Búið að birta ákæru gegn tveimur mönnum fyrir að skipuleggja hryðjuverk

Í sept­em­ber voru tveir menn hand­teknir grun­aðir um að hafa ætlað að fremja hryðju­verk á Íslandi. Þeir eru taldir hafa ætlað að ráð­ast að Alþingi og nafn­greindum stjórn­mála­mönnum. Búið er að birta lög­mönnum þeirra ákæru.

Hér sést annar mannanna vera leiddur inn í héraðsdóm eftir handtöku í september.
Hér sést annar mann­anna vera leiddur inn í hér­aðs­dóm eftir hand­töku í sept­em­ber. Mynd: RÚV/Skjáskot

Búið að er birta lög­mönnum tveggja manna sem hafa verið í haldi frá því um miðjan sept­em­ber í tengslum við rann­sókn á hryðju­verka­mál­inu svo­kall­aða ákæru í mál­inu. Þeir hafa kynnt umbjóð­endum sínum efni ákærunnar og búist er við að málið verði þing­fest í næstu viku.

Þetta stað­festir Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður ann­ars mann­anna, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að menn­irnir tveir séu ákærðir fyrir brot gegn 100. gr. a. hegn­ing­ar­laga sem fjallar meðal ann­ars um hryðju­verk.

Þar segir að sá sem hóti því að fremja hryðju­verk skuli sæta refs­ingu með allt að ævi­löngu fang­elsi sé brotið framið í þeim til­gangi „að valda almenn­ingi veru­legum ótta eða þvinga með ólög­mætum hætti íslensk eða erlend stjórn­völd eða alþjóða­stofnun til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert eða í því skyni að veikja eða skaða stjórn­skipun eða stjórn­mála­legar, efna­hags­legar eða þjóð­fé­lags­legar und­ir­stöður ríkis eða alþjóða­stofn­unar.“

Gæslu­varð­hald yfir mönn­unum átti að renna út í dag og hér­aðs­sak­sókn­ari þurfti að birta þeim ákæru til að fá það fram­lengt. Síðar í dag verður farið fram á að menn­irnir tveir sitji áfram í gæslu­varð­haldi í fjórar vikur til við­bótar.

Annar mann­anna losn­aði úr gæslu­varð­haldi degi áður en hann var hand­tek­inn. Ástæða þess var grunur um vopna­laga­brot fyrr á þessu ári.

Stjórnmálamenn og verkalýðsleiðtogi á meðal þeirra sem þeir ræddu

Þann 21. sept­em­ber 2022 hand­tók sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra fjóra menn í umfangs­miklum aðgerð­um, ann­ars vegar í Holta­smára í Kópa­vogi og hins vegar í iðn­að­ar­hús­næði í Mos­fells­bæ. Um tíma tóku um 50 lög­reglu­menn þátt í þeim. Menn­irnir fjórir voru grun­aðir um að hafa staðið að und­ir­bún­ingi hryðju­verka. Tveir þeirra, menn á þrí­tugs­aldri, voru síðar úrskurð­aðir í gæslu­hald og hafa setið í slíku alla tíð síðan. Hinum tveimur var sleppt skömmu eftir hand­töku. Rann­sókn lög­reglu hefur meðal ann­ars snú­ist um að kanna hvort menn­irnir teng­ist nor­rænum öfga­sam­tök­um.

[adspot]Fjór­menn­ing­arnir höfðu verið til rann­sóknar vikum sam­an. Þeir eru grun­aðir um að hafa fram­leitt skot­vopn með þrí­vídd­ar­prentum og safnað að sér umtals­verðu magni af hefð­bundn­ari skot­vopn­um. Á meðal þeirra vopna sem fund­ust á þeim stöðum sem leitað var voru skamm­byssur og hríð­skota­byss­ur, en skot­vopnin skiptu tugum og skot­færin sem menn­irnir höfðu undir höndum þús­und­um. Sum vopnin voru hálf­sjálf­virk.

[links]Á upp­lýs­inga­fundi lög­regl­unnar í sept­em­ber kom fram að árás­irnar hefðu meðal ann­ars átt að bein­ast að Alþingi og lög­reglu. Morg­un­blaðið hafði í kjöl­farið eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að menn­irnir hefðu sýnt árs­há­tíð lög­reglu­manna, sem halda átti skömmu eftir að menn­irnir voru hand­teknir, sér­stakan áhuga. Í blað­inu kom einnig fram að á meðal þess sem hafi fund­ist við hús­leit lög­reglu hafi verið þjóð­ern­is­of­stæk­is­á­róð­ur. Á meðal ætl­aðra fyr­ir­mynda mann­anna hafi verið And­ers Behring Breivik, sem myrti 77 ein­stak­linga í Osló og Útey árið 2011.

Á RÚV var greint frá því að menn­irnir tveir hefðu rætt sín á milli um að fremja fjöldamorð og nefnt lög­reglu­menn, Alþingi og fleira í því sam­hengi. Þetta hafi komið fram í síma- og tölvu­gögnum sem fund­ist hafi. Á meðal þeirra sem nefndir voru í sam­tölum mann­anna voru Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Píratar, og Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Smári McCarthy, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata. Allt þetta fólk var boðað til skýrslu­töku vegna máls­ins.

Sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum á að refsa fyrir hryðju­verk með allt að ævi­löngu fang­elsi.

Faðir ríkislögreglustjóra sagður hafa selt þeim vopn

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri þurfti að segja sig frá rann­sókn máls­ins eftir að það kom í ljós að faðir hennar, Guðjón Valdi­mars­son vopna­sali, hefði verið nefndur í yfir­heyrslum. Það gerði hún að kvöldi dags 28. sept­em­ber. Þann sama dag hafði faðir hennar verið yfir­heyrður á heim­ili sínu og fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins, en hann er grun­aður um vopna­laga­brot.

Menn­irnir tveir sem nú hafa verið ákærðir fyrir hryðju­verk báru við yf­ir­heyrsl­ur að hálf­sjálf­virkt skot­vopn í þeirra fór­um væri feng­ið frá Guð­jóni. Hann neit­aði því þegar lög­regla spurði hann um það.

Hægt er að lesa umfjöllun Stund­ar­innar um yfir­heyrsl­una yfir Guðjóni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár