsy átti end­ur­komu í far­aldr­inum.

Kanntu kotru?

Og eitt­hvað þurftum við að hafa við að vera í nýupp­gerðum húsum og eftir góða heima­lag­aða mál­tíð. Margir gripu til þekktra aðferða til að drepa tím­ann, eins og að púsla, tefla og spila (með hefð­bund­inn spila­stokk að vopni). Já – og svo var kotra líka vin­sæl. Þú last rétt: Kotra. Gamla góða yatzýið átti svo einnig góða end­ur­komu.

„Púslu­spila­sala meira en þre­fald­að­ist á milli ára,“ segir Þorlákur Lúð­víks­son hjá Spila­vinum. Hann bendir á að sala á púslu­spilum hafi reyndar auk­ist í heim­inum öllum og dæmi voru um að stórar versl­anir ytra tæmd­ust af púslu­spilum.

Sala jókst einnig á tveggja manna spilum enda segir Þorlákur að fólk velji gjarnan spil sem það þekki. Jafnliða jókst hönnun og fram­leiðsla á slíkum spilum.

Hann segir að vin­sældir sam­vinnu­spila og þrauta­leikja hafi einnig auk­ist til­finn­an­lega. Þannig seld­ist Pandemic-ser­ían ítrekað upp í Spila­vinum.

Margir settust að tafli og kenndu börnum sínum mannganginn.
Margir sett­ust að tafli og kenndu börnum sínum mann­gang­inn.

„Fólk sem gerði áður aðra hluti en að spila kemur inn í mengið því það vill bæta sam­veru­stund­ina með fjöl­skyld­unni; finna hluti til að gera saman því allir eru saman hvort eð er,“ segir Þorlákur. „Það leit­aði í það sem það kunni; klass­ísk spil. Við höldum að margir muni hugsa hlýtt til stund­anna sem það eyddi með fjöl­skyld­unni.“

Hann telur að fólk hafi í sam­komu­banni áttað sig á því að það hefði ekki kennt börnum sínum klass­ísku, gömlu spilin sem það ólst sjálft upp við. Þar hafi skák komið sér­stak­lega sterk inn og juku sjón­varps­þætt­irnir Queens Gambit enn á skák­á­hug­ann.

Monopoly og Catan hafa ekki verið til frá því fyrir COVID, svo fólk þurfti að leita annað líka og upp­götv­aði þannig ný spil sem það hefði lík­lega ann­ars látið fram hjá sér fara, segir Þorlákur. „En það er lík­legt að fólk eigi eftir henda inn einum eða tveimur COVID-brönd­urum á sama tíma og það stillir upp Pandemic.“

Einhverjir hafa dustað rykið af Monopoly en aðrir uppgötvuðu ný og spennandi spil
Ein­hverjir hafa dustað rykið af Monopoly en aðrir upp­götv­uðu ný og spenn­andi spil

Óvæntasta aukn­ingin er lík­lega í partí­spilum. Það þarf þó ekki að þýða að fólk hafi almennt verið með stand­andi partí í miðjum far­aldri heldur er lík­legri skýr­ing sú að partí­spil geta verið fjöl­skyldu­spil þegar börnin á heim­il­inu eru komin langt fram á ung­lings­ald­ur­inn, bendir Þorlákur á.

Skýr­ingin á vin­sældum spil­anna er nokkuð aug­ljós – við vorum öll meira og minna heima. En hvað skýrir ásókn í púslu­spil að mati Þorláks? „Mig grunar ástæða þess að fólk leit­aði í púsl sé af sama meiði og af hverju það leit­aði í borð­spil. Púsl eru þekkt stærð; það er auð­velt að sam­vinna púsl; púsl geta tekið eins langan tíma í einu og fólk vill; það er auð­velt að standa upp frá púsli og auð­velt að setj­ast niður aftur; fólk getur komið inn í púsl í miðjum klíðum og tekið þátt.“

Í fjarsambandi við vinnu og skóla

Afkoma ELKO á síð­asta ári var sú besta frá upp­hafi. „Við höfum í raun séð aukn­ingu í sölu í öllum flokkum,“ segir Arin­björn Hauksson, mark­aðs­stjóri. Tölvur, sjón­vörp, heim­il­is­tæki ruku út og sömu­leiðis var sala í raf­tækjum sem tengj­ast afþr­ey­ingu, s.s. snjallúr og heyrn­ar­tól, mikil.

