Flestir hafa svarað spurningum ríkisskattstjóra

„Flestir hafa svarað, en það á enn eftir að óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum, og skoða málin betur,“ segir Skúli Eggert Þórð­ar­son, rík­is­skatt­stjóri, um mál 178 ein­stak­linga sem emb­ættið spurð­ist fyrir um, í kjöl­far þess að skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti gögn, er vörð­uðu aflands­fé­laga­eignir, af huldu­manni í fyrra­sumar.

Málin eru í form­legri skoðun og sendi emb­ættið bréf til ein­stak­ling­ana, þar sem spurt var út í mis­ræmi milli fram­tala og skatt­skjóls­gagna sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti. Þrjátíu mál voru form­lega sett í skatt­rann­sókn, en Skúli Eggert segir að fara þurfi sér­stak­lega yfir svörin við spurn­ingum emb­ætt­is­ins og meta hvort þörf sé á frek­ari gagna­öflun. „Þetta getur verið tíma­frek vinna,“ segir Skúli Eggert.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti í aprí í fyrra auka­fjár­veit­ingu til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra upp á 37 millj­ónir króna til þess að kaupa gögnin um fjár­hags­legar eignir íslenskra aðila í þekktum skatta­skjól­um.

Íslensk stjórn­völd hafa aldrei fyrr keypt gögn sem þessi en bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd fóru þessa leið með nokkrum ávinn­ingi, eftir að ein­stak­lingar komu til baka með fjár­muni og eignir sem höfðu verið geymd í skatt­skjólum.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk sýn­is­horn af gögn­unum send í fyrra, og lét fjár­mála­ráðu­neytið vita af mál­inu. Sýn­is­hornin 50 sem emb­ættið fékk bentu sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað, og var í kjöl­farið ákveðið að kaupa gögnin.

Ekki hefur verið gefið upp hvaða ein­stak­lingar það eru, sem gagna­list­inn fyrr­nefndi teng­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár