Bankaskattur ekki afnuminn og stöðugleikaframlög verða 339 milljarðar

Sér­stakur banka­skattur verður áfram lagður á 2016 þrátt fyrir að ríkið eigi þorra þess banka­kerfis sem það skatt­leggur. Lánakjör almenn­ings eru verri vegna skatts­ins og greiðslu­byrði hærri.

Hinn svo­kall­aði banka­skattur, 0,376 pró­sent af öllum skuldum fjár­mála­fyr­ir­tækja, hefur ekki verið aflagður þrátt fyrir að slitum á búum Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans sé nú að mestu form­lega lokið. Þegar fjár­lög voru lögð fram í haust kom fram að skatt­ur­inn ætti að skila 26,8 millj­örðum króna í rík­is­sjóð. Í loka­út­gáfu fjár­laga, sem lá fyrir síð­ustu helgi fyrir jól, er búið að taka til­lið til þess að 17 millj­arða króna greiðsla frá slita­bú­unum muni ekki skila sér.

Þess í stað mun skatt­ur­inn skila 9,8 millj­örðum króna. Uppi­staðan af þeirri upp­hæð mun koma frá þremur stærstu við­skipta­bönkum lands­ins: Lands­bank­anum, Arion banka og Íslands­banka sem munu fleyta honum, að minnsta kosti að hluta, yfir á við­skipta­vini sína. Ríkið mun eiga tvo af þessum bönkum að öllu leyti á næsta ári auk þess sem það á 13 pró­sent hlut í Arion banka. Því er ríkið nú að mestu að skatt­leggja banka­eignir sem það á sjálft með þeim afleið­ingum að lána­kjör sem bjóð­ast almenn­ingi eru verri en ella.

Brúaði fjárlagagat og jók tekjur fyrir leiðréttingu

Banka­skatt­ur­inn var fyrst lagður á af rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í árs­lok 2010. Í frum­varp­inu stóð að mark­mið lag­anna væri tví­þætt: „ann­ars vega að afla rík­inu tekna til að mæta þeim mikla kostn­aði sem fallið hefur á rík­is­sjóðs vegna hruns íslenska fjár­mála­kerf­is­ins, hins vegar að draga úr áhættu­sækni fjár­mála­fyr­ir­tækja með því að leggja sér­stakan skatt á skuldir þeirra vegna þeirrar kerf­is­á­hættu með til­heyr­andi kostn­aði sem áhættu­söm starf­semi þeirra getur haft í för með sér fyrir þjóð­ar­búið.“ Skatt­pró­sentan var ákveðin 0,041 pró­sent. Þegar þessi skattur var lagður á voru slitabú föllnu bank­anna und­an­skilin greiðslu hans.

Þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kynnti áform sín um skulda­leið­rétt­ingu á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum fyrir um 80 millj­arða króna í nóv­em­ber 2013 kom í ljós að rík­is­sjóður myndi fjár­magna þær. Til að auka tekjur sínar svo hægt yrði að standa undir þessum aukna kostn­aði átti að hækka hinn sér­staka banka­skatt enn meira og láta hann auk þess ná til fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­ferli. Á end­anum var hann hækk­aður úr 0,041 pró­sent skulda fjár­mála­fyr­ir­tækja í 0,376 pró­sent. Þessi hækkun, sem var afgreidd á Alþingi í des­em­ber 2013, skil­aði því að skatt­ur­inn var 36,5 millj­arðar króna á árinu 2014.Samkvæmt fjár­lögum fyrir árið 2015 átti hann að skila 34,7 millj­ónum króna í kass­ann í ár. Því hefur banka­skatt­ur­inn nú þegar skilað rík­is­sjóði 71,2 millj­örðum króna.

Rúmlega 40 milljarðar koma í reiðufé

Þegar slitabú föllnu bank­anna breyt­ast í venju­leg eign­ar­halds­fé­lög eftir að nauða­samn­ingar þeirra eru frá­gengnir munu þau eðli­lega hætta að greiða umræddan skatt. Það ger­ist auð­vitað eftir að þau greiða hin svoköll­uðu stöð­ug­leika­fram­lög til rík­is­sjóðs.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um frum­varp til fjár­laga, sem birt var í kjöl­far þess að fjár­lögin voru afgreidd út úr nefnd­inni til sam­þykktar nokkrum dögum fyrir jól, kemur fram að ríkið muni tekju­færa sam­tals 348,3 millj­arða króna vegna stöð­ug­leika­fram­lag­anna. Þar munar lang­mest um 95 pró­sent hlut í Íslands­banka sem met­inn er á 184,7 millj­arða króna. Samkvæmt því verð­mati er búist við að Íslands­banki, að með­töldum þeim fimm pró­sent hlut sem ríkið heldur þegar á, selj­ist fyrir meira en sem nemur eigin fé hans, en það er um 193 millj­arðar króna.

Það virð­ast fáir hafa trú á því á fjár­mála­mark­aðnum að slík sala sé raun­hæf. Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem eru lík­ast til eina inn­lenda blokkin sem hefur getu til að kaupa stóran banka sem stendur, hafa til að mynda verið til­búnir að greiða 0,6 til 0,8 af bók­færðu eigin fé þeirra.

Önnur stærsta eignin sem rík­inu verður afhend er 84 millj­arða króna skulda­bréf frá slita­búi Kaup­þings með veði í Arion banka. Það greið­ist vænt­an­lega ekki fyrr en bank­inn hefur verið seldur en nýir stjórn­endur Kaup­þings munu fá allt að þrjú ár til að gera það.

Í vandræðum með að borga framlagið

Svo þarf nátt­úru­lega að taka til­lit til þess að slita­búin greiða ekki lengur banka­skatt, og það mun lækka tekjur rík­is­ins um 17 millj­arða króna. Auk þess verður ríkið af vaxta­tekjum af víkj­andi lánum en fær á móti auknar arð­greiðslur frá Íslands­banka og vaxta­tekjur af skulda­bréf­inu frá Kaup­þingi. Allt í allt lækkar þetta stöð­ug­leika­fram­lögin um 9,4 millj­arða króna. Þau verða því sam­tals 338,9 millj­arðar króna. Af þeirri upp­hæð mun 41,8 millj­arðar króna ber­ast í greiðslum nú. Þ.e. bein­hörðum pen­ingum. Afgang­ur­inn er í formi eigna.

Því er alls ekki svo að rík­is­sjóður fái mörg hund­ruð millj­arða króna inn­spýt­ingu í reiðufé um kom­andi ára­mót. Þvert á móti.

Raunar ber­ast fregnir af því að slita­búin séu í vand­ræðum með að greiða fram­lögin sem þó á að greiða. Ástæðan sé sú að það félag rík­is­meg­inn sem eigi að taka við þeim sé ekki enn til­búið til að gera það. Því munu fyrstu greiðslur, og yfir­færsla eigna, að öllum lík­indum ekki eiga sér stað fyrr en í jan­úar, þrátt fyrir að slita­búin hefðu verið til­búin að greiða þau fyrir ára­mót.

Almenningur er að borga bankaskattinn

Nú er ljóst að þorri þess kostn­aðar sem lenti á rík­inu við hrunið verður greiddur upp þegar stöð­ug­leika­fram­lög­unum verður komið í verð. Því á sú for­senda upp­runa­lega banka­skatts­ins ekki lengur við. Auk þess má setja mik­inn fyr­ir­vara við þá skýr­ingu að skatt­ur­inn dragi úr áhættu­sækni bank­anna. Fremur má segja að hann hvetji til hennar, þar sem skatt­ur­inn gerir bönk­unum erf­ið­ara fyrir að skila við­un­andi afkomu af und­ir­liggj­andi rekstri.

En banka­skatt­ur­inn er líka risa­stórt neyt­enda­mál, að minnsta kosti ef útskýr­ingar við­skipta­bank­anna eru teknar trú­an­legar. Þegar Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hófu að bjóða miklu betri kjör á íbúða­lánum en við­skipta­bank­arnir á árinu sem er að líða bentu þeir m.a. á að líf­eyr­is­sjóðir þyrftu ekki að borga banka­skatt.

Í einka­sam­tölum segja stjórn­endur bank­anna að þeir gætu boðið almenn­ingi betri kjör ef þeir væru ekki að borga þessa skatta. Banka­skatt­ur­inn er til að mynda 0,376 pró­sent skattur á allar skuldir bank­anna. Því sé hann bein­línis álag ofan á útlán. Með öðrum orðum er almenn­ingur að borga banka­skatt­inn - sem not­aður hefur verið til að skila rík­is­sjóði afgangi und­an­farin ár – að minnsta kosti að hluta. Samtals greiddu Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn átta millj­arða króna í banka­skatt í fyrra, munu greiða annað eins í ár og uppi­stöð­una af 9,8 millj­örðum króna sem hann á að skila í rík­is­sjóð á næsta ári. Stjórn­endur bank­anna, og hags­muna­sam­tök þeirra, hafa gagn­rýnt skatt­lagn­ing­una harð­lega, bæði í einka­sam­tölum og opin­ber­lega.

Þar sem afgangur á rekstri rík­is­sjóðs yrði nei­kvæður á næsta ári án banka­skatts­ins, og án ein­skiptis­tekna vegna stöð­ug­leika­fram­lags­ins, þá verður að telj­ast afar ólik­legt að stjórn­völd ætli sér að fella hann úr gildi í nán­ustu fram­tíð. Jafnvel þótt hann skili almenn­ingi verri lána­kjörum og hærri greiðslu­byrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár