Fimm atriði sem allir geta verið sammála um í loftslagsmálum

Það eru ekki allir sam­mála um að lofts­lags­breyt­ingar séu raun­veru­legar. En það hljóta allir að vera sam­mála um þessi fimm atriði.

Það verður seint komst hjá því að manneskjan muni menga, en það er hægt að takmarka mengunina sem hlýst af manna völdum.
Það verður seint komst hjá því að mann­eskjan muni menga, en það er hægt að tak­marka meng­un­ina sem hlýst af manna völdum. Mynd: EPA

Lofts­lags­mál eru eitt mik­il­væg­asta við­fangs­efni mann­kyns um þessar mundir. Lofts­lags­mál fjalla ekki aðeins um byggi­leika afskekktra eyja eða skóg­ar­elda sem ógna heim­ilum millj­óna um heim allan. Lofts­lags­mál varða til­veru mann­kyns á jörð­inni.

Lofts­lags­mál eru þess vegna ekki aðeins verk­efni stjórn­mála­manna eða veð­ur­fræð­inga heldur verk­efni alls mann­kyns. Það er mik­il­vægt að allir sem hafa til þess ein­hver efni leggi hönd á plóg.

Enn eru þó þeir sem telja lofts­lags­vand­ann ekki vera raun­veru­legan. Efa­semda­fólk skipt­ist raunar í tvo hópa: Þau sem hafna því að hlýnun lofts­lags sé að eiga sér stað og þau sem segja vanda­málið raun­veru­legt en halda því fram að það sé ekki af manna­völdum.

Sann­fær­ing fólks, hvort sem það er um að lofts­lags­vand­inn sé raun­veru­legur eða ekki, byggir oftar en ekki á því sem okkur er sagt. Meiri­hluti mann­kyns mun ekki finna fyrir lofts­lags­vand­anum á eigin skinni fyrr en eftir mörg ár eða ára­tugi.

[adspot]

Fólk verður því að taka afstöðu til þess sem vís­inda­menn hafa sýnt fram á og bera sig eftir skýr­ingum á því sem það skilur ekki. Það getur reynst erfitt að kynna sér allar mögu­legar birt­ing­ar­myndir lofts­lags­breyt­inga.

Hér á eftir fara fimm atriði sem allir ættu að geta verið sam­mála um að séu raun­veru­lega til marks um að lofts­lags­breyt­ingar séu þegar farnar að hafa áhrif á ver­öld­ina okkar og lífs­við­ur­væri.

Mengun er slæm

Það er aug­ljóst að súr­efni og loft­gæði eru lífs­nauð­syn­legir þættir fyrir allt líf á jörð­inni. Það liggur í augum uppi að lífs­gæði fólks skerð­ast veru­lega ef loft­gæðin eru slæm, enda eykur það lík­urnar á önd­un­ar­færa­sjúk­dómum, eykur óþæg­indi og getur dregið fólk til dauða ef aðstæð­urnar eru sér­stak­lega slæmar í lengri tíma.

Í drögum að nýrri áætlun um loft­gæði á Íslandi til 12 ára, sem birt var á vef Umhverf­is­stofn­unar á fimmtu­dag, kemur fram að nærri 80 ótíma­bær dauðs­föll megi rekja til útsetn­ingar svifryks á Íslandi á hverju ári.

Ísland er hins vegar mun betur statt en mörg önnur ríki heims. Það þekkja eflaust flestir myndir úr stærstu borgum Kína þar sem mengun innan borg­anna er svo mikil að ekki sést á milli húsa.

Manneskjan mengar

Það vefst eng­inn í vafa um að með auknum umsvifum mann­fólks á jörð­inni þá hefur mann­fólk­inu tek­ist að menga vist­ar­verur sínar í nátt­úr­unni. Við röskum heilu vist­kerf­unum með áhrifum okkar, hvort sem það er við upp­gröft nátt­úru­legra efna eða við notkun þeirra.

Þegar hvað verst hefur farið hafa heilu land­svæðin orðið óbyggi­leg vegna umsvifa manns­ins. Þekktasta dæmið um þetta er kannski kjarn­orku­slysið í Chernobyl í Úkraínu, þar sem geislun er svo mikil að engu lif­andi er hætt að vera þar nema hljóta var­an­legan skaða af.

Allt mann­fólk mengar líka á hverjum ein­asta degi, hjá því verður ekki kom­ist. Sumir menga hins vegar mun meira en aðrir og má nær und­an­tekn­ing­ar­laust skipta mann­kyni í hópa eftir búsetu á jörð­inni hvað þetta varðar. Þar sem vel­megun er meiri mengar fólk meira.

Það verður óhjá­kvæmi­legur fylgi­fiskur mann­fólks að það mengar. Lausnin er hins vegar að draga úr þess­ari mengun þar sem það er hægt.

Á Íslandi geta ein­stak­lingar brugð­ist við með því að keyra minna, nýta sér vist­vænni sam­göngur, flokka rusl, versla vist­vænni vörur og taka fjöl­nota poka með í inn­kaupa­ferðir. Svona mætti lengi telja upp lausnir.

Hægt er að kynna sér betur hvernig þú getur brugð­ist við á sér­stökum vef Umhverf­is­stofn­unar fyrir ein­stak­linga.

Ofsaveður

Hnatt­rænt hita­stig hefur hækkað hratt und­an­farna ára­tugi. Hitamet á árs­grund­velli hafa fallið oft á síð­ustu árum. Árið 2016 var til dæmis lang heitasta ár að jafn­aði síðan nútíma­mæl­ingar hófust á síð­ari hluta 19. aldar.

Sveifl­urnar eru hins vegar ekk­ert ofboðs­lega miklar á hverjum stað fyrir sig, en þær geta haft gríð­ar­leg áhrif á veðra­kerfi. Mun fleiri ofsa­veður víða um heim eru rakin til hækk­unar með­al­hita­stigs um fáeinar gráður.

Breytt veð­ur­mynstur hafa einnig haft breyt­ingar á úrkomu­mynstri í för með sér. Stór hluti mann­kyns reiðir sig sér­stak­lega á árs­tíða­bundin úrkomu­tíma­bil sem hafa raskast. Á stórum svæðum rignir orðið lítið sem ekk­ert allan árs­ins hring sem ógnað hefur vatns­bú­skap og neyslu­vatn­stöðu fjöl­mennra svæða. Fjöl­menn­asta ríki Banda­ríkj­anna, Kali­fornía, hefur glímt við þetta vanda­mál und­an­farin ár.

Ísinn hverfur

Hlýnun jarðar hefur það í för með sér að ísbreiður heims­ins, hvort sem það er í sjó eða á landi, bráðna. Það liggja ekki flókin vís­indi að baki þess­ari stað­reynd; Ís bráðnar og verður að vatni ef hita­stigið umhverfis hann er hærra en 0 gráður.

Stórar ísbreiður á norður- og suð­ur­hveli jarðar gegna mik­il­vægu hlut­verki í temprun hita­stigs á jörð­inni. Það er hlut­verk sem vís­inda­menn eru sífellt að skilja betur, eftir því sem ísbreið­urnar, sér­stak­lega á norð­ur­skaut­inu, bráðna meira.

Hvítur ísinn end­ur­kastar geislum sólar aftur út í geim. Sól­ar­orkan bind­ist þess vegna ekki innan loft­hjúps jarðar eða í höf­unum. Eðli máls­ins sam­kvæmt end­ur­kast­ast færri sól­ar­geislar, því minni sem ísbreiðan er.

Bráðinn ísinn, vatnið, rennur á end­anum allur til sjávar. Aukið magn ferskvatns og mun kald­ara vatn hefur áhrif á haf­strauma og þar af leið­andi mann­vist á jörð­inni. Heitir haf­straumar sem ber­ast til Íslands flytur einnig hlýrra loft hingað (hvort sem við kunnum að meta lægð­irnar eða ekki) og skapa skil­yrði fyrir fiski­teg­undir í höf­unum umhverfis landið.

Loftslagsflótti

Mann­eskjan er mjög háð nátt­úr­unni og á allt undir því komið að nátt­úru­legar aðstæður breyt­ist ekki í umhverfi sínu. Vegna lofts­lags­breyt­inga hafa nátt­úru­legar aðstæður hins vegar verið að breyt­ast þannig að fólk þarf að yfir­gefa heim­kynni sín.

Breyt­ing­arnar geta verið vegna þurkka, eyði­merk­ur­mynd­unar, hækk­unar sjáv­ar­borðs eða breyt­ingar á árs­tíða­bund­inni úrkomu. Vegna þurrka er hættan á gróð­ur­eldum mun meiri en ella, vegna mik­illa svæð­is­bund­inna hita­breyt­inga mynd­ast eyði­merkur því engar plöntur geta gróið í þurrum hit­anum og bráðnun heim­skauta­íss veldur hækkun á yfir­borði sjávar sem gengur á land og hrifsar með sér allt sem í vegi verður.

Allt eru þetta vanda­mál sem fólk víða í heim­inum glímir við í dag.

Stjórn­völd í eyrík­inu Kíríbati hafa til dæmis fest kaup á land­svæði á Fiji-eyjum til þess að tryggja fólki sínu stað í ver­öld­inni eftir að eyj­urnar sökkva í sæ.

Mongólar berj­ast við Gobi-eyði­mörk­ina sem étur sífellt stærri svæði af Mongólíu og ógnar efna­hags­legri afkomu sam­fé­lags­ins.

Talið er að fólks­flótti vegna lofts­lags­breyt­inga muni verða ein helsta ástæða stríðs og átaka í fram­tíð­inni, þegar nátt­úran hristir upp í gæðum jarðar og bar­áttan um lífs­nauð­synjar hefst fyrir alvöru.

Þessi spá kann að hafa ræst nú þegar. Vís­inda­menn hafa fært rök fyrir (sjá td. hér og hér) því að upp­reisnin í Araba­heim­inum í byrjun þessa ára­tugs, oft kölluð arab­íska vorið, hafi verið hrundið að hluta til vegna lofts­lags­breyt­inga. Fæðu­skortur hafi aukið á þá óánægju sem var fyrir í þessum sam­fé­lögum. Enn er barist á bana­spjótum í Sýrlandi, jafn­vel þó ástæður átak­anna séu aðrar nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár