90 milljóna tap á frímerkjasölu til safnara

Upp­safnað tap á frí­merkja­sölu Íslands­pósts til safn­ara frá árinu 2014 til 2018 er tæp­lega 90 millj­ónir króna. Póst­ur­inn stefnir því á að hætta þjón­ustu við frí­merkja­safn­ara sem hluti af hag­ræð­ing­ar­að­gerðum fyr­ir­tæks­ins.

Mikið tap hefur verið á frí­merkja­sölu Íslands­pósts síð­ustu ár og stefnir fyr­ir­tækið því á að hætta þjón­ustu við frí­merkja­safn­ara næstu ára­mót vegna hag­ræð­ingar innan fyr­ir­tæk­is­ins. Upp­safnað tap til safn­ara er tæpar 90 millj­ónir á síð­ustu fimm árum. For­stjóri Íslands­póst segir ástæð­una fyrir þessu mikla tapi sé að tekjur hafi dreg­ist saman vegna fækk­unar safn­ara á meðan ekki hefur tek­ist að lækka kostnað í sama mæli.

Sala á frímerkjum dregist verulega saman

Ríkið hefur einka­rétt á að gefa út frí­merki og hefur falið fyr­ir­tæki sínu, Íslands­pósti, fram­kvæmd­ina grund­velli samn­ings um alþjón­ustu. Íslands­póstur hefur starf­rækt sér­staka skrif­stofu, Frí­merkja­sölu Póstsins, til að gefa út og selja frí­merki.

Frí­merkja­sala er tví­þætt, ann­ars vegar sala á frí­merkjum sem burð­ar­gjald og hins vegar sala til safn­ara. Íslands­póstur hefur rekið metn­að­ar­fulla frí­merkja­út­gáfu í ára­tugi og hafa kaup safn­ara, bæði hér­lendis og erlendis, verið und­ir­staðan í sölu nýrra frí­merkja síð­ustu ár.

Sala frí­merkja hefur hins vegar dreg­ist veru­lega saman á síð­ustu árum. Í fyrra seld­ust 2,7 milljón stykki af frí­merkjum hjá Frí­merkja­sölu Póstsins, þar af voru 119 þús­und seld til safn­ara. Árið 2017 seldi Póst­ur­inn 3,5 milljón stykki og þar af 144 þús­und til safn­ara. Það sem af er ári hafa selst 1,2 milljón stykki þar af 57 þús­und til safn­ara en enn eru tvær útgáfur eftir.

90 milljóna tap á fimm árum

Birgir Jónsson, for­stjóri Íslands­pósts, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að sam­drátt­inn megi rekja til mik­illar fækk­unar í frí­merktum bréfum en stærstur hluti bréfa­pósts er stimpl­aður glugga­póstur í dag. Auk þess hafi frí­merkja­söfn­urum fækkað tölu­vert eða um það bil tíu pró­sent ár frá ári að jafn­aði, að því er fram kemur í svari Íslands­pósts.

Í svar­inu segir jafn­framt að tekjur hafi dreg­ist sman á sama tíma og ekki hafi tekst að lækka kostnað í sama mæli. Tekjur Íslands­pósts af frí­merkja­sölu hafa lækkað um tæp­lega 30 pró­sent á síð­ustu fimm árum, þrátt fyrir hækkun á verð­gildi frí­merkja.

Enn­fremur kemur fram í svari Íslands­pósts að upp­safnað tap á frí­merkja­sölu til safn­ara frá 2014 til 2018 eða á 5 ára tíma­bili er tæp­lega 90 millj­ónir. Þá mun afkoma árs­ins 2019 einnig verða slæm, sam­kvæmt svar­inu.

„Metn­að­ar­full frí­merkja­út­gáfa er kostn­að­ar­söm og þegar upp­lögin minnka vegna minnk­andi eft­ir­spurnar hækkar kostn­aður á hverju frí­merki. Lengi vel var þetta arð­bært en síð­ustu ár hefur hallað undan fæti,“ segir Birgir.

Miklar hagræðingar innan Íslandspósts

[links]Ís­lands­póstur hefur átt við fjár­hags­erf­ið­leika að stríða á síð­ustu árum og í fyrra var rekstr­ar­af­komu Íslands­pósts nei­kvæð um 287 milj­ónir króna. Fjár­hags­vandi fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2018 leiddi til þess að félagið stefndi í greiðslu­vanda þegar við­skipta­banki þess lok­aði fyrir frek­ari lán­veit­ing­ar. Í kjöl­farið fékk rík­is­sjóður heim­ild frá Alþingi í lok síð­asta árs til að veita fyr­ir­tæk­inu einn og hálfan millj­arð í neyð­ar­lán. Lánið var háð þeim skil­yrðum að fyr­ir­tækið standi við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og haldi þing­heimi upp­lýstum um gang mála.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Íslands­póst sem kynnt var fyrir Alþingi í júní síð­ast­liðnum kemur fram að full­yrða megi að að tals­verð bjart­sýni hafi í gegnum tíð­ina ein­kennt rekstr­ar­áætl­anir Ís­lands­pósts. Frá ár­inu 2010 hefur alltaf verið gert ráð fyrir að rekst­ur­inn skil­aði hagn­aði eða að með­al­tali um 170 millj­ónir króna. Á árunum 2013 til 2018 tap­aði Ísland­póstur hins vegar í heild­ina 246 millj­ón­um.

Í júní síð­ast­liðnum var síðan til­kynnt að viða­­miklar skipu­lags­breyt­ingar væru fram undan hjá Íslands­­­póst­i til að draga úr rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tæk­is­ins og auka hag­ræð­ingu. Fram­kvæmda­stjórum ­fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið fækkað úr fimm í þrjá og fyrr í ágúst var 40 starfs­mönnum Íslands­pósts sagt upp. Þrír starfs­menn Frí­merkja­söl­unnar voru meðal þeirra sem fengu upp­sagn­ar­bréf.

Frímerki til á lager

Birgir segir að rekstur Íslands­pósts geti ekki borið þetta mikla tap frí­merkja­söl­unnar lengur og því mun frí­merkja­út­gáfu Póstsins verða stöðvuð um næstu ára­mót sem hluti af hag­ræð­ing­ar­að­gerðum Ísland­pósts.

„Til að við­halda frí­merkja­sölu til safn­ara þarf að reka öfl­uga útgáfu starf­semi og vera stöðugt að leita leiða til að koma með ný merki á markað. Það er kostn­að­ar­samt og eft­ir­spurnin því miður ekki nægi­leg til að skyn­sam­legt sé að halda því áfram í þeirri mynd sem verið hefur,“ segir Birgir. 

Birgir segir hins vegar að útgáfa nýrra frí­merkja sé und­ir­búin langt fram í tím­ann og munu frí­merki því koma út eitt­hvað fram á þarnæsta ár. Þá á Ísland­póstur lager af frí­merkjum sem hægt er að nýta fyrir burð­ar­gjöld til fjölda ára, jafn­vel fram á síð­asta bréf. Auk þess verður hægt að end­ur­prenta eldri útgáfur frí­merkja, ef á þurfi að halda.

Einkaréttur Íslandspóst fellur niður um áramótin

Einka­réttur Íslands­pósts á bréfum fellur niður um ára­mót þegar ný lög um póst­þjón­ustu taka gildi. Viðræður rík­is­ins og Íslands­pósts um þjón­ustu­samn­ing sem taka á gildi þegar einka­rétt­ur­inn fellur úr gildi eiga sér nú stað. Ef ríkið telur útgáfa nýrra frí­merkja mik­il­væg menn­ing­ar­leg starf­semi þá gæti ríkið ákveðið að ábyrgj­ast útgáfu í nýjum þjón­ustu­samn­ingi um einka­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár