Ráðherra útilokar ekki frekari framræslu votlendis á Íslandi

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra.
Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, segir ekki úti­lokað að vot­lendi verði ræst fram með skurðum í fram­tíð­inni ef það verði til þess að búa til betri tún. Rætt er við Sigrúnu í Þukli í Hlað­varpi Kjarnans um áætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum sem kynnt var í dag.

„Það var gríð­ar­legur árangur sem fólst í því að ræsa fram land og þurrka. Það gerði bara mikið betri tún víða,“ segir Sigrún þegar hún var spurð um áætlun rík­is­stjórn­ar­innar og mögu­leika Íslands til að standa við mark­mið sín um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við 1990. „En ég vil heldur ekki, bara af því að ég er umhverf­is­ráð­herra, þá sé ég ekki hvers­vegna við reynum ekki ennþá að ræsa fram land í ein­hverjum til­fellum til þess að búa til betri býli.“

„En við getum gert margt og við erum farin að hefj­ast handa, og bændur eru bara mjög til­búnir í það. Fljót­lega munum við vinna ákveð­inn veg­vísi með bænda­sam­tök­unum, af frum­kvæði þeirra,“ segir Sigrún.

Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, skrifar á vef sam­tak­anna í dag um áætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum. Þar er bent á að fjögur ár séu liðin síðan Ísland hafi fengið end­ur­heimt vot­lendis við­ur­kennda sem mót­væg­is­að­gerð hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum en að ekk­ert hafi enn gerst. „Það er fyrst næsta sumar sem eitt­hvað á að gera í mál­inu. Hver á svo að borga brús­ann? Skatt­greið­endur eða þeir sem menga?

Sigrún segir að í umhverf­is­ráðu­neyt­inu hafi verið settur af saman starfs­hópur um vot­lendið. Hún telur ein­fald­ast að hefja end­ur­heimt vot­lend­is­ins á rík­is­jörðum sem ekki eru í búsetu. „Það er nátt­úr­lega eðli­legt að þar sem ekki er verið að nýta jarðir þá er eðli­legt að end­ur­heimta vot­lendið þar. Það er hugað að þessu all­staðar. Það plan mun líta dags­ins ljós á næsta ári.“

Á vef umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins má lesa að um 40 pró­sent vot­lendis hafi verið fram­ræst til að auka fram­leiðni í land­bún­aði á seinni hluta 20. ald­ar­innar. Talið er að grafnir hafi verið 32 þús­und kíló­metrar af skurðum og að fram­ræst vot­lendi nemi 3.900 fer­kíló­metrum.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans í morgun er fjallað um sókn­ar­á­ætl­un­ina. Hún er ekki útfærð heludr byggir að mestu á mark­miðum, veg­vísum og ómót­uðum hug­myndum. Ekki er til­greint hversu mikið áætl­unin á að kosta og ekki er minnst einu orði á stór­iðju í sókn­ar­á­ætl­un­inni, en stærstur hluti end­ur­nýj­an­legrar orku Íslands fer til stríkrar auk þess sem fjöl­mörg orku­frek stór­iðju­verk­efni eru í píp­unum eða fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu þeirra þegar hafnar.

Þá er ekk­ert talað um sér­tækar aðgerðir um losun gróð­ur­hús­loft­teg­unda í þétt­býli, til dæmis með auknum rík­is­styrkjum til upp­bygg­ingar almenn­ings­sam­gangna og þétt­ingu byggðar, sem er til þess fallin að draga úr losun vegna sam­gangna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár