Björgólfur Thor stofnar nýtt lyfjafyrirtæki í Sviss

Fjár­fest­inga­fé­lagið Novator, sem er stýrt af íslenska fjár­fest­inum Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, hefur stofnað nýtt sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki sem kall­ast Xantis Pharma. Fyr­ir­tækið, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í borg­inni Zug í Sviss, er stofnað í sam­starfi við nokkra fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endur Actavis, sem Novator átti að mestu leyti árum saman. Frá þessu er greint í

Við­skipta­Mogg­anum

í dag.

Í sam­tali við blaðið segir Björgólfur Thor að nýja fyr­ir­tækið sé að fullu fjár­magnað af Novator. "Aðkoma Novators í Allergan, sem áður hét Actavis er að líða undir lok. Þar er félagið núna áhrifa­laus fjár­festir í mjög stóru félagi. Það er ekki stefna Novators að halda áhrifa­lausum stöðum lengi, enda telja menn félagið sjálft best til þess fallið að ávaxta eigið fé.[...]Novator hefur áhuga og sér­þekk­ingu á þessum geira og byggði upp Actavis frá grunni með góðum árangri þrátt fyrir skakka­föll. Félagið hefur sem fyrr áhuga á þessum mark­aði og menn telja áhuga­vert að byrja upp á nýtt."

Í águst 2014 var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sínum, að mestu stórum alþjóð­legum bönkum, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Þessi upp­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­ar­hluta í Actavis að því loknu. Actavis gekk síðan í gegnum nokkrar sam­ein­ingar og heitir nú Allergan. Novator á enn hlut í því félagi en hefur selt sig niður hægt og rólega. 

Þessar vend­ingar gerðu það að verkum að í mars á síð­asta ári var Björgólfur Thor kom­inn aftur á lista Forbes yfir þá sem eiga meira en einn millj­arð dali, yfir 130 millj­arða króna, í eignum. Fimm ár voru þá síðan að Björgólfur Thor komst síð­ast á list­ann. Björgólfur Thor var eini Íslend­ing­ur­inn á list­anum, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann. Eignir Björg­ólfs Thors voru metnar á um 1,3 millj­arða dala, um 170 millj­arða króna. Hann sat í 1.415 sæti á list­anum.

Björgólfur skrif­aði bók um ferð sína aftur af brún við­skipta­lífs­ins. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um hana í des­em­ber 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár