Mynd: AFP

2020: Annus horribilis

Árið sem er að líða hefur verið meira en lítið viðburða­ríkt á heimsvísu og oftast ekki á góðan hátt. Farsóttir, pólitísk átök og hörmungar settu svip sinn á 2020 um allan heim og eftir­köstin eiga enn eftir að koma í ljós.

Janúar

Strax í upphafi árs fóru að berast tíðar fréttir af nýju og banvænu afbrigði kóróna­veiru sem greinst hafði í Wuhan í Kína og var farin að berast á milli fólks. Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin (WHO) lýsti því yfir í janúar að Covid-19, eins og sjúk­dómurinn átti eftir að vera kallaður, væri alþjóðlegt heilsufars­vandamál sem kallaði á samhent viðbrögð. Þess í stað fóru ríki heimsins fljótt í skot­grafir, skiptust á ásökunum innan WHO og vonuðust einfald­lega til að faraldurinn yrði að mestu stað­bundið vandamál.

Upphaf far­ald­ursHlífð­ar­fata­klæddir menn standa vörð um mann sem lést af völdum Covid-19 30. jan­úar í kín­versku borg­inni Wuhan.

Grunur lék á að heilbrigðis­yfirvöld í Kína hefðu gert lítið úr vandanum með ónákvæmri skráningu tilfella og jafnvel fölsunum. Þær ásakanir fengu byr undir báða vængi á dögunum með leka „Wuhan skjalanna“ svokölluðu sem fjallað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár