Hljómsveit úr myrkustu innviðum Kópavogs

„Við erum bara þessi dæmi­gerðu hjón um fer­tugt, með þrjú börn, fjöl­skyldu­bíl og íbúð í myrk­ustu innviðum Kópavogs,“ segir Ívar Páll Jónsson í hljóm­sveit­inni Jane Tel­ephonda og á þar við Linda­hverfið. „Linda­hverfið er smám saman að taka við af 101 Reykja­vík sem höf­uð­stöð menn­ing­ar­lífs á Stór-Kópa­vogs­svæð­inu,“ segir hann. „We be repres­ent­ing the Lauga­hverfi hood,“ bætir hann við. „Af bestu getu.“

Konan hans heitir Ásdís Rósa Þórð­ar­dóttir og þau hjónin stofn­uðu hljóm­sveit­ina Jane Tel­ephonda árið 2015. Til að byrja með voru þau bara tvö, en nýverið fengu þau til liðs við sig góða og gamla vini Ívars, þá Albert Þor­bergs­son, Grétar Má Ólafsson, Hólm­stein Inga Hall­dórs­son, Pétur Þór Sig­urðs­son og Rafn Jóhann­es­son, auk þess sem bróðir Ásdísar, Hans Júlíus, gekk í hljóm­sveit­ina. Hann tók einmitt þátt í sjón­varps­þætt­inum X-Factor með systur sinni árið 2006, en þau skip­uðu dúett­inn JÁ og gerðu það gott í þess­ari vin­sælu keppni. Nú er Jane Tel­ephonda að gera hljóm­plöt­una Into the Light We Go og safnar fyrir gerð hennar á Karolina Fund. Kjarninn hitti Ívar Pál og tók hann tali.

Góður félagsskapur

„Mér hefur alltaf fund­ist Ásdís vera með of góða rödd til að láta ekki í sér heyra,“ segir Ívar Páll. „Hún er frá­bær söng­kona, og hið sama má segja um bróður hennar. Hann er reyndar ekki söng­kona, en þú veist hvað ég meina. Það var um að gera að keyra systk­inin í gang, ef svo má segja,“ bætir hann við. „Vinir mínir í sveit­inni eru líka mjög hæfi­leik­a­ríkir og góðir drengir og mér þykir vænt um þá. Það er gott að vera með þessu fólki í hljóm­sveit.“

Ívar seg­ist nota kassagít­ar­inn eins og sumir noti áfengi – til að slaka á og kom­ast í betra hug­ar­á­stand. „Ég sest niður með gít­ar­inn, glamra ein­hverja hljóma og söngla meló­díur, ekki vegna þess að ég sé með­vitað að reyna að semja lög, heldur vegna þess að það fyllir eitt­hvert tóma­rúm í hjart­anu. Ég er eirð­ar­laus og tómur ef ég hef ekki gít­ar­inn innan seil­ingar,“ segir hann.

Það er ekki hlaupið að því að skil­greina tón­list Jane Tel­ephonda, en hún er ein­hvers konar sam­nefn­ari þess sem sveit­ar­með­limir fíla í tón­list, með vænum skammti af sér­kennum laga­höf­und­ar­ins. Hljóm­sveitin hefur þegar gefið út tvö lög, „Transmuted Saltness“ og tit­il­lag nýju plöt­unnar, „Into the Light We Go“. „Þetta síð­ara lag er efn­is­lega svo­lítið týpískt fyrir það sem við erum að fjalla um. Ég samdi það til Ásdísar og það fjallar um fyrstu átta árin okkar saman; börnin okkar þrjú og þessa sam­eig­in­legu ferð okkar til móts við eilífð­ina,“ segir Ívar.

Kærleikurinn er mikilvægastur

Ívar segir að umfjöll­un­ar­efnið sé að mestum hluta kær­leik­ur­inn. „Það eru alltof mikil átök í sam­fé­lag­inu. Fólk er almennt of upp­tekið af því að oln­boga sig áfram og koma vilja sínum fram á kostnað náung­ans, en við ættum öll að gera okkur grein fyrir því að kær­leikur og friður eru miklu betri tæki til þess að láta okkur öllum líða betur. Það er fátt fal­legra og heilla­væn­legra en frjáls sam­skipti, sem ein­kenn­ast af umburð­ar­lyndi og vænt­um­þykju. Þegar allt kemur til alls erum við svo lík. Við viljum flest fá að vera í friði með lík­ama okkar og einka­mál og það er okkur í blóð borið að sýna náung­anum ást og virð­ingu, því þannig viljum við að aðrir komi fram við okkur sjálf og þannig líður okkur best í hjart­anu. Einu sinni fannst mér frasar eins og „all you need is love“ vera inni­halds­lausar klisjur, en núna átta ég mig á því að það er meira á bak við þau orð en við fyrstu sýn,“ segir Ívar og bætir að lokum við: „Kær­leik­ur­inn er mik­il­vægastur.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár