Argentína: „Hvílíkt og annað eins víti!“

Undrun og von­brigði ein­kennir við­brögð argent­ínskra fjöl­miðla í kjöl­far jafn­teflis Argent­ínu við Ísland fyrr í dag.

Lionel Messi svekktur í lok leiks Argentínu gegn Íslandi.
Lionel Messi svekktur í lok leiks Argent­ínu gegn Íslandi. Mynd: EPA

Argent­ínskir miðlar eru ekki par sáttir við frammi­stöðu lands­liðs síns í leik sínum gegn Íslandi. Leik­ur­inn end­aði með 1-1 jafn­tefli, en víða er minnst á varn­ar­leik Íslend­inga auk vít­is­ins sem Hannes Hall­dórs­son varði gegn Messi á 64. mín­útu.

Argent­ínska blaðið Clarin tók við­tal við Jorge Sampaoli, þjálf­ara lands­liðs­ins, rétt eftir leiks­lok. Þrátt fyrir von­brigði vegna jafn­teflis í þessum leik var Sampaoli bjart­sýnn á fram­haldið. „Þetta er bara byrj­unin fyrir okkur. Við munum læra á mis­tökum okkar og verðum að safna krafti til að vinna næsta leik,“ sagði þjálf­ar­inn.

Íþrótta­mið­ill­inn Olé er ekki jafn­já­kvæður og Sampaoli, en á for­síðu hans stendur stórum stöfum “Qué penal!,” sem þýða mætti sem „hví­líkt og annað eins víti!“ Þar einnig skrifað um brot­lend­ingu Argent­ínu gegn Íslandi, þrátt fyrir fjöl­mörg sókn­ar­færi.

"Völundarhús" íslensku varnarinnar

Blaðið La Nacion fjall­aði einnig um von­brigði vegna úrslita leiks­ins. Samkvæmt þeim var ótt­inn um vanda­mál lands­liðs­ins á fyrsta leik móts­ins á rökum reistur, auk þess sem varsla Hannesar gegn Messi hafi verið óvæntur „bónus“ sem jók enn á óör­yggi liðs­ins. Þrátt fyrir að margir áhorf­endur leiks­ins í Moskvu hafi búist við flug­elda­sýn­ingu frá Messi hafi hann ekki kom­ist úr “völ­und­ar­húsi” íslensku varn­ar­innar.

Samkvæmt La Nacion voru úrslit leiks­ins and­legt og fót­bolta­legt sjokk fyrir Argent­ínu­menn, en hins vegar sigur fyrir Íslend­inga. „Ísland skráði sig á spjöld sög­unnar, þökk sé Argent­ínu sem ollu von­brigðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár