Á eftir íslenskri fótboltaveislu var það íslenskt jólaboð

Frakkar eru algjör­lega ást­fangnir af Íslandi. Fjöl­margar aug­lýs­ingar í sjón­varpi eru gerðar í ótrú­legu íslensku lands­lagi. Hvort sem um er að ræði bíla eða far­síma og fleira mætti finna. Tískuhús Louis Vuitton notar meira að segja lunda í þema jóla­skreyt­inga sinna í sýn­ing­ar­gluggum fyrir þessi jól. Reyndar er Ísland svo vin­sælt að hér sjást greinar í blöðum um hvort það sé að verða fórn­ar­lamb vel­gengni sinnar í ferða­mennsku. Nú síð­ast í dag­blað­inu Le Figaro í síð­ustu viku. En Ísland átti ekki síður sitt ár hér í Frakk­landi með þátt­töku sinni í Evr­ópu­meist­ara­keppn­inni í fót­bolta, lands­menn féllu gjör­sam­lega fyrir þessu fót­boltaliði frá eyj­unni litlu hátt uppi á landa­kort­inu.

Ekki var ákaf­inn minni hér í Nice þar sem nokkrir leikir á mót­inu fóru fram og ekki síst sá allra merki­leg­asti fyrir Íslend­inga, þegar England var slegið út úr í keppn­inni. Borgin var bók­staf­lega blá af stuðn­ings­mönnum lands­liðs­ins, í bolum, með trefla, and­lits­máln­ingu og horn á höfði. Ekki nóg með það heldur voru tveir for­setar mættir, sá nýkjörni og hinn frá­far­andi. Nice-búar voru heill­aðir af fram­komu Íslend­inga sem voru eins og englar, bornir saman við Pólverja, Eng­lend­inga og Rússa sem alls staðar voru til ama. Ítalskur veit­inga­maður á vin­sælum veit­inga­stað í mið­borg­inni, Por­tovenere, sagð­ist orð­laus eftir að hafa séð átta­tíu Íslend­inga klukkan tvö að nóttu fyrir utan kebabstað eftir sig­ur­inn á Eng­lend­ingum án þess að nokkur yrði þeirra var.

Margir Íslend­ingar upp­götv­uðu sömu­leiðis Nice í sumar þar sem í fyrsta skipti var hægt að fljúga beint frá Keflavík til Nice með WOW-air frá júní til sept­em­ber­loka. Það var því ekki óal­gengt að heyra tal­aða íslensku í mið­borg­inni í sumar, nokkuð sem er alveg nýtt hér. En þá eru ekki allar óvæntar upp­á­komur taldar hvað varðar Ísland.

Milli jóla og nýars var nefni­lega boðið í íslenskt síð­deg­is­sam­kvæmi fyrir lítil og „stærri“ börn í mesta „trendý“ hverfi Nice sem kennt er við Bonap­arte-götu. Það var veit­inga­stað­ur­inn Bel œil (Fagurt auga), ein­stak­lega skemmti­lega inn­rétt­aður staður á Emmanuel Phili­berti-götu, sem í sam­vinnu við konu frá Nice, Marion Herrera, sem hefur búið í tutt­ugu ár á Íslandi, buðu til þess­arar sam­veru­stundar. Það verður að segj­ast eins og er að það er nokkuð sér­stakt hér í borg, þar sem hægt er að telja Íslend­inga á fingrum ann­arrar handar, að fara í eins konar íslenskt jóla­boð og bragða á hangi­kjöti og laufa­brauði. Marion spil­aði á hörpu og systir hennar Anne-Lise Herrera á selló. Þær systur eru sömu­leiðis stofn­endur vina­fé­lags­ins Ísland-Korsíka og spil­uðu þar síð­asta sumar ásamt Ásgerði Jún­í­us­dóttur mezzósópran. Marion sem var flug­maður í tíu ár, meðal ann­ars hjá Icelandair, er nú að reyna fyrir sér að nýju að tón­list­inni. Þegar þær systur hófu dag­skrána með Heyr himna­smiður var ekki laust við að íslensk augu hafi vöknað örlítið. Svo tóku við sögur af Grýlu og Jóla­k­ett­inum með til­heyr­andi lögum á milli eins og Það á að gefa börnum brauð og Jóla­köttur Ingi­bjargar Þorbergs. Þar á eftir voru hinir íslensku jóla­sveinar kynntir og er óhætt að segja að þeir séu ólíkir þeim franska. Emmanuel, sonur Marion, söng um jóla­sveina sem ganga um gólf og svo fengu allir hangi­kjöt. Ekki frítt við smá heim­þrá hjá Íslend­ingnum.

Greinin birt­ist einnig á síðu höf­undar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár