Viðhaldsþörf mikil á vegum landsins

Brýnt er að tvö­falda stofn­leiðir til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Reykja­nes­braut, Suð­ur­lands­veg og Vest­ur­lands­veg um Kjal­ar­nes en kostn­aður við þær fram­kvæmdir er met­inn á um 60 millj­arða króna.

Fjár­veit­ingar til vega­mála hafa und­an­farin ár verið langt undir við­halds- og fram­kvæmda­þörfum. Á sama tíma hefur akstur á vegum auk­ist veru­lega, sem og kröfur sam­fé­lags­ins um greiðar og öruggar sam­göngur allt árið. Vaxandi ferða­þjón­usta er stór þáttur í þess­ari þróun. Þannig jókst akstur um allt að 11 pró­sent á síð­asta ári einu saman.

Þetta kom fram þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra kynnti stöðu í vega­málum á rík­is­stjórn­ar­fundi í lok febr­úar síð­ast­lið­ins.

Segir í kynn­ing­unni að sam­hliða þessu hafi þörfin fyrir þjón­ustu, við­hald og fram­kvæmdir auk­ist. Fram­kvæmdir séu háðar verk­efna­bundnum fjár­veit­ingum. Aðeins sú fram­kvæmd að tvö­falda stofn­leiðir til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Reykja­nes­braut, Suð­ur­lands­veg og Vest­ur­lands­veg um Kjal­ar­nes sé metin á um 60 millj­arða króna en heildar fram­lög til nýfram­kvæmda á þessu ári séu 11,7 millj­arðar króna. „Auka þarf við­hald vega og verða fjár­veit­ingar að nema um 10 til 11 millj­örðum króna á ári en voru ríf­lega 8 millj­arðar árið 2017. Vaxandi kröfur eru til þjón­ustu, sér­stak­lega vetr­ar­þjón­ustu, sem og til veg­merk­inga og þurfa fram­lög að nema minnst 5,5 millj­örðum árlega en þau námu á síð­asta ári 4,6 millj­örðum.“

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að unnið sé að sam­göngu­á­ætlun en þar komi fram til­lögur að brýnum verk­efnum sem verði síðan lögð fyrir Alþingi sem fjalli um hana í haust.

[adspot]

Mikil þörf fyrir framkvæmdir

Jafn­framt segir í kynn­ing­unni að á und­an­förnum ára­tug hafi fjár­munum verið for­gangs­raðað til við­halds og vetr­ar­þjón­ustu á kostnað fram­kvæmda. Nægi þar að nefna fram­kvæmdir á Vest­fjörðum í fram­haldi af Dýra­fjarð­ar­göngum, jarð­ganga­teng­ingu Seyð­is­fjarðar, end­ur­bætur á Hring­vegi og útrým­ingu ein­breiðra brúa á honum sem sam­tals gera um 100 millj­arða króna. Þá sé afar brýnt að tvö­falda stofn­leiðir til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Reykja­nes­braut, Suð­ur­lands­veg og Vest­ur­lands­veg um Kjal­ar­nes en kostn­aður við þær fram­kvæmdir er met­inn á um 60 millj­arða króna.

Við­halds­þörfin er brýn, sam­kvæmt ráð­herra. Hann segir að und­an­farin ár hafi fjár­veit­ing til við­halds vega verið umtals­vert lægri en þörf og því liggi vegir víða undir skemmdum. Samtals sé áætlað að þurfi um 11 millj­arða króna á ári til að við­halda vega­kerf­inu í ásætt­an­legu horfi og vinna upp við­var­andi skort en upp­söfnuð við­halds­þörf nemi um 65 millj­örðum króna.

Uppsafnaður vandi nálægt 50 milljörðum

Bundið slit­lag er víða í slæmu ástandi, hjól­för sums staðar svo djúp að hætta skap­ast í vatns­veðrum og holur eru hættu­legar þar sem burð­ar­lag er jafn­vel farið að gefa sig, segir í kynn­ingu ráð­herra. Enn­fremur að bundið slit­lag sé á um 5.500 km vega og sé árleg við­halds­þörf þess metin á um 2,8 millj­arða króna. Upp­söfnuð þörf sé nú metin 11,3 millj­arðar króna. Fjár­heim­ild árs­ins 2017 hafi hins vegar verið 4 millj­arðar króna.

„Þörfin fyrir styrk­ingar og end­ur­bætur vega er mikil. Árleg þörf er metin 3 millj­arðar króna á ári en upp­safn­aður vandi er nú tal­inn vera nálægt 50 millj­örðum króna. Fjár­heim­ild var hins vegar 1,3 millj­arðar króna á síð­asta ári. Afleið­ingar þessa eru dýrar því í stað við­halds þarf jafn­vel að end­ur­byggja veg frá grunni. Mikil umferð­ar­aukn­ing gerir einnig kröfur um breið­ari vegi og er breikkun víða orðið brýn. Viðhaldi mal­ar­vega er einnig ábóta­vant. Lengd þeirra er um 7.400 km, þar af eru stofn- og tengi­vegir 2.800 km. Árleg við­halds­þörf er metin 1,3 millj­arðar króna en upp­söfnuð þörf til við­bótar er að lág­marki 2 millj­arðar króna. Þá skortir víða á heflun og ryk­bind­ingu,“ segir í kynn­ing­unni.

Þjónustuþörf vegakerfisins fer vaxandi

Kemur fram að alls séu 1.225 brýr í vega­kerf­inu og 712 þeirra séu ein­breiðar. Um 35 pró­sent brúa séu eldri en 50 ára og því sé komin mikil þörf á end­ur­nýjun. End­urstofn­verð brúnna sé 71,5 millj­arðar króna og æski­leg árleg við­halds­þörf um 1,4 millj­arðar króna á ári.

„Kostn­aður við árlega þjón­ustu, að almennri þjón­ustu með­tal­inni, er sam­tals metin á um 5 millj­arða króna. Sífellt meiri kröfur eru um vetr­ar­þjón­ustu, mest vegna ört vax­andi ferða­þjón­ustu allt árið. Undir þjón­ustu falla einnig vega­merk­ingar, yfir­borðs­málun, stikun, skilti, lýs­ing, örygg­is­mál svo sem upp­setn­ing vegriða o.fl. Þá er upp­lýs­inga­miðlun um veður og færð vax­andi. Sam­dráttur í fjár­veit­ingum til þjón­ustu hefur bitnað á almennri þjón­ustu en leit­ast er við að hlífa vetr­ar­þjón­ustu.

Gera má ráð fyrir að vetr­ar­þjón­ustan kosti nú að með­al­tali rúma 3 millj­arða króna árlega. Það sem af er þessu ári hefur dag­legur kostn­aður við vetr­ar­þjón­ustu verið að með­al­tali um 25 millj­ónir og á snjó­þungum dögum um 35 millj­ónir króna“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár