4 ára rusl í einni krukku

Allt rusl sem Lauren Singer hefur þurft að kasta frá sér síð­ast­liðin fjögur ár kemst fyrir í einni lít­illi krukku.

Lauren Singer og allt ruslið sem hún hefur ekki getað losað sig við á umhverfisvænan hátt síðustu fjögur ár.
Lauren Singer og allt ruslið sem hún hefur ekki getað losað sig við á umhverf­is­vænan hátt síð­ustu fjögur ár. Mynd: YouTube

Lauren Singer ákvað fyrir rúm­lega fjórum árum að hefja ruslausan lífs­stíl og koma öllu því rusli sem hún gat ekki losað sig við á umhverf­is­vænan hátt í krukku. Hún heldur úti vef­síð­unni Trash is for toss­ers þar sem hún gefur fólki inn­sýn í rusl­laust líf sitt, svarar spurn­ingum og ráð­leggur fólki sem vill taka þetta skref. Hún lifir eftir lífs­speki sem hún kallar „zero waste“ þar sem allt sem hún notar er end­ur­nýtt á ein­hvern hátt.

Nema það sem hefur farið í krukk­una.

Í upp­hafi árs ákvað hún að róta aðeins í krukk­unni sinni og telja upp þá hluti sem hafa fallið til og hún hefur ekki fundið nyt fyrir. Allt í krukk­unni er úr plasti sem ekki er hægt að end­ur­vinna í end­ur­vinnslu­stöðvum í New York í Banda­ríkj­unum þar sem hún býr.

Singer hefur það að mark­miði að allt sem lendir í fórum hennar ver­iði að vera end­ur­vinn­an­legt á ein­hvern hátt. Þeir hlutir sem hafa lent í krukk­unni eiga það hins vegar sam­eig­in­legt að vera eitt­hvað sem hún hefur fengið, þrátt fyrir að hafa beðið um annað.

Allt annað sem hún hefur eign­ast eða notað síð­ustu fjögur ár hefur ekki farið á rusla­haug­ana. „Allt sem ég nota rotnar og verður að mold, hægt að end­ur­nýta óend­an­lega eða end­ur­vinn­an­legt að fullu,“ segir Singer.

[adspot]

Lærði umhverfisfræði

Singer nam umhverf­is­fræði í háskóla og hefur alltaf haft áhuga á nátt­úr­unni og nátt­úru­vernd. Hún segir að tvö augna­blik í lífi hennar hafi ráðið því að hún ákvað að breyta um lífs­stíl þar sem ekk­ert ætti að fara til spillis:

„Það fyrsta var á útskrift­ar­ár­inu mínu í skól­anum þegar kenn­ar­inn minn lagði áherslu á mik­il­vægi þess að lifa eftir eigin lífs­gildum,“ segir hún á vef sínum. „Það fékk mig til þess að hugsa um mitt eigið vist­spor.“

„Seinna augna­blikið var þegar sam­nem­andi minn kom með nesti í skól­ann alla daga; inn­bundið í plast­poka og vatn í nýrri plast­flösku. Ég fylgd­ist með þessu og hugs­aði við eigum að vera fram­tíð þess­arar plánetu og hér erum við með ruslið okkar að rusla allt til.“

Singer seg­ist síðar hafa heyrt af fjöl­skyldu í Kali­forníu sem lifði rusl­lausu lífi. „Þá ákvað ég fyrir alvöru að ég ætti ekki aðeins að segj­ast elska umhverfið, heldur lifa eftir þeirri stað­reynd.“

Hægt er að lesa nánar um það hverju Lauren Singer hefur skipt út á heim­ili sínu til þess að forð­ast óþarfa úrgang á vefnum hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár