Færeyska ríkisstjórnin hefur boðað aukna skattheimtu á laxeldisfyrirtæki í Færeyjum. Hækkunin er allt upp í fjórföld miðað við núgildandi skattgreiðslur í þessari framleiðslugrein. Stærsta laxeldisfyritæki Færeyja, Bakkafrost, sendi frá sér kauphallartilkynningu í Noregi vegna þessarar auknu skattlagningar í gær. Bakkafrost er stærsta laxeldisfyrirtæki Færeyja og framleiddi fyrirtækið tæplega 91 þúsund tonn í fyrra.
Fjallað er um þessar skattahækkanir í sjávaútvegsblaðinu Intrafish í dag undir fyrirsögninni: „Betra en skattahugmyndirnar í Noregi: Færeyska ríkisstjórnin leggur til stóraukna skatta á laxeldi. “
Skattahækkanirnar í Færeyjum koma í kjölfar boðaðra skattahækkana á laxeldi í Noregi sem mikið hafa til verið umfjöllunar í fjölmiðlum en þær fela í sér þreföldun á sköttum þar í landi, úr 22 í 62 prósent. Um er að ræða sérstakan auðlindaskatt en sambærilegur auðlindaskattur er ekki innheimtur …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Ljóst er að fjármálaráðherra stjórnar þessu. En að Framsókn og VG styðji þessi ósköp er með miklum ólíkindum. Það þarf að lækka laun ráðherra svo að þeir hangi ekki á stólunum launanna vegna til stórskaða fyrir land og þjóð.
Gott dæmi um hugsunarhátt fjármálaráðherra er tilraun hans til að losa ríkið undan ríkisábyrgð á Íbúðalánasjóði. Hann hótar að setja lög þess efnis að lífeyrisjóðirnir taki á sig þessa ríkisábyrgð að mestu. Lífeyrisþegar framtíðarinnar eiga að borga.
Eigum við virkilega ekki betra skilið?