Viðvera fólks heima við jókst gríð­ar­lega síð­ast­liðið ár, bæði hvað varðar frí­tíma og vinnu, og segir Arin­björn hana hafa aukið þörf á raf­tækjum. „Margir þurftu að koma upp aðstöðu fyrir heima­vinnu með til­heyr­andi bún­aði og sáum við það mjög greini­lega, sér­stak­lega í fyrstu og annarri bylgju.“

Ekkert er betra en að vera í þægilegum fötum heimavið.
Ekkert er betra en að vera í þægi­legum fötum heima­við.

Trendí jogginggallar slógu í gegn

En hvernig höfum við viljað klæða okkur í far­aldr­inum? Líkt og ann­ars staðar í heim­inum eru þægi­leg föt, „heima­föt“ vin­sæl. Þetta seg­ist Tania Lind, mark­aðs­stjóri NTC, hafa fundið í sölu á fatn­aði versl­ana fyr­ir­tæk­is­ins. „Það helsta sem við sjáum breyt­ingu á er að fólk sæk­ist meira í trendí jogg­ing­galla en áður,“ segir hún. Einnig hafa grófir skór, „boots“ eins og Tania kallar þá, notið gríð­ar­legra vin­sælda. Þó að fólk hafi almennt ekki verið að stunda fínar sam­komur á meðan sam­komu­tak­mark­anir voru mestar segir Tania alltaf eft­ir­spurn eftir spari­fötum þó að vissu­lega hafi hún minnkað veru­lega þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst. „Samhliða til­slök­unum á sam­komu­banni finnum við þó sam­stundis fyrir aukn­ingu á sölu á fínni fötum,“ segir hún. „Fólk þyrstir í að klæða sig upp og fara út á lífið. Ég er þó nokkuð viss um að trendí jogg­ing­gall­arnir séu komnir til að vera enda ein­stak­lega flottir og þægi­legir á sama tíma.“

Skíði af ýmsum stærðum og gerðum nutu sérstakra vinsælda.
Skíði af ýmsum stærðum og gerðum nutu sér­stakra vin­sælda.

Á skíðum skemmti ég mér, trallallala

„Það er skemmst frá því að segja að það hefur orðið algjör spreng­ing í allri úti­vist,“ segir Ásmundur Þórð­ar­son, mark­aðs­stjóri Fjalla­kof­ans. Göngu­skór og allur úti­vi­starfatn­aður hefur að hans sögn rokið út og sömu sögu er að segja með allan skíða­búnað. Sér­stak­lega segir Ásmundur áhuga­vert að sjá auk­inn áhuga á skíða­göngu og fjalla­skíðum.

„Í skíða­göngu hafa bæði hin hefð­bundnu braut­ar­skíði verið að selj­ast vel en mesta aukn­ingin er í utan­braut­ar­skíðum og bún­aði tengdum þeim. Við í Fjalla­kof­anum fáum þá til­finn­ingu að annar hver Íslend­ingur sé að fara að ganga yfir Vatna­jökul á skíðum í vor og sumar.“

Margir hafa líka bæst í þann hóp sem stundar fjalla­skíði þar sem hæll­inn er los­aður og skinn sett undir skíðin til að hægt sé að ganga upp á þeim og renna sér svo niður. „Þar sem tak­mark­anir hafa verið á fjölda á skíða­stöðum og ekki fer skíða­fólk til útlanda á skíði finnst mörgum þetta spenn­andi val­kostur.“

Útsýnið af Esjunni heillar marga.
Útsýnið af Esjunni heillar marga.

Upp, upp, uppá fjall

Auður Elva Kjart­ans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Skóg­rækt­ar­fé­lags Reykja­víkur, segir að umferð fólks um Heiðmörk og Esju hafi auk­ist mikið frá því far­ald­ur­inn hófst. Þannig að nýi bún­að­ur­inn sem fólk hefur fjár­fest í hefur þá vænt­an­lega komið að góðum notum.

Teljari var settur upp við Esjuna í des­em­ber og síðan þá ganga að með­al­tali um 80 manns á fjallið hvern virkan dag og um 200 hvorn dag­inn um helgar.

Aug­ljós­lega hefur góða veðrið á suð­vest­ur­horni lands­ins síð­ustu vikur og mán­uði haft sitt að segja um göngu­gleð­ina sem hel­tekið hefur marga. Enda fóru veð­urguð­irnir sér­lega mjúkum höndum um höf­uð­borg­ar­búa og nær­sveita­menn í febr­úar á meðan sval­ara var norð­aust­an­lands. Hiti var þó alls staðar yfir með­al­lagi síð­ustu 30 ára. Hann var hvorki meira né minna en 2,1 stigi yfir með­al­lagi í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár