Íslandspóstur segir upp 43 starfsmönnum

Íslands­póstur til­kynnti í dag um hóp­upp­sögn 43 starfs­manna. Um er að ræða 12 pró­sent fækkun í stöðu­gildum fyr­ir­tæk­is­ins en upp­sagn­irnar eru fyrst og fremst á meðal milli­stjórn­enda, á skrif­stofu og í póst­mið­stöð.

Íslands­póstur sagði í dag upp 43 starfs­mönnum og mun stöðu­gildum hjá fyr­ir­tækjum fækka um alls 80 á þessu ári. Upp­sagn­irnar eru fyrst og fremst meðal milli­stjórn­enda, á skrif­stofu og í póst­mið­stöð. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kemur fram að upp­sagn­irnar eru liður í nauð­syn­legum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem miða að því að tryggja sjálf­bæran rekstur fyr­ir­tæk­is­ins og nútíma­væð­ingu starf­sem­innar.

12 prósent fækkun

[links] Tilkynnt var í júní síð­ast­liðnum að viða­miklar skipu­lags­breyt­ingar væru fram undan hjá Íslands­pósti. Fram­kvæmda­stjórum fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið fækkað úr fimm í þrjá en sam­kvæmt for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins eru breyt­ing­arnar gerðar til draga úr rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tæk­is­ins og auka hag­ræð­ingu.[adspot]

Nú hefur 43 starfs­mönnum einnig verið sagt upp en fyrir upp­sagnir voru stöðu­gildi fyr­ir­tæk­is­ins 666 og er því um að ræða 12 pró­sent fækkun. Í til­kynn­ing­unni segir að gert sé ráð fyrir að aðgerð­irnar leiði til um 500 milljón króna hag­ræð­ingar í rekstri Íslands­pósts á árs­grund­velli. Þá er tekið fram í til­kynn­ing­unni að sam­hliða upp­sögn­unum verði ráð­ist í skipu­lags­breyt­ingar sem tryggja eiga að þjón­usta Íslands­pósts skerð­ist ekki.

„Upp­sagn­irnar í dag eru sárs­auka­fullar og taka á alla, en eru því miður óum­flýj­an­legar til að hægt sé að ná settum mark­miðum í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Við þökkum starfs­fólk­inu fyrir þeirra störf og munum leggja okkur fram við að aðstoða það við næstu skref,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, for­stjóra Íslands­pósts, í til­kynn­ing­unni.

Launakostnaður 61 prósent af heildargjöldum í fyrra

Árið 2018 var launa­kostn­aður 61 pró­sent af heild­ar­gjöld­um Ís­lands­pósts en alls störf­uðu að með­al­tali 962 starfs­menn í 743 stöðu­gildum á ár­inu 2018. Þetta kom fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um starf­semi Íslands­póst sem birt var í júní. Í skýrsl­unni var greint frá því að fjöldi stöðu­gilda hjá Íslands­póst hafi almennt ekki þró­ast í takt við síminnk­andi umsvif í kjarna­starf­semi félags­ins ef litið er til síð­ustu tíu ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár