Líkja fyrirhugaðri nýbyggingu í Mosfellsbæ við vegginn mikla í Game of Thrones

Íbúar við göt­una Bjark­ar­holt í miðbæ Mos­fells­bæjar gera sumir veru­legar athuga­semdir við breyt­ingar sem stendur til að gera á deiliskipu­lagi upp­bygg­ing­ar­reits í næsta nágrenni heim­ilis þeirra.

Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir meira byggingarmagni en hið eldra.
Nýtt deiliskipu­lag gerir ráð fyrir meira bygg­ing­ar­magni en hið eldra. Mynd: Úr deiliskipulagstillögu

Í sumar aug­lýsti Mos­fells­bær breyt­ingar á deiliskipu­lagi lóða við Bjark­ar­holt 22-30, þar sem stendur til að auka bygg­ing­ar­magn all­nokkuð og fjölga áform­uðum íbúðum, úr 44 almennum íbúðum í fjöl­býl­is­húsum yfir í 150 minni íbúðir sem sér­stak­lega eru hugs­aðar fyrir aldr­aða. Einnig er legu mið­bæj­ar­garðs, sem á að verða innan lóð­ar­innar, breytt.

Skipu­lags­yf­ir­völd í Mos­fellsbæ eru þessa dag­ana að vinna úr athuga­semdum sem bár­ust við kynntar breyt­ingar á deiliskipu­lag­inu, en þær sem bár­ust frá íbúum bæj­ar­ins voru flestar nei­kvæðar og lúta að því að útsýni þeirra sem búa í nýlegum fjöl­býl­is­húsum í göt­unni muni skerð­ast, bíla­um­ferð í Bjark­ar­holt­inu verði óbæri­leg og bíla­stæði á hinni nýju lóð verði of fá, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir alls 150 stæðum, eða einu á hverja íbúð.

„Um þetta deiliskipu­lag mun aldrei nást sátt, það held ég hafi komið greini­lega fram á kynn­ing­ar­fund­inum,“ sagði í umsögn stjórnar hús­fé­lags­ins í Bjark­ar­holti 8-20, en umræddur kynn­ing­ar­fundur fór fram í júní­mán­uði.

„Við viljum ekki búa í borg“

Tveir íbúar í hús­inu Bjark­ar­holti 27 hafa veru­legar áhyggjur af bíla­stæða­málum og segja stæðin nú þegar af skornum skammti, jafn­vel svo ama valdi. „Íbúar hafa vart bíla­stæði fyrir eigin bíla og hvað þá ef gestir koma í heim­sókn. Þó svo að í nýju deiliskipu­lagi sé reiknað með einu bíla­stæði pr/íbúð í bíla­kjall­ara, þá er slíkt ekki nóg. Bæði eiga sumir tvo bíla og einnig eru gestir og þeir sem erindi eiga í fjöl­býl­is­húsin í veru­legri klípu. Mjög tak­mark­aður fjöldi af bíla­stæðum er reiknað með í þessu skipu­lagi og þýðir það ein­fald­lega að álagið eykst á þegar yfir­hlaðið ástand á bíla­stæðum við göt­una. Það er með öllu óvið­un­andi,“ segir í umsögn þeirra.

[adspot]

Íbúarnir benda einnig á að það sé versl­un­ar­kjarni neðar í göt­unni, þar sem m.a. Krónan og Bónus hafa versl­anir, og segja bíla­stæðin þar af skornum skammti, mikið álag sé á ákveðnum tímum, eins og allir Mos­fell­ingar þekki. „Þetta á end­an­lega eftir að springa ef þessar áætl­anir koma til með að verða að raun­veru­leika. Fyrirséð er stöðugt umferð­ar­öng­þveiti og mik­ill ami, ekki bara nær­liggj­andi íbúa heldur almenna not­endur þess­ara þjón­ustu,“ segir í umsögn þess­ara íbúa.

Þau gagn­rýna einnig, eins og sumir aðrir sem sendu inn athuga­semdir, umfang og gerð þeirra bygg­inga sem nýtt deiliskipu­lag myndi opna á. Deiliskipu­lags­til­lagan gerir ráð fyrir því að nýr mið­bæj­ar­garður verði ram­maður inn af stórri bygg­ingu sem mætti verða fimm hæðir þar sem hún er hæst, þó með inn­dreg­inni efstu hæð. Þessi bygg­ing myndi sam­kvæmt skipu­lag­inu liggja sam­síða tveimur öðrum bygg­ingum sem fyr­ir­hugað er að rísi á svæð­inu, og verða sam­tengd þeim. Íbúar gagn­rýna að fyr­ir­hugað sé að láta húsin standa sam­síða án upp­brots og nefna að þarna verði 225 metra langur sam­felldur „veggur“ út að jaðri lóð­ar­innar.

Segja íbú­arnir einnig vegið að skrúð­garð­inum eftir fögur fyr­ir­heit. „Nú stendur eftir að það er búið að minnka hann enn meira og hann mun standa í skugga langs bygg­inga­klumps sem minnir á ”Game of thro­nes vegg”. Við viljum minna ykkur kæru full­trúar okkar á eina ein­falda stað­reynd. Við viljum búa í Mos­fellsbæ. Við viljum ekki búa í borg. Töfr­arnir sem fylgja því að búa í bæj­ar­fé­lagi, þar sem önnur lífs­gildi eru í fyr­i­r­úmi en í hörð­ustu borg­ar­kjörnum, er það sem við sækj­umst eftir,“ segja íbú­arnir í umsögn sinni.

Þar kemur einnig fram að þau úti­loki ekki að leita réttar síns fyrir dóm­stólum, vegna skerð­ingar á útsýni, sem þau segja að hafi verið lyk­il­þátt í því að þau fjár­festu í eign sinni í Bjark­ar­holt­inu.

„Áfall“ hve mikið til standi að breyta skipulagi frá 2010

Hjón sem búa í húsi við Bjark­ar­holt 20 deila flestum þessum áhyggjum. Þau lýsa því í umsögn sinni að þau hafi fest kaup á íbúð sinni árið 2017, nokkuð vel með­vituð um það deiliskipu­lag sem er í gildi á lóð­inni við Bjark­ar­holtið.

Benda íbú­arnir á að skipu­lagið sem er í gildi sé frá 2010, og því hafi að þeirra mati verið nokkuð ljóst hvernig menn vildu að Mos­fells­bær liti út. „Það var því áfall að sjá, fyrir til­viljun, nýju deiliskipu­lags­til­lög­una sem birt­ist á vef Mos­fells­bæjar 12. maí,“ skrifa íbú­arnir, sem telja hæð og umfang fyr­ir­hug­aðra bygg­inga ekki ásætt­an­lega.

Óeðlilega stórum hópi eldri borgara stefnt á sama blettinn

Eigendur íbúðar í Bjark­ar­holti 18 segj­ast hafa keypt íbúð sína vegna útsýn­is­ins og horfi á það þannig að bygg­ing nýrra húsa sem skerði útsýnið yrði „bein eigna­upp­taka“, þar sem hún hafi áhrif á verð­mæti eignar þeirra til fram­tíðar.

Þau lýsa einnig áhyggjum af bíla­stæða­málum, umfangi fyr­ir­hug­aðra bygg­inga en einnig því að með því að fjölga íbúðum og stefna að því að hafa þær sér­stak­lega fyrir aldr­aða sé verið að stefna of mörgum öldruðum á sama blett­inn í miðbæ Mos­fells­bæjar, en á næstu lóð sé þegar stefnt að bygg­ingu 100 þjón­ustu­í­búða, auk þess sem örygg­is­í­búðir Eirhamra séu í næsta nágrenni.

Vísað til frekari úrvinnslu

Fjallað var um skipu­lags­til­lög­una og athuga­semdir við hana á fundi skipu­lags­nefndar Mos­fells­bæjar 23. sept­em­ber. Þar var tekin ákvörðun um að vísa henni til frek­ari úrvinnslu hjá skipu­lags­full­trúa og umhverf­is­sviði bæj­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár