Ragnheiður vék sæti þegar útvarpsstjóri var ráðinn

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir á sæti í stjórn RÚV en vék sæti í ráðn­inga­ferl­inu vegna tengsla við fólk sem sótt­ist eftir starf­inu.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, vara­for­maður stjórnar RÚV, ákvað að víkja sæti þegar nýr útvarps­stjóri var ráð­inn, vegna tengsla við umsækj­endur um starfið. Frá þessu greindi Ragn­heiður á Facebook síðu sinni í dag, eins og greint var frá á vef Kjarnans, þá hefur Stefán Eiríks­son verið ráð­inn útvarps­stjóri og hefur hann störf 1. mars.

Stefán var á meðal 41 umsækj­enda um starfið en eins og Kjarn­inn greindi frá fyrr í dag stóðu fjórir slíkir eftir í síð­ustu viku. Hinir þrír voru Kol­brún Hall­­dór­s­dótt­ir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­­maður Vinstri grænna, Karl Garð­­ar­s­­son, fram­­kvæmda­­stjóri útgáfu­­fé­lags DV og fyrr­ver­andi þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, og Þor­­steinn Gunn­­ar­s­­son, sveit­­ar­­stjóri í Skút­u­­stað­­ar­hreppi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Í til­kynn­ingu segir að stjórn RÚV, hafi lagt áherslu á fag­legt ferli. „Stjórnin lagði áherslu á fag­­legt og vandað ráðn­ing­­ar­­ferli og naut lið­sinnis ráð­gjafa Capacent. Í ráðn­ing­ar­ferl­inu var lögð áhersla á meta umsækj­endur út frá þeim hæfn­is­kröfum sem fram voru sett­ar í aug­lýs­ing­unni um starf­ið. Þar var rík áhersla lögð á þekk­ingu, reynslu og færni í stjórnun og rekstri og leitað eftir öfl­ugum leið­toga til að stýra RÚV inn í nýja tíma miðl­un­ar. Stefán hefur umfangs­mikla reynsla af stjórnun og rekstri, sem stjórn­andi opin­berrar stofn­unar um ára­bil, sem skrif­stofu­stjóri og stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra, sem stjórn­ar­maður og stjórn­ar­for­maður í opin­beru hluta­fé­lagi, sem sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og nú síð­ast sem borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill borg­ar­stjóra. ­Stefán lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og hdl. árið 1997. Þá hefur hann sótt ýmis nám­skeið tengt stjórnun og lokið sér­hæfðu stjórn­enda­námi Bloomberg Harvard City Leaders­hip Ini­ti­ati­ve.“

Formaður stjórnar RÚV er Kári Jónasson, fyrr­ver­andi rit­stjóri, frétta­stjóri og blaða­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár