Sannkallaður betri helmingur krónprinsins

Danir elska Mary, krón­prinsessu Dan­merkur. Það gera dönsku glans­tíma­ritin líka.

Mary krónprinsessa Danmerkur er vinsæl.
Mary krón­prinsessa Dan­merkur er vin­sæl. Mynd: EPA

Mary krón­prinsessa Dan­merkur, eig­in­kona Friðriks krón­prins er í miklu áliti meðal Dana. Vann hug og hjörtu dönsku þjóð­ar­innar allt frá fyrsta degi. Þykir einkar aðlað­andi og allir sem kynn­ast henni hríf­ast af henni. Sama gildir um erlenda gesti sem sækja Danmörk heim og þá sem henni kynn­ast í heim­sóknum dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar til ann­arra landa.

Mary er sömu­leiðis eft­ir­læti dönsku „glans­tíma­rit­anna“ enda líður ekki sú vika að þar sé ekki myndir af henni að finna og oft­ast fleiri en eina eða tvær. Danskir fjöl­miðlar fjalla yfir­leitt á fremur jákvæðan hátt um fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar, þeir fara ekki dult með þá skoðun sína að Friðrik krón­prins hefði ekki getað verið heppn­ari en þegar hann lagði snörur sínar fyrir Mary Elizabeth Don­ald­son.

Foreldrarnir skoskir innflytjendur

For­eldrar Mary, John og Hen­ri­etta Don­ald­son, fluttu, nýgift, frá Skotlandi til Tasmaníu haustið 1963, en fyrr á árinu hafði John lokið háskóla­prófi í stærð- og eðl­is­fræði. For­eldrar hans höfðu nokkrum árum áður tekið sig upp og flutt til Ástralíu. John Don­ald­son varð pró­fessor við Háskól­ann í Tasmaníu og gegndi því starfi uns hann fór á eft­ir­laun árið 2003. Hen­ri­etta, móðir Mary starf­aði á skrif­stofu Háskól­ans í Tasmaníu en hún lést árið 1997. Þau hjónin eign­uð­ust fjögur börn, Mary er yngst. John gift­ist aftur árið 2001 saka­mála­höf­und­inum Susan Elizabeth Horwood.

Fæddist í Hobart, borginni þar sem hundadagakóngurinn bjó

Mary Don­ald­son fædd­ist 5.febr­úar árið 1972 í borg­inni Hobart í Tasmaníu. Hobart, sem er höf­uð­borg Tasman­íu­fylkis, var stofnuð sem fanganý­lenda árið 1803 og er næstelsta borg Ástralíu. (Jörundur hunda­daga­kon­ungur bjó frá árinu 1825 í Hobart þar sem hann lést árið 1841, frjáls maður.)

Mary er með háskóla­próf í lög­fræði og við­skiptum og lauk síðar námi í mark­aðs- og aug­lýs­inga­fræðum. Að loknu námi flutti hún til Melbourne og síðar Sydney og vann hjá mark­aðs- og kynn­ing­ar­fyr­ir­tækjum.

Afdrifarík ferð á krána

Laug­ar­dag­inn 16. sept­em­ber árið 2000 bauð vin­kona Mary henni með sér á krána „Slip Inn“ í Sydney en Ólymp­íu­leik­arnir stóðu þá yfir í borg­inni. Vinkonan hafði sagt Mary að þarna yrðu nokkrir Spán­verjar, kepp­endur á leik­unum. En þarna voru fleiri, meðal ann­ars Nikolaos sonur Önnu Maríu, systur Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar og Kon­stant­íns fyrr­ver­andi Grikkja­kon­ungs. Með Nikolaos voru tveir danskir frændur hans, Friðrik og Jóakim. „Ég vissi fyrst ekk­ert hvaða strákar þetta voru“ sagði Mary síðar. En þessi ferð á krána leiddi til nán­ari kynna þeirra Mary og „stráks­ins“ Friðriks. Þau hitt­ust aftur á kránni kvöldið eftir og nokkrum sinnum eftir það meðan Ólymp­íu­leik­arnir stóðu yfir.

Danskir blaða­menn hafa gegnum árin fylgst grannt með kon­ungs­fjöl­skyld­unni, ekki síst krón­prins­inum en að hann væri kom­inn í kynni við ástr­alska stúlku fór lengi vel algjör­lega fram­hjá þeim. Friðrik fór á næstu mán­uðum nokkrum sinnum til Ástralíu en Mary kom á þeim tíma aldrei til Dan­merkur, Friðrik hefur vitað sem var að þá fengju þau ekki stund­legan frið fyrir blaða­mönnum sem þyrsti í fréttir, ekki síst af hugs­an­legum kvenna­málum krón­prins­ins. Rík­is­arf­inn var jú kom­inn yfir þrí­tugt og ekk­ert (svo vitað væri) að ger­ast í ásta­málum hans.

Mary flytur til Dan­merkur

Þrátt fyrir að þeim Mary og Friðriki hafi lengi tek­ist að halda sam­bandi sínu leyndu kom þó að því að danskir blaða­menn kæmust á snoðir um að krón­prins­inn væri í nánu sam­bandi við ástr­alska stúlku. Mary flutti til Kaup­manna­hafnar haustið 2002, eftir nokk­urra mán­aða dvöl í París, og bjó til að byrja með „úti í bæ“ í íbúð við Löngu­línu. 8. októ­ber 2003 var til­kynnt opin­ber­lega um trú­lofun hennar og Friðriks, þá hafði Margrét Þór­hildur drottn­ing sam­þykkt ráða­hag­inn. Danskir fjöl­miðlar full­yrtu að drottn­ingin hefði frá fyrsta degi verið mjög ánægð með þessa stúlku „sem Friðrik sótti yfir hálfan hnött­inn“ eins og eitt blað­anna komst að orði.

Gefin saman í Frúarkirkju

14. maí 2004 voru þau Mary og Friðrik pússuð saman, með við­höfn í Frú­ar­kirkju, Dóm­kirkju Kaup­manna­hafnar. Danskir miðlar nefndu það sér­stak­lega að brúð­arslörið hefði verið sex metra langt og annað eftir því. Frú­ar­kirkja var blómum skreytt og að athöfn­inni lok­inni óku þau nýgiftu í hest­vagni um mið­borg Kaup­manna­hafnar þar sem mann­fjöldi fagn­aði þeim. Öku­ferð­inni lauk við Amali­en­borg þarsem brúð­hjónin sýndu sig á svölum hall­ar­innar ásamt Margréti Þórhildi, Henrik drottn­ing­ar­manni og föður brúð­ar­innar og eig­in­konu hans. Danska þingið, Fol­ket­inget, hafði sam­þykkt að Mary, sem var ástr­alskur og breskur rík­is­borg­ari, fengi á brúð­kaups­dag­inn danskan rík­is­borg­ara­rétt.

Varð strax ein af dönsku „stórfjölskyldunni“

Mary, sem fékk tit­il­inn krón­prinsessa við brúð­kaupið, ávann sér strax hylli Dana og eitt glans­tíma­rit­anna hitti naglann á höf­uðið þegar það sagði að hún hefði strax orðið hluti af dönsku „stór­fjöl­skyld­unni“. Krón­prinsessan náði mjög fljótt góðum tökum á dönsk­unni (sem er síður en svo sjálf­gefið) og hefur frá upp­hafi tekið mik­inn þátt í þeim skyldum og verk­efnum sem til­heyra fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar. Mörg þeirra verk­efna eru það sem kalla mætti skyldu­verk en á allra síð­ustu árum hefur mátt sjá þess greini­leg merki að drottn­ingin er smám saman að færa fjöl­mörg verk­efni yfir á herðar rík­is­arfans og krón­prinsessunnar. Yfir­skrift þessa pistils er „Sann­kall­aður betri helm­ingur krón­prins­ins“.

[quote]Ég berst fyrir rétt­læti barna og kvenna í ver­öld­inni, rétt­indum þeirra til jafns við eig­in­menn þeirra, bræður og syn­i.[/quote]

Það orða­til­tæki nota Danir sjaldn­ast en í til­viki krón­prinsessunnar á það vel við, án þess að lítið sé gert úr eig­in­mann­inum. Þau eru að mörgu leyti ólík, hann er það sem stundum er kallað „íþrótta­týpa“, mjög áhuga­samur um íþróttir og lík­ams­rækt en hefur síður hinar list­rænu taugar for­eldr­anna. Krón­prinsessan hefur minni áhuga á íþróttum en þeim mun meiri á mann­úð­ar­málum, einkum mál­efnum barna og kvenna. Hún hefur látið mjög til sín taka á þeim vett­vangi og ver miklu af tíma sínum í allskyns verk­efni tengd þessum bar­áttu­málum. Á ráð­stefnu í New York fyrir nokkru dró hún saman í einni setn­ingu þessi bar­áttu­mál „ég berst fyrir rétt­læti barna og kvenna í ver­öld­inni, rétt­indum þeirra til jafns við eig­in­menn þeirra, bræður og syni“. Margrét Þór­hildur hefur margoft í við­tölum lýst hrifn­ingu sinni á Mary og þeim fjöl­mörgu verk­efnum sem hún helgar krafta sína. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði Margrét Þór­hildur „það getur verið að ég sé hræði­leg tengda­móðir en ég er afar stolt tengda­móðir“!

Góð saman

Danir voru fljótir að átta sig á hvern mann krón­prinessan hefur að geyma, dugnað hennar og vinnu­semi. Þótt lágt færi heyrð­ust þær raddir að hún kæmi til með að skyggja á eig­in­mann­inn. Tveir blaða­menn sem þekkja vel til kon­ungs­fjöl­skyld­unnar telja slíkan ótta ástæðu­lausan, Friðrik sé ákaf­lega stoltur af eig­in­kon­unni, hún hafi líka opnað augu hans fyrir ýmsu sem hann hafði lít­inn áhuga sýnt áður en þau kynnt­ust. Þau bæti hvort annað upp ef svo megi segja, séu góð saman.

Fjölskyldan númer eitt

Þrátt fyrir allt ann­ríkið, ferða­lögin og þeyt­ingin innan lands og utan van­rækja þau Mary og Friðrik ekki fjöl­skyld­una. Þau eiga fjögur börn, elstur er Christian, sem fullu nafni heitir Christian Valdemar Henri John, fæddur 15. októ­ber 2005, næst í röð­inni er Isabella Hen­ri­etta Ingrid Margrethe fædd 21. apríl 2007 og loks tví­burarnir Vincent Frederik Minik Alex­ander og Jos­ephine Sophia Ivalo Mathilda. Þau komu í heim­inn með tutt­ugu mín­útna milli­bili 6. ágúst 2010. Krón­prin­sparið hefur lagt mikla áherslu á að upp­eldi barn­anna sé sem lík­ast því sem gengur og ger­ist, t.d. varð­andi skóla­göngu.

Þau Mary og Friðrik búa, ásamt börn­unum fjórum, í einni af höllum Amali­en­borgar en hafa einnig til umráða svo­nefnt Kanselli­hús við Fredens­borg höll á Norður-Sjálandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár