Sex látnir og tæplega 50 sárir eftir hryðjuverk í London

Sex eru látnir og 48 sárir eftir hryðju­verka­árás í London. Árás­ar­menn­irnir voru þrír, en þeir voru allir skotnir til bana átta mín­útum eftir að lög­reglu var greint frá mál­inu.

Þungvopnaðir lögreglumenn á Lundúnabrúnni í gærkvöldi.
Þung­vopn­aðir lög­reglu­menn á Lund­úna­brúnni í gær­kvöldi. Mynd: EPA

Sex eru látnir og að minnsta kosti 48 eru særðir eftir hryðju­verka­árás í London í gær­kvöldi. Nokkrir eru alvar­lega slas­aðir.

Hvítum sendi­ferða­bíl var ekið á gang­andi veg­far­endur á Lund­úna­brúnni um klukkan tíu í gær­kvöldi, og svo hlupu þrír menn út úr bílnum og stungu fólk með hnífum. Að sögn lög­reglu voru menn­irnir þrír klæddir gervi­sprengju­vestum. Menn­irnir voru allir skotnir til bana af lög­reglu í gær­kvöldi, átta mín­útum eftir að henni hafði fyrst verið gert við­vart um árás­ina.

Lögregla óskar nú eftir því að fólk sem gæti átt myndir eða mynd­skeið af mönn­unum þremur afhendi efnið. Þá hefur verið greint frá því að lög­reglu­eft­ir­lit verði aukið næstu daga, en á fimmtu­dag fara fram þing­kosn­ingar í Bret­landi.

Allir stjórn­mála­flokkar hafa gert hlé á kosn­inga­bar­áttu sinni vegna hryðju­verk­anna, en þetta er í annað sinn sem það ger­ist.

Sadiq Khan, borg­ar­stjór­inn í London, sagði í yfir­lýs­ingu í nótt að þetta væri heig­uls­leg árás á sak­lausa borg­ara og ferða­menn sem hafi verið að njóta borg­ar­innar á laug­ar­dags­kvöldi. Hann for­dæmdi árás­ina. Það gerði Theresa May for­sæt­is­ráð­herra líka.

Í kvöld eiga að fara fram minn­ingar- og styrkt­ar­tón­leikar fyrir fórn­ar­lömb hryðju­verks­ins í Manchester, þar sem 22 lét­ust á dög­unum eftir tón­leika með Ariönu Grande. Tón­leik­arnir munu fara fram þrátt fyrir árás­irnar í London.

Sendiráð Íslands í London fylgist með atburð­unum og biður Íslend­inga í London um að láta vita af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